Fréttablaðið - 29.04.2017, Side 42

Fréttablaðið - 29.04.2017, Side 42
Starri Freyr Jónsson starri@365.is Hversdagsleikinn hefur lengi heillað teiknarann Dag Sævars-son, sem gengur gjarnan með skissubók á sér þar sem hann rissar ýmislegt úr daglegu lífi sínu. Hann byrjaði á þessu þegar hann var í framhaldsskóla og hefur haldið því áfram undanfarin ár. „Í raun og veru er þetta ekkert ný hugmynd. Margir listamenn hafa í gegnum aldirnar vanið sig á að ganga með skissubók og teikna það sem fyrir þá ber. Mér finnst einfaldlega áhugavert að horfa og skoða. Teikning er nefnilega frábær leið til að rannsaka umhverfið eða sinn eigin hugarheim. Það sem við tókum eftir í daglegu lífi okkar segir nefnilega mikið til um okkur sjálf. Ætli markmið mitt með þessum teikningum sé ekki bara að skilja sjálfan mig betur.“ Hann segir misjafnt hvað hann teikni mikið í bækurnar. „Stundum er ég mjög vel stemmdur og teikna og teikna, aðra daga teikna ég svo minna. En ég er alveg búinn að fylla þrjá stóra IKEA kassa heima af skissubókum í öllum stærðum og gerðum.“ Saknaði Íslands Dagur er á fyrsta ári í Listkennslu- deild Listaháskóla Íslands þannig að mest af orku hans fer í að lesa og skrifa ritgerðir. „Ég vinn líka með skóla á leikskólanum Laufásborg og líkar það mjög vel. Svo held ég utan um mynd- listarsmiðjur fyrir börn og unglinga á Oddson Ho(s)teli annan hvern sunnudag frá kl. 12 til 14 en smiðjan er opin öllum.“ Dagur fékk mjög snemma áhuga á listum. Eftir útskrift frá Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti hóf hann nám í Listaháskóla Íslands þar sem hann útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist. „Á árum mínum í Listaháskólanum hafði ég þó aðallega áhuga á tónlist og spilaði í rokkhljómsveitinni Sudden Weather Change. Þótt ég hafi lært mikið þar fannst mér ég þurfa aðeins meiri tæknilega kunnáttu svo ég hóf nám í teiknideild Myndlistarskóla Reykjavíkur sem þá var nýstofnuð.“ Hann segir Myndlistarskóla Reykjavíkur vera frábæran skóla og þar hafi hann mótað teiknistíl sinn. „Eftir útskrift bjó ég í London í hálft Teiknar hversdagsleikann Skissubókin er aldrei langt undan hjá Degi Sævarssyni teiknara. Á ferðum sínum rissar hann litfagrar og skemmtilegar myndir úr daglegu lífi sínu. „Það sem við tökum eftir í daglegu lífi okkar segir nefnilega mikið um okkur sjálf. Ætli markmið mitt með þessum teikningum sé ekki bara að skilja sjálfan mig betur,“ segir Dagur Sævarsson. MYND/ANTON BRINK Kona að reykja: Ég hef alltaf furðað mig á þessari hörku, að standa úti í stormi að reykja. Ætli það sé ekki einhvers konar íslenskur raunveru­ leiki að láta ekki veðrið stöðva sig. Myndin er teiknuð á Ice­ land Airwaves og á að túlka kraftinn sem fylgir rokkinu. Ég sá einu sinni mótorhjóla töff­ ara með dóttur sinni við hjólið sitt. Mér fannst eitthvað fallegt við þessa sjón svo ég teiknaði þau fljótlega upp og kláraði svo myndina þegar heim var komið. Einu sinni sá ég mann klæddan í hinn klassíska rokkgalla: hvítan bol, leðurjakka, rifnar gallabuxur og Con­ verse­skó. Maðurinn virkaði frekar raunamæddur og þessi minning af þessum ókunna manni sat einhvern veginn í mér. ár þar sem ég hélt utan um mynd- listarsmiðjur fyrir börn og unglinga. Þótt lífið í London væri áhugavert og spennandi saknaði ég samt Íslands allt of mikið svo ég kom fljótlega aftur heim. Ég hef unnið smá sem myndskreytir en teikna þó mest til að skemmta sjálfum mér.“ Hugljúf saga Þessa dagana vinnur Dagur að barna- bók með vini sínum, Sigurjóni Bjarna Sigurjónssyni, sem verður lauslega byggð á laginu um litlu Gunnu og litla Jón. „Þetta verður hugljúf saga um lífs- baráttu tveggja músa sem finna ástina þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Svo er ég að fara að útskrifast úr Listkennslu- deild Listaháskóla Íslands þannig að ætli ég verði ekki að lesa einhverjar flottar bækur í sumar til að undirbúa mastersritgerðina mína. Annars veit maður aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér en ég hef alltaf haft gaman af að kenna og ég ætla að halda því áfram. Svo væri auðvitað frábært að fá fleiri tækifæri til að myndskreyta bækur.“ Hluta teikninga Dags má skoða á www.dagursudden.wixsite.com/ dagurteiknar. S k e i f a n 3 j | S í m i 5 5 3 8 2 8 2 | w w w . h e i l s u d r e k i n n . i sVasar · Diskar · Lampar · Pottar · Tesett · Myndir · o.m.fl. Hágæða postulín blómapottar 20% afsláttur Margar stærðir Kínverskar gjafavörur O p i ð l a u g a r d a g o g s u n n u d a g f r á k l . 1 1 . 0 0 t i l 1 6 . 0 0 Sumartilboð 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . a p r í l 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 2 9 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 8 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C C 2 -F A B 8 1 C C 2 -F 9 7 C 1 C C 2 -F 8 4 0 1 C C 2 -F 7 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.