Fréttablaðið - 29.04.2017, Síða 30

Fréttablaðið - 29.04.2017, Síða 30
Vigdís Finnbogadóttir býr enn í sama húsi þar sem hún stóð á svölum úti sum-arið 1980, nýr forseti Íslands. „Nei, ekki vera að fara úr skónum því hér er allt svo franskt,“ fer Vigdís fram á þegar blaðamaður kemur í heimsókn. Það er satt, það er heim- ilislegt um að litast. Í eldhúsinu eru nýleg frönsk tímarit, á forsíðunum er fjallað um forsetakosningar þar í landi. Vigdís býður upp á kaffi og segist vilja hafa það sterkt. Það er kveikt á útvarpinu. Vigdís fylgist grannt með gangi mála. Hvert sem litið er má sjá myndir af barnabörnunum. Þau eru orðin fjögur. „Kannski fimm ef ég er talin með,“ segir Vigdís. „Tvisvar verður gamall maður barn,“ segir hún og grípur til þessa forna máltækis. Að baki máltækinu liggur sú hugs- un að þegar við eldumst verðum við aftur eins og börn, öðrum háð. En kannski líka að þá kunnum við betur að meta það einfalda í lífinu. Grípum kjarnann, það sem máli skiptir. Þótt Vigdís sé orðin 87 ára gömul er öllum ljóst sem hana þekkja að hún er engum háð. Hún sýnist full orku og sinnir sínum helstu ástríðum og áhugamálum. Ræktun tungunnar, þörfinni fyrir þekkingu á erlendum tungumálum til að skilja heiminn, verndun náttúrunnar, leikhúsinu og qigong sem hún hefur stundað í áratugi. Vigdís hefur gegnt starfi vel- gjörðarsendiherra Menningarmála- stofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í tungumálum frá árinu 1998 og er reyndar fyrsti opinberi talsmaður tungumála í heiminum. Veröld – hús Vigdísar, sem helgað verður kennslu, rannsóknum og viðburðum sem tengjast erlendum tungumálum og menningu, var form- lega opnað á sumardaginn fyrsta og á sama tíma var opnuð sýning sem snýr að störfum og hugðarefnum Vigdísar sem er traustur bakhjarl hússins. Í framtíðinni á að vera hægt að kynna sér sem flest tungumál heimsins. Byggingin mun hýsa Vigdísar- stofnun – alþjóðlega miðstöð tungu- mála og menningar, sem starfrækt er á grundvelli samkomulags milli íslenskra stjórnvalda og UNESCO. „Auður Hauksdóttir á allan heiður af stofnuninni,“ segir Vigdís ákveðin og nefnir fjölbreytta starfsemi hússins en í því er aðstaða fyrir fyrirlestra og ráðstefnur, aðstaða fyrir fræðimenn og til kennslu og rannsókna. „Ég var þar fyrr í dag með Susönu Rinaldi, frægri argentínskri söngkonu. Hún er velgjörðarsendiherra eins og ég. Hún tók nokkra tóna í fyrirlestrar- salnum sem er músíksalur líka og það var undursamlegt að hlusta á. Auður hefur gert þetta allt saman. Ég er aðeins traustur bakhjarl.“ Hún hefur sett fram fallega Rosen dahl postulínsbolla, skreytta myndum úr ævintýrum H.C. Ander- sens. Hún hellir upp á kaffið beint á álbrúsa sem hún notar mikið og vissulega er það sterkt en bragðgott. Talið berst að ofgnótt upplýsinga á ensku á netinu. „Allur þessi mokstur á enskum upplýsingum hlýtur að hafa áhrif á það hvernig við hugsum,“ segir Vigdís og segir sýn fólks bindast við fábreytta miðla. „Við fáum ekki nógu víða sýn. Við setjum okkur ekki mikið í samband við fleiri tungumál, fleiri menningarheima,“ bendir hún á. „Því fleiri tungumál sem maður getur sett sig í samband við hugar- farslega, því betra. Ég tala ekki ítölsku eða færeysku. En ég get lesið þessi tungumál, náð einhverjum skilningi. Það er mikilvægt að reyna að skilja,“ segir hún. Varðandi þessa viðleitni, að reyna að skilja, hefur hún heyrt af sýrlensku bræðrunum Mohamed Kouwatli og Yossed Kouwatli, sem eru fjórtán og fimmtán ára gamlir og smíða orðabók sem á að aðstoða innflytj- endur og Íslendinga við að skilja hver annan? „Þetta er kjarni málsins í dag, ef ég á að segja eins og er, svona framtak er einstakt, þetta eru fyrir- myndir,“ segir Vigdís og segir þessa dáð strákanna líka merki um hvers ungmenni eru megnug. Það megi byrja að kenna þeim miklu fyrr og miklu meira. „Við byrjum ekki nógu snemma, það er mjög óhentugt og hálfgert slys að byrja til dæmis ekki að kenna dönskuna fyrr á meðan börnunum gæti þótt hún svo afar skemmtileg. Enda var miklu betri kunnátta í gamla daga. Þá lásu börn danskar myndasögur, aðallega And- ers And. Síðan finnst mér vanta að nota sjónvarpið sem kennslutæki í ýmsum greinum, jafnvel að gera það að eins konar opnum háskóla,“ segir Vigdís sem vakti einmitt athygli fyrir frönskukennslu í Ríkissjónvarpinu á árunum 1970-71. „Allir krakkar horfðu í þá daga á þessa þætti í sjónvarpinu af því að þeim fannst skemmtilegt að spreyta sig á frönsku. Seinna þegar ég fór í heimsóknir út á land, þá heilsuðu krakkarnir mér á frönsku: Bonjour, Vigdise, où est Gerard?“ Ég veit að á meðal fyrstu dagskrár- efna Ríkisútvarpsins var tungumála- kennsla. Menn gátu meira að segja sent inn stíla. Kennarinn sat einhvers staðar úti í bæ og leiðrétti og sendi til baka,“ segir Vigdís. En nú eru krakkar yfir sig hrifnir af norskum þáttum sem heita Skam og eru farnir að sletta og skammast á norsku. Drit kul, fy faen og dritsæk … svo ég skammist aðeins á norsku. Hefur þú ekki séð Skam? „Nei, ég er á erlendu stöðvunum á kvöldin að horfa á fréttir eða í tölvunni. Er þetta ekki eitthvert næturgöltur, eða? En ég hef nú samt lesið um þessa þætti, Skam, best ég horfi bara á næsta þátt,“ segir hún og brosir. Hún segist ekki vilja dæma um hverjar séu helstu hætturnar sem steðji að íslensku máli. „Það þarf að byrja á því að stafræna íslenska tungu. Eiríkur Rögnvaldsson, prófess- or í íslensku, er í því mikilvæga verk- efni. Síðan þarf að hvetja ungt fólk til að varðveita íslenskuna. Ég hef verið að reyna að kenna barnabörnunum að heilsa og kveðja. Ég segi við þau að ef þau segja hæ og bæ, þá geti þau alveg eins sagt voff, voff. Það sé merk- ingarlaust. Við megum alls ekki týna þessum fallegu orðum við að heils- ast og kveðjast, komdu sæll og vertu blessaður. Ég er búin að segja þeim þetta svo oft að þau segja: Amma er komin, það má ekki segja hæ og bæ. Svo gleyma þau sér og segja bæ,“ segir hún og hlær. Hvaða væntingar hefur hún til Veraldar? „Ég vil að sjálfsögðu gera Veröld heimsfræga. Við erum á stiklu milli tveggja heimsálfa, Ameríku og Evrasíu. Við getum sent út menning- arskilaboð um hve tungumál heims- ins eru mikilvæg og menningin sem þau skapa. Við erum hér 330 þúsund manns sem tölum eldgamalt mál og búum við metnað til að varðveita tungumálið. Tungumál varðveita alla menn- ingu. Mál er manns aðal. Allt er búið til í orðum í heimi manna. Það eru til um 6.700 tungumál í heiminum, sum þessara tungumála eru í hættu. Við þurfum að vera mjög meðvituð um íslenska tungu því ef hún glatast þá glötum bæði við og veröldin arfinum sem henni fylgir. Við erum þekkt í heiminum fyrir menningararf okkar sem tengist tungumálinu. Á meðan aðrir voru að skrifa á latínu vorum við að skrifa á íslenskri tungu. Ég hef alltaf stutt mig við þennan arf. Ég halla mér að Snorra Sturlusyni eins og hann sé minn mesti vinur og krydda oft mál mitt í útlöndum með sögum hans. Það er ein æfing sem við gerum alltaf í qigong og snýst um að kyrra hugann,“ segir Vigdís og teygir hend- urnar upp og snýr lófum að höfði. „Maður leggur hendurnar svona yfir höfuðið og biður hugann að kyrra sig. En til þess, þá þarf orð. Hugurinn hlýðir aðeins, hafir þú orð,“ segir Vigdís og minnir þannig á að það er miklu fleira í hættu þegar tungu- mál tapast en að fólk geti ekki haft samskipti sín á milli. Innra samtalið glatist einnig og þar með sjálfsvitund og skilningur. Segjum sem svo að ráðamenn sinni þessu verkefni ekki. Hvað þá? „Þá er hætt við að hér vaxi upp þjóð sem kann ekki á fortíð sína. Það sem bjargaði íslensku máli forðum daga var þegar Biblían var þýdd á íslensku á sextándu öld. Guð talaði við okkur á íslensku. Nú þarf tæknin að tala við okkur á íslensku.“ Hún líkir oft tungumálum við veggteppi. „Afar litríkan stóran vef sem heillar með ótal blæbrigðum sínum. Ef tungumál glatast, þá hverf- ur litur úr teppinu og það verður grá- leitara, slitið og lúið.“ Vill gera Veröld heimsfræga Vigdís vill nýta sjónvarp til kennslu í ýmsum greinum. „Jafnvel að gera það að eins konar opnum háskóla,“ segir hún. Fréttablaðið/GVa „Amma er komin! Það má ekki segja hæ og bæ.“ Þetta segja barnabörn Vigdísar Finnboga- dóttur sem kennir þeim að slík kveðja sé jafn merkingarlaus og að segja voff, voff. Hún vill nýta sjón- varpið til kennslu í ýmsum greinum. Guð talaði við okkur á íslensku. nú þarf tækn- in að tala við okkur á íslensku. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r30 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð 2 9 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 8 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 9 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C C 2 -8 E 1 8 1 C C 2 -8 C D C 1 C C 2 -8 B A 0 1 C C 2 -8 A 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.