Fréttablaðið - 29.04.2017, Page 2

Fréttablaðið - 29.04.2017, Page 2
Slá í gegn Þessir afar kátu menn fögnuðu því í gær að hafa slegið í gegn. Þó ekki sem rokkstjörnur eða Hollywood-leikarar heldur var gegnumslag í Vaðla- heiðargöngum. Af tilefninu bauð Ósafl, verktakinn, til opins húss í Eyjafirði þar sem gestum var boðið að kynna sér framkvæmdirnar. Voru þær Aníta Lind Björnsdóttir og Þórunn Arnardóttir fengnar til að leika heilaga Barböru, sem sögð er gæta jarðgangamanna. Fréttablaðið/auðunn Veður Suðaustanstrekkingur og skúrir eða slydduél, en dálítil rigning eða súld suðaustanlands. Yfirleitt bjart- viðri á Norðurlandi. Fer að rigna fyrir austan um kvöldið. sjá síðu 48 Grand Indókína Víetnam, Laos og Kambódía | 14.- 31. okt. Verð frá: 655.900 kr. og 12.500 Vildarpunktar. Á mann m.v. 2 í herbergi. Verð án Vildarpunkta: 665.900 kr. Fararstjóri er Héðinn Svarfdal Björnsson. VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS Viðskipti Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi Plain Vanilla, vinnur nú að stofnun nýs fyrirtækis sem sam­ kvæmt heimildum Fréttablaðsins mun starfa í leikjageiranum. Þor­ steinn stofnaði Plain Vanilla árið 2010 en fyrirtækið þróaði meðal annars leikinn vinsæla QuizUp. „QuizUp var selt út til Banda­ ríkjanna núna um áramótin og í rauninni lauk mínum afskiptum af QuizUp þá, það eru komnir nokkrir mánuðir síðan og það er kannski eðlilegt að maður sé að pæla í því hvað næsta verkefni verði. Það er rétt að ég er að skoða það, ég ætla ekki að segja að það sé leikja­ fyrirtæki, en við erum með ýmis­ legt í bígerð sem við erum að skoða núna,“ segir Þorsteinn. Í apríl 2016 var greint frá því að fjárfest hefði verið í Plain Vanilla fyrir um fimm milljarða króna frá stofnun þess. Fyrirtækið sendi svo frá sér tilkynningu í lok ágúst á síð­ asta ári þess efnis að skrifstofu þess í Reykjavík yrði lokað. Öllum 36 starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að NBC hætti við framleiðslu á þáttum byggðum á leiknum. Samkvæmt heimildum Frétta­ blaðsins hefur Þorsteinn tekið á leigu húsnæði undir nýja fyrirtæk­ ið á Laugavegi 26 en þar er meðal annars til húsa auglýsingastofan Jónsson & Le’macks. „Ég er ekki að kaupa neina fasteign en við höfum verið að leita að húsnæði undir þetta nýja verkefni,“ segir hann. Þorsteinn segist ekki að svo stöddu geta sagt meira um verk­ efnið eða hverjir standi að því með honum. En samkvæmt heimildum eru það meðal annars Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, sem var starfsmannastjóri (COO) hjá Plain Vanilla, og Ýmir Finnbogason, sem var fjármálastjóri hjá Plain Vanilla. „Ég er búinn að taka mér ágætis frí eftir rússíbanann í kringum QuizUp, ég er bara aðeins að skoða nokkur tækifæri og meta það. Það er skemmtilegt. Skemmtilegasti hlutinn í þessu frumkvöðlastarfi er að kasta fram hugmyndum og pæla í hvernig sé hægt að búa til verð­ mæti,“ segir Þorsteinn. saeunn@frettabladid.is Nýtt leikjafyrirtæki Þorsteins í QuizUp Þorsteinn ætlar að stofna fyrirtæki með samstarfsmönnum úr Quizup, Gunn- ari Hólmsteini Guðmundssyni og Ými Finnbogasyni. Fréttablaðið/VilHelm Það er kannski eðlilegt að maður sé að pæla í því hvað næsta verkefni verði. Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi Plain Vanilla Þetta hefði alveg mátt fara aðeins öðruvísi. Hreimur Örn Heimisson, söngvari Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi Plain Vanilla, vinnur að stofnun nýs fyrirtækis. Fyrirtæki hans QuizUp var selt til Bandaríkjanna um áramótin. Samkvæmt heimildum mun nýja fyrirtækið einnig starfa í leikjageiranum. 7,5 milljónir dollara var kaup- verð Glu Mobile á QuizUp. DANMÖRk Danska ríkisstjórnin hyggst koma til móts við for­ eldra sem báðir vinna vaktavinnu. Vinnutími fólks sem vinnur slíka vinnu stangast oft á við þann tíma sem leikskólar og aðrar gerðir dag­ vistunarúrræða fyrir börn eru opin á daginn. Af þeim ástæðum leggja dönsk stjórnvöld til að foreldrar í vakta­ vinnu og einstæðir foreldrar fái sérstakan fjárhagsstuðning frá hinu opinbera til þess að geta greitt ömmum eða barnapíum fyrir gæslu barnanna þegar dagvistunarstofn­ anir hafa lokað á daginn. Talsmaður Jafnaðarmannaflokks­ ins þar í landi vill heldur að kjarna­ starfsemin verði styrkt þannig að stofnanirnar geti betur komið til móts við þarfir foreldranna. – ibs Ömmu verði borgað fyrir barnagæsluna slys „Maður kallar ekki allt ömmu sína en ég var bara virkilega hrædd­ ur,“ segir Hreimur Örn Heimisson söngvari sem var farþegi í vél Prim­ era Air sem rann út af flugbraut á Keflavíkurflugvelli í gær. Hreimur segir flugið hafa verið eins og hvert annað flug framan af. „Þegar okkur finnst við vera að fara að snerta brautina þá rífur vélina upp. Flugmaðurinn hætti sem sagt við og tók annan hring,“ segir hann. „Sá hringur var ekki nógu góður. Það sátu allir uppspenntir og það heyrðist ekkert. Það var ekkert til­ kynnt,“ segir Hreimur enn fremur. Hreimur segist hafa fundið það mjög vel þegar vélin lenti loks að hún var á of miklum hraða. „Ég fann það sjálfur að ég spenntist alveg upp og við Vignir Snær Vig­ fússon sem sátum hlið við hlið vorum komnir í stellingar og til­ búnir að kljást við höggið.“ Enn fremur segist Hreimur halda að mjög litlu hafi munað að hræði­ lega hafi farið. Guðni Sigurðsson, upplýsinga­ fulltrúi ISAVIA, segir Rannsóknar­ nefnd samgönguslysa nú rannsaka málið. „Þeir eru búnir að vera að taka viðtöl við áhöfn, að mér skilst. Svo verða allar upplýsingar skoð­ aðar. Ástand á braut, flugriti og allt það.“ – þea Var tilbúinn að kljást við höggið 2 9 . A p R í l 2 0 1 7 l A u G A R D A G u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t A B l A ð i ð 2 9 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 8 s _ P 1 2 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C C 2 -7 5 6 8 1 C C 2 -7 4 2 C 1 C C 2 -7 2 F 0 1 C C 2 -7 1 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.