Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Qupperneq 52

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2000, Qupperneq 52
ísíndas ' / \r Vinnuveitendur greiða sem nemur 1,5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga í vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hrein eign sjóðsins um áramót er hverju sinni til úthlutunar. Sjóðurinn er í vörslu félagsins og skiptist í A- og B-hluta. A-hluti í A-hluta koma 90% af tekjum sjóðsins og skal þeim varið til að greiða hverjum sjóðfélaga árlega framlag fyrir útlögðum kostnaði vegna endurmenntunar, rannsóknar- eða þróunarstarfa. Félagið sór um að greiða úr A-hluta sjóðsins til félagsmanna á fyrsta ársfjórðungi hvert ár. Ekki þarf að sækja sérstaklega um framlagið, upphæðin er lögð inn á bankareikning félagsmanna sem hafa gefið upp reiknings- og bankanúmer sitt hjá félaginu eða senda með ávísun heim. Félagsmaður, sem hefur verið í fullu starfi tímabilið 1. janúar til 30. nóvember árið fyrir úthlutun, á rétt á fullri úthlutun. Félagsmaður, sem hefur unnið hlutastarf á sama tímabili, á rétt á úthlutun í hlutfalli við vinnuframlag. Ekki er úthlutað til félagsmanna sem hófu störf eftir 1. september árið fyrir úthlutun. Vísindasjóður A-hluti Greiðslur úr A-hluta vísindasjóðs félagsins verða lagðar beint inn á bankareikning félagsmanna í lok mars nk. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr B-hluta vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur er til 15. anríl 2000. Umsóknum sé skilað á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 22. B-hluti Úr B-hluta vísindasjóðs er þeim 10% sem eftir eru af tekjum sjóðsins varið til að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsókna- og þróunarverkefni. Úr þeim hluta er úthlutað einu sinni á ári. Úr starfsreglum fyrir B-hluta vísindasjóðs Hjúkrunarfræðingar, sem eiga aðild að sjóðnum, geta sótt um styrki úr honum til að sinna fræðimennsku. Umsóknir skulu metnar af stjórn vísindasjóðs og sérfróðum aðilum á hverju sérsviði hjúkr- unar. í þverfaglegum verkefnum, sem fleiri en einn aðili sækir um og ekki eru ailir aðilar að sjóðnum, getur upphæð styrks aldrei orðið hærri en sem nemur hlut styrkhæfra sjóðfélaga í verkefninu. Sé ekki úthlutað að fullu úr B-hluta á yfirstandandi sjóðsári leggst afgangur við sjóðinn næsta ár á eftir. Lokaverkefni nemenda í B.S. námi eru ekki styrkhæf. Lokaverkefni til M.S. eða doktorsgráðu geta verið styrkhæf að uppfylltum almennum skilyrðum enda sé viðkom- andi hjúkrunarfræðingur aðili að sjóðnum árið sem réttur til úthlutunar úr A-hluta sjóðsins ávinnst. Styrkupphæðir verða greiddar út í áföngum í samræmi við framgang verks- ins enda skili styrkþegi inn áfangaskýrslu. Lokaskýrslu skal skilað til stjórnar vísindasjóðs ásamt niðurstöðum, t.d. tímaritsgrein. Vísindasjóður hefur á hverjum tíma yfirlit yfir allar styrkumsóknir og styrk- Sumarskóli Sheffield International Nursing and Midwifery Summer School býöur upp á alþjóðlegt námskeið dagana 3.-21. júlí 2000. Námskeiðið er ætlað annars og þriðja árs hjúkrunarnemum og nemum í Ijósmæðranámi. Námskeiðið fer fram á ensku. Meðal annars verður fjallað um alþjóðleg viðhorf til hjúkrunar og Ijósmæðra, þróun þessara starfa í Bretlandi, kynningu á heilbrigðiskerfi Bretlands, hjúkrun byggða á rannsóknum, upplýsingatækni í heilsugæslunni, menntun hjúkrunarfræðinga og Ijósmæðra í fortíð og framtíð. Auk þess verður boðið upp á heimsóknir á sjúkrahús og heilusgæslustöðvar. Nánari upplýsingar fást í netfangi internatsnm@sheffield. ac.uk veitingar frá stofnun sjóðsins í janúar 1994. Verði ekkert úr verkefni eða því ekki lokið af einhverjum ástæðum skal styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann hluta styrksins sem ekki hefur verið notaður til verkefnisins. í umsókn um styrk þurfa að koma fram eftirfarandi upplýsingar: Nafn umsækjanda, menntun, starfs- reynsla og reynsla af rannsóknar- eða þróunarvinnu. Greinaskrif: • Heiti rannsóknarverkefnis/þróunar- verkefnis. • Markmið með vinnu verkefnis. • Upplýsingar um fræðilegt gildi fyrir hjúkrun/heilbrigðisvísindi. • Rannsóknaráætlun/verkáætlun. • Aðferðafræði. • Heimildaskrá. • Mælitæki. • Tímaáætlun. • Kostnaðaráætlun. Við mat á styrkhæfni skulu þessi atriði metin skv. eftirfarandi viðmiðum: Leiðir verkefnið til nýrrar þekkingar eða þróunar? Hvert er mikilvægið? Er framsetning markmiða skýr? Er framkvæmdaáætlun raunhæf og í samræmi við markmið? Er nauðsynleg aðstaða fyrir hendi? Er fagleg þekking umsækjanda fullnægjandi? Er kostnaðar- og tímaáætlun trúverðug? Er hægt að fella niður eða lækka einhverja kostnaðarliði, hvernig? Almennar athugasemdir um umsókn og verkefni. Hver ofangreindra þátta verði metinn samkvæmt ákveðnum kvarða, t.d. 0-5, til að auðvelda mat og ákvarðanatöku við styrkveitingar. Styrkir úr vísindasjóði geta nýst til að Ijúka verkefnum til kynningar á ráðstefnum. 52 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 76. árg. 2000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.