Fréttablaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 106
Listaverkið
Gátur
Bragi Halldórsson
247
„Hvað skyldi þetta nú vera,“ sagði Konráð og tók upp pappírsblað með
tölustöfum og undarlegum táknum sem hann sá liggja á jörðinni.
„Mér sýnist þetta vera stærðfræðiþraut,“ sagði Lísaloppa. „En þessi þarna
þrjú tákn eru ekki tölustafir svo það getur nú varla verið,“ sagði Konráð.
„Það er nú einmitt þrautin,“ sagði Lísaloppa. „Að finna út fyrir hvaða tölustafi
þessi þrjú tákn standa, svo þessi fjögur dæmi gangi upp,“ bætti hún við.
Getur þú reiknað út fyrir hvaða tölustafi táknin þrjú standa,
svo dæmin gangi upp?
Ragnhildur Sigurlaug er 10
ára og á heima á Grænumýri í
Skagafirði. Hún byrjaði þriggja
ára að æfa á fiðlu og finnst það
skemmtilegt. Á svæðistónleikum
á Egilsstöðum nýlega var hún
valin til að flytja einleiksatriði
á Nótunni, uppskeruhátíð tón-
listarskólanna í Hörpu og hlaut
viðurkenningu fyrir framúr-
skarandi flutning.
Hvernig leið henni? Ég var
bæði spennt og ánægð. Það var
geggjað gaman að spila í Eldborg.
Ég spilaði Húmoresku eftir Dvo-
rak og var bara pínu stressuð.
Hefur þú spilað áður í Hörpu? Já,
einu sinni á Landsmóti strengja-
nemenda, þá var ég reyndar
svo lítil að ég sá ekki þann sem
stjórnaði hljómsveitinni!
Hvar lærir þú? Tónlistarskólinn
minn er í Varmahlíð sem er ekkert
svo langt frá Grænumýri, stundum
fer ég á Sauðárkrók í samspil og
það er lengra. Ég er líka að læra
söng hjá Helgu Rós Indriðadóttur
óperusöngkonu í Varmahlíð.
Hvaða fag er í uppáhaldi í grunn-
skólanum? Mér finnst heimilis-
fræðin skemmtilegust. Annars
finnst mér gaman að læra allt í
skólanum.
Fleiri áhugamál? Hestamennska,
dans, dýr, lestur og að teikna
og mála, baka, smíða og sauma.
Bara alveg heill hellingur.
Ertu mikið fyrir búskapinn?
Já, við búum á sauðfjárbúi og
eigum um 600 kindur og 27
geitur, nokkur hross, hunda
og kanínu. Núna er að byrja
sauðburður og það eru komin
nokkur lömb og fullt af kið-
lingum. Svo eru líka sjö hvolpar.
Ég hef verið í reiðtímum á
Varmalæk á hestinum mínum
henni Eldingu og okkur gengur
bara vel saman.
Það skrítnasta sem hefur komið
fyrir þig? Hmmm, þetta er erfið
spurning, en eitt af því fyndnasta
var þegar ég var lítil og datt með
andlitið beint ofan í hrossaskíts-
hrúgu!
Fiðlusnillingur
sem elskar dýr
Ragnhildur Sigurlaug hefur gaman af mörgu, meðal annars dýrunum á
bænum. Hér er hún með lítinn kiðling. Mynd/KRiStín H. BeRgSdóttiR
Ragnhildur Sigur-
laug Guttorms-
dóttir spilaði
framúrskarandi
vel á fiðlu á tón-
listarhátíðinni
Nótunni í Hörpu
og fékk viður-
kenningu fyrir.
Mynd eftir Victoríu Uyen To Bui í 4. bekk Háaleitisskóla.
Hvað hefur höfuð en engin augu
eða eyru?
Hvað er það sem maður er
alltaf með á hægri hendinni þegar
maður fer út að labba?
Hvaða karl hefur hvorki eyru né
heila?
Hvers vegna eiga kokkar og bak-
arar hvítar húfur?
Hver er það sem er alltaf með
kamb en greiðir sér þó aldrei?
Hvers vegna lítur þjófurinn aftur
fyrir sig, þegar lögreglan eltir
hann?
Svör:
Naglinn
Fingurnir.
Snjókarlinn.
Til að hafa þær á höfðinu.
Haninn.
Vegna þess að hann hefur ekki
augu í hnakkanum.
KOMDU
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
K
V
IK
A
2 9 . a p r í l 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r46 H e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
2
-B
5
9
8
1
C
C
2
-B
4
5
C
1
C
C
2
-B
3
2
0
1
C
C
2
-B
1
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K