Fréttablaðið - 29.04.2017, Side 94

Fréttablaðið - 29.04.2017, Side 94
Það er eitthvað við mótorhjól, hljóðin, lyktina og stemninguna í kringum þau sem heillar mig mikið. Ásrún Mjöll Stefánsdóttir Ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is Á góðum degi í Evrópureisunni en þá heimsótti Ásrún tíu lönd og svaf í hengirúminu sínu þegar hún þurfti hvíld. Ég tók prófið í lok sumars 2014, og keypti svo hjól vorið 2015. Núna á ég hjól af gerðinni Honda Shadow, en það væri gaman að skipta því út og eignast annað í staðinn sem ég gæti jafnvel dundað mér við að breyta. Enn sem komið er hjóla ég mest á götunni, en stefni á að æfa mig í motocrossi til þess að geta síðan farið í ferðalög hvert sem er,“ segir Ásrún Mjöll Stefánsdóttir, mótorhjólakappi með meiru. Ásrún er stödd í Taílandi þar sem hún nýtur þess að ferðast um á mótorhjólinu og borða góðan mat. „Á ferð minni núna í Taílandi hef ég notið þess að prófa hin ýmsu mótorhjól og farið í nokkrar ferðir um landið. Það sem stendur upp úr er vikuferð um norðurhluta lands- ins á hjóli af gerðinni Kawasaki Versys. Þetta er í annað sinn sem ég hjóla hér en við mamma komum hingað þar síðustu jól og hjóluðum aðeins,“ segir Ásrún. Þetta er þó fjarri því hennar fyrsta mótorhjóla- ferð. „Ég hef hjólað bæði heima, farið hringinn og styttri ferðir. Fyrsta ferðin mín var hringferð um Ísland með stoppi á Eistnaflugi og hún var einstaklega lærdómsrík. Ég fór með góðum hópi og lærði margt. Það fór þó ekki betur en svo að ég datt á fyrsta degi, á brú yfir Jökulsá. Ég slasaðist sem betur fer ekki og komst í Neskaupstað. Þó var hjólið heldur laskað en með góðri aðstoð komst ég allan hringinn reynslunni ríkari. Eftir þessa ferð varð ekki aftur snúið. Síðasta sumar fór ég ein í tveggja mánaða mótorhjólaferð um Evrópu. Ég heimsótti tíu lönd og hjólaði um 8.000 kílómetra, gisti í hengirúminu mínu, klifraði og kynntist fullt af áhugaverðu fólki. Vegirnir úti voru unaðslegir, sér- staklega í Þýskalandi og Austurríki, en fjallvegirnir í Frakklandi voru ævintýralegir. Það var dásamlegt að hafa ekkert skýrt plan, lítið af farangri, hjóla bara þangað sem mig lysti og hengja svo upp hengirúmið góða þegar ég varð þreytt.“ Spurð hvað heilli mest við mótorhjólin segist Ásrún upp- lifa umhverfið á allt annan hátt á mótorhjóli en innilokuð í bíl. „Það er ótrúleg frelsistilfinning að keyra mótorhjól, þú ert svo nálægt umhverfinu og upplifunin af því öllu er mjög sterk. Það er eitthvað við mótorhjól, hljóðin, lyktina og stemninguna í kringum þau sem heillar mig mikið. Svo hefur það mikið að segja hversu mörgum góðum vinum ég hef kynnst í gegnum þau,“ segir hún og vill ekki kannast við að gefa óhóflega í. „Ég fer oftast varlega.“ Áttu einhver önnur áhugamál en mótorhjól? „Ég klifra flesta daga, finnst gaman að elda og dansa og fer í sveitina við hvert tækifæri. Mér finnst fátt betra en góð úti- lega, helst undir berum himni, ekki verra að geta sofið í hengirúminu en nota þó tjaldið mikið. Það er svo gaman að vera úti allan sólarhring- inn, og allt bragðast betur eftir góða fjallgöngu.“ Fer oftast varlega Ásrún Mjöll Stefánsdóttir veit ekkert betra en að ferðast um ókunn lönd á mótorhjólinu með óljóst ferða- plan og lítið ann- að en hengirúm í farangrinum. BETRA START Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. Exide rafgeymarnir fást hjá:PIPA R\ TB W A • S ÍA • 1 64 68 7 MEÐ EXIDE RAFGEYMUM 8 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . a p r í l 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 2 9 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 8 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C C 2 -D 3 3 8 1 C C 2 -D 1 F C 1 C C 2 -D 0 C 0 1 C C 2 -C F 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 8 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.