Fréttablaðið - 29.04.2017, Page 92

Fréttablaðið - 29.04.2017, Page 92
Vegirnir sjálfir eru mismunandi, frá malbikuðum hrauð- brautum yfir í torsótta fjallavegi og allt þar á milli. Skellinöðrur og vespur eru á hverju götuhorni. Starri Freyr Jónsson starri@365.is Eiríkur í Mai Chau dal, rétt fyrir utan Hanoi. Hann flaug þremur dögum fyrr út til að undirbúa ferðina. Einn hápunktur ferðarinnar var heimsókn í afskekktan skóla hátt uppi í fjöllum Víetnams. Hópurinn gaf nemendum góðar og gagnlegar gjafir. Dong Van var einn af eftirminnilegustu viðkomustöðum ferðarinnar. Mótorhjólið er skemmtilegur fararskjóti þegar ferðast er víða í Asíu. Það þekkir Eiríkur Viljar Hallgrímsson Kúld vel en hann hefur á undanförnum árum ferðast um á mótorhjóli í Kína, Myanmar og Taílandi. Hann er nýlega kominn heim úr tíu daga mótorhjólaferð frá Víetnam en þá ferð skipulagði hann sjálfur í sam- vinnu við ferðaskrifstofuna Farvel. „Kynni mín af mótorhjólaferðum um Asíu byrjuðu eftir að ég lauk háskólanámi í sagnfræði en þá fór ég til Víetnams með tveimur vinum mínum. Við ákváðum að kaupa okkur mótorhjól og tókum mánuð í að hjóla frá norðri til suðurs.“ Rúmu ári síðar hélt hann til Kína þar sem hann ferðaðist um á mótorhjóli á þremur mánuðum um Kína og Myanmar. „Þar uppgötvaði ég fyrst fyrir alvöru mótorhjól sem ferðamáta og vildi ólmur miðla minni reynslu og upplifun með ferðaþyrstum Íslendingum.“ Innsýn í daglegt líf Ferðalag hópsins hófst í Hanoi, höfuðborg Víetnams, eftir stutt stopp í Bangkok. „Fyrsti dagurinn fór í að slaka á, safna orku og skoða Hanoi. Þar var nóg að sjá og skoða enda er borgin virkilega lifandi og skemmtileg. Degi síðar sóttum við hjólin okkar sem eru af gerðinni Honda 250crf en þau henta virki- lega vel fyrir vegina og slóðirnar í Norður-Víetnam.“ Í upphafi var tekinn tími til að venjast hjólunum í Hanoi og nágrenni, þá aðallega umferðinni en hún er einstök í alla staði að sögn Eiríks. „Næstu dagar fóru í að hjóla um sveitir og þorp Norður-Víet- nams, í gegnum hrísgrjónaakra og skóga, alveg þangað til við komum upp í fjöllin til Dong Van sem er bær við landamæri Kína. Þar stoppuðum við í tvo daga enda nauðsynlegt að hlaða batteríin og slaka á eftir góða keyrslu.“ Frítíminn var nýttur í að skoða landslagið, þvælast um markaði og borða nóg af dýrindis víetnömskum mat og kaffi. „Endurnærðir héldum við niður úr fjöllunum í átt að Ba Be þjóðgarðinum sem er þekktur fyrir að vera heimili margra mis- munandi þjóðernishópa. Þar gistum við í heimahúsi hjá fjölskyldu við Ba Be vatn og var virkilega gaman og áhugavert að fá innsýn í daglegt líf heimamanna. Morgunninn var tekinn eldsnemma, enda beið okkar langur og taugatrekkjandi hjóla- dagur inn í Hanoi aftur.“ Glaðir nemendur Eiríkur segir aðstæður fyrir mótorhjólafólk nokkuð góðar í Víetnam að því leyti að landið býður upp á hrikalega flottar og skemmti- legar hjólaleiðir. „Í suðri er hlýtt og rakt hitabeltisloftslag þar sem kaffiakrar og strandlengjur fá að njóta sín á meðan hrísgrjónaakrar og fjallgarðar eru meira áberandi í norðurhluta landsins. Vegirnir sjálfir eru mismunandi, frá malbik- uðum hraðbrautum yfir í torsótta fjallvegi og allt þar á milli. Skelli- nöðrur og vespur eru á hverju götu- horni og eru aðal samgöngutækin í Víetnam. Umferðin í borgunum getur að því leyti verið fremur þung þar sem rúmar 93 milljónir manna búa í Víetnam og nánast allir eru á vespum. Í sveitum landsins eru þó aðstæður allt aðrar, minni umferð, ferskt fjallaloft og framandi útsýni.“ Fyrir utan ferðalagið sjálft segir Eiríkur að hápunktur ferðarinnar hafi verið heimsókn í afskekktan skóla hátt uppi í fjöllum Víetnams. „Hópurinn tók sig til, keypti lita- og stílabækur, penna, nammi og fleira, útbjó litla poka og gaf öllum nemendum skólans sem voru um 40 talsins. Það var virkilega áhugavert að bera saman aðstöðu skólans við það sem við þekkjum hér heima á Íslandi. Hlutir líkt og stílabækur og pennar eru sjaldséðir í sveitum Víet- nams, þá sérstaklega í afskekktum fjallabæjum, og úr varð hjartnæm stund þegar við mættum á skóla- tíma og afhentum gjafapokana. Gleðin var mjög mikil, bæði hjá krökkunum og okkur!“ Indland heimsótt næst Næst á dagskrá hjá Eiríki er mótor- hjólaferð um hæstu fjallvegi heims á Indlandi. „Þá munum við fljúga til Delhí og halda þaðan til Manali sem er fjallabær í 2.000 metra hæð. Þar munum við hoppa á hin fallegu og sígildu Royal Enfield hjól og halda upp í Kasmírhérað Indlands. Þetta verður tólf daga ferð þar sem farið verður í gegnum blómlega dali með blaktandi bænaflöggum, hátt upp í hlíðar Himalajafjalla. Hápunktur- inn, bókstaflega, verður svo Khar- dung La, margrómaður fjallvegur í rúmlega 5.300 metra hæð, einn hæsti vegur heims sem aðgengilegur er mótorhjólum. Ég er sannfærður um að þetta verður mögnuð ferð í alla staði og upplifun sem hópurinn mun seint gleyma.“ Á mótorhjólum um Víetnam Eiríkur Viljar er nýlega kominn heim úr tíu daga mótorhjólareisu um Víet- nam. Þar eru aðstæður almennt nokkuð góðar og útsýnið ægifagurt. Margar bækur hafa verið skrifaðar um ferðalög á mótorhjólum. Margar bækur hafa verið skrifaðar um ferðalög á mótorhjólum. Hér eru þrjár sem vert er að skoða áður en haldið er af stað, nú eða bara til að láta sig dreyma. Jupiter’s Travel eftir Ted Simon sem fór í heimsreisu á mótorhjóli snemma á áttunda áratugnum. Hann fór til meira en 45 landa á mótorhjóli og endurtók síðan ferðina þegar hann var orðinn sjötugur. Lýsingar hans á ferðinni þykja einstaklega lifandi og skemmtilegar. Long Way Round eftir leikarana Ewan McGregor og Charley Boorman en þeir fóru á BMW-mótorhjólum frá London til New York. Hvor um sig skrifaði ferðasögu og er gaman að lesa um skemmtilega karaktera sem þeir hittu á leiðinni. Þeir fara ekki djúpt í efnið en lesandinn finnur hversu gaman þeir höfðu af ferðalaginu. Mótorhjóladagbækurnar eftir Ernesto „Che“ Guevara og Alberto Granada um ferð þeirra um Suður- Ameríku er löngu orðin klassík. Við lestur hennar kemur fram hvernig ferð á vegum úti getur breytt fólki, ólíkt flugferðum. Þetta er kraftmikil og skemmtileg bók. Bækur um mótorhjólaferðalög Sýningin verður haldin í Brákarey í Borgarnesi. Mótorhjólaklúbburinn Raftar í Borgarnesi og Fornbíla-fjelag Borgarfjarðar standa fyrir Bifhjóla- og fornbílasýningu 2017 í Brákarey í Borgarnesi laugar- daginn 13. maí frá klukkan 13 til 17. Ýmislegt skemmtilegt ber fyrir augu gesta en aðgangur er ókeypis. Haldið verður upp á 50 ára afmæli Camaro, þá mætir Snigill númer 1, Hilmar Lúthersson, á staðinn og haldin verður svifnökkvasýning. Sýningin er ávallt vel sótt Bifhjóla- og fornbílasýning í Brákarey enda hafa bæði ungir og aldnir gaman af því að skoða falleg mótorhjól og glæsilega fornbíla. Boðið verður upp á kaffi- og vöfflusölu fyrir gesti og gangandi. Allir eru velkomnir. 6 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . a p r í l 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 2 9 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 8 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C C 2 -E 6 F 8 1 C C 2 -E 5 B C 1 C C 2 -E 4 8 0 1 C C 2 -E 3 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.