Fréttablaðið - 29.04.2017, Síða 75
Breyting á skipulagi í Kópavogi
Nónhæð. Breyting á aðalskipulagi. Tillaga á vinnslustigi.
Vakin er athygli á því að á fundi skipulagsráðs Kópavogs 18. apríl 2017 var lögð fram tillaga á vinnslustigi að
breytingu á aðalskipulagi Kópavogs á kolli Nónhæðar. Nánar tiltekið mun breytingin ná til svæðis sem afmar-
kast af Arnarnesvegi í suður, Smárahvammsvegi í austur, lóðamörkum húsa sunnan Foldarsmára í norður og
húsagötu að Arnarsmára 32 og 34 í vestur. Tillagan er á vinnslustigi og í henni felst breyting á landnotkun og
talnagrunni Nónhæðar sem skv. núgildandi aðalskipulagi er samfélagsþjónusta og opin svæði en breytist í
íbúðarbyggð og opin svæði sem munu nýtast almenningi til leikja og útiveru. Áætlað er að fjöldi íbúða verði
allt að 140. Vinnslutillagan er sett fram í greinargerð dags. í mars 2017. Skipulagsráð samþykki að framlögð
drög verði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sambærileg breytingartillaga var
kynnt á almennum kynningarfundi í Smáraskóla 9. febrúar 2017. Stefnt er að því að ofangreind tillögudrög
verði samþykkt í formlega auglýsingu inna fárra vikna. Tillögudrögin eru til sýnis í afgreiðslu skipulags- og
byggingardeildar Umhverfissvið í Fannborg 6 og á heimasíðu bæjarins www.kopavogur.is. Fimmtudaginn
4. maí og mánudaginn 8. maí 2017 milli kl. 17:00 og 18:00 verða starfsmenn skipulags- og byggingardeildar
Umhverfissviðs með opið hús í Fannborg 6 2h þar sem drögin verða kynnt sérstaklega þeim sem þess óska.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
ÚTBOÐ
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í
sorphirðu í sveitarfélaginu 2017 – 2019.
Í verkinu felst tæming á sorp- og endurvinnsluílátum við
íbúðarhúsnæði og stofnanir ásamt flutningi á móttökustöð
og þjónustu við gámastöð.
Útboðsgögn fást send frá og með föstudeginum 28. apríl
2017. Sendið beiðni á arborg.sorphirduutbod2017@efla.is
og gefið upp nafn samskiptaaðila í útboði, símanúmer og
netfang.
Tilboðum skal skilað til EFLU verkfræðistofu, Austurvegi 1-5,
Selfossi fyrir kl 11.00 miðvikudaginn 17. maí 2017 og verða
þau opnuð þar.
Tillaga að deiliskipulagi fyrir
hafnarsvæðið á Hvammstanga.
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti þann 11. apríl 2017 að
auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið Hvammstanga
skv. 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010
Deiliskipulagssvæðið markast af Strandgötu, Brekkugötu og
Höfðabraut að vestanverðu og er um 11 ha. að stærð. Í tillögunni
er gerð grein fyrir nýjum og núverandi lóðum, byggingarreitum og
samgöngumálum.
Deiliskipulagstillagan ásamt greinargerð og fornleifaskýrslu liggur
frammi í Ráðhúsi Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5, 530
Hvammstanga frá og með þriðjudeginum 2. maí til og með 14. júní
2017. Þá verður deiliskipulagstillagan aðgengileg á heimasíðu
Húnaþings vestra: https://www.hunathing.is/is/thjonusta/skipu-
lags-og-byggingarmal/deiliskipulag
Athugasemdir og ábendingar við deiliskipulagstillöguna skulu
vera skriflegar. Þær skulu berast í síðasta lagi 14. júní 2017,
til skrifstofu Húnaþings vestra Hvammstangabraut 5, 530
Hvammstanga eða á netfangið: skrifstofa@hunathing.is þar sem
nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.
Húnaþing vestra, 29. apríl 2017.
Guðný Hrund Karlsdóttir
sveitarstjóri
Oddeyri
tillaga að rammahluta aðalskipulags
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að
rammahluta aðalskipulags Akureyrar fyrir Oddeyri, skv. 31. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið afmarkast af Glerá í norðri, Glerárgötu í
vestri, Strandgötu í suðri og til austurs nær svæðið að sjó.
Í rammahluta aðalskipulagsins er lögð fram heildstæð stefna
um þróun byggðar og er forsenda fyrir deiliskipulagsgerð
einstakra reita á svæðinu.
Haldinn verður kynningarfundur í Oddeyrarskóla mánu-
daginn 8. maí kl. 17:00. Íbúar og atvinnurekendur á
svæðinu eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Tillaga að rammahlutanum er aðgengileg í þjónustuanddyri
Ráðhúss Akureyrar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulags-
stofnun, Borgartúni 7b, frá 26. apríl til 7. júní 2017, svo að þeir
sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana
athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu
Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is/skipulagsdeild
undir: Auglýstar tillögur.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út
kl. 16:00 miðvikudaginn 7. júní og skal athugasemdum skilað
skriflega til Skipulagssviðs Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu
9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagssvid@akureyri.is) þar
sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram.
Sviðsstjóri skipulagssviðs
Dalvíkurbyggð
Útboð – hádegisverður fyrir Dalvíkurskóla
og Árskógarskóla 2017 - 2020
Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í
skólamáltíðir fyrir nemendur og starfsfólk í
skólum sveitarfélagsins frá og með skólaárinu
2017-2020. Um er að ræða grunnskólann á
Dalvík samtals um 270 nemendur/starfsmenn
og leik- og grunnskólann í Árskógi samtals um
46 nemendur/starfsmenn og leikskólann.
Nánari upplýsingar í útboðsgögnum sem afhent
verða í Ráðhúsi Dalvíkurbyggðar frá og með
þriðjudeginum 25. apríl gegn 3.500 króna gjaldi.
Tilboðum skal skilað í Ráðhús Dalvíkurbyggðar
eigi síðar en miðvikudaginn 24. maí, kl. 12.45 og
verða þau þá opnuð sama dag kl. 13:00 í fund-
arsal á 3. hæð í Ráðhúsinu að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar
Ráðhúsinu, 620 Dalvík.
TIL SÖLU
SLÁTTU- OG GARÐAÞJÓNUSTA
SUÐURLANDS
Sláttu- og garðaþjónusta Suðurlands ehf sem er
að hefja 25. starfsárið er til sölu
- Samningar eru fyrir meirihluta tekna
fyrirtækisins
- Góð afkoma
- Góð tækifæri til vaxtar
Allar frekari upplýsingar veitir :
Óskar Thorberg Traustason
Löggiltur fasteigna- og fyrirtækjasali
Fasteignasalan Bær, sími 659-2555
Netfang : oskar@fasteignasalan.is
Í samræmi við 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr.
123 2010 auglýsir Garðabær hér með forkynningu á
tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis í Garðabæ.
Svæðið sem skipulagið nær til eru göturnar
Hofslundur, Hörgslundur, Reynilundur, Heiðar-
lundur, Furulundur, Espilundur,Grenilundur,
Víðilundur, Einilundur, Hvannalundur, Skógar-
lundur, Asparlundur Gígjulundur, Þrastarlundur,
Hörpulundur og Efstilundur auk efsta hluta
Hofstaðabrautar og Karlabrautar. Við gerð tillögunnar
hefur verið leitast við að viðhalda þeim ákvæðum
sem voru hluti af upphaflegu skipulagi Lunda en
auk þess eru nú sett ákvæði um nýtingarhlutfall
íbúðarhúsa og skipulag leikskólalóðar Lundabóls.
Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdráttum og
í greinargerð.
Forkynning stendur yfir til 1. júní 2017.
Kynningarfundur verður haldinn í Flataskóla,
fimmtudaginn 11. maí klukkan 17:00.
Þar verður tillagan kynnt og fyrirspurnum svarað.
Á meðan á forkynningu stendur er hægt að koma
ábendingum til skipulagsstjóra sem einnig mun
svara fyrirspurnum um útfærslu tillögunnar. Öllum
ábendingum verður komið á framfæri við
skipulagsnefnd og bæjarstjórn, en vakin er athygli á
því að þær teljast ekki formlegar athugasemdir. Að
lokinni forkynningu verður tillagan lögð fram í
skipulagsnefnd og vísað þaðan til afgreiðslu
bæjarstjórnar. Þegar bæjarstjórn hefur samþykkt
að auglýsa tillögu að deiliskipulagi verður það gert
með áberandi hætti og gefst þá tækifæri til að gera
formlegar athugasemdir við tillöguna innan
athugasemdafrests.
Tillagan er aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar
www.gardabaer.is og í þjónustuveri Garðabæjar til
1. júní 2017.
Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar.
GARÐATORGI 7 • SÍMI 525 8500 • GARDABAER.IS
TILLAGA AÐ DEILISKIPULAGI LUNDA
FORKYNNING
ATVINNUAUGLÝSINGAR 27 L AU G A R DAG U R 2 9 . a p r í l 2 0 1 7
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
4
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
C
2
-F
5
C
8
1
C
C
2
-F
4
8
C
1
C
C
2
-F
3
5
0
1
C
C
2
-F
2
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K