Morgunblaðið - 05.01.2017, Blaðsíða 35
FRÉTTIR 35Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Héraðsdómur Austurlands hefur
dæmt tæplega fertugan karl-
mann í 4 mánaða fangelsi fyrir
að aka lyftara um götur Hafnar í
Hornafirði, sem ætlaðar eru al-
mennri umferð. Maðurinn hafði
áður verið sviptur ökuréttindum
ævilangt og hlotið fangelsisdóma
fyrir umferðarlagabrot.
Fram kemur í dómnum að
maðurinn hafi í júlí sl. sumar ek-
ið lyftaranum frá mjölbræðslu
Skinneyjar-Þinganess að sorplos-
unarstöð við Sæbraut og aftur til
baka. Lögreglan stöðvaði öku-
ferðina á Ófeigstanga.
Maðurinn hefur sjö sinnum áð-
ur hlotið dóma og fimm sinnum
gengist undir sátt hjá lögreglu-
stjóra fyrir brot á umferðar-
lögum og lögum um ávana- og
fíkniefni. Hann var m.a. dæmdur
í hálfs árs fangelsi árið 2015 fyr-
ir ítrekuð brot. Maðurinn mætti
ekki fyrir dóminn við þingfest-
ingu málsins og var því litið svo
á að hann hefði viðurkennt brot
sitt.
Ók lyftara
á umferðar-
götum
Oft dæmdur fyrir
umferðarlagabrot
Morgunblaðið/Ómar
Höfn Maðurinn, sem var ökurétt-
indalaus, ók lyftara um götur.
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt fimmtugan hollenskan karl-
mann, Yunes Biranvand, í 18 mán-
aða fangelsi og til að greiða allan
sakarkostnað, tæplega 1,5 milljónir
króna, fyrir að flytja 987 grömm af
kókaíni til landsins nú í haust.
Maðurinn var stöðvaður á Kefla-
víkurflugvelli í október á síðasta
ári þegar hann kom hingað með
flugvél frá Kaupmannahöfn. Fram
kemur í dómi héraðsdóms að mað-
urinn hafi falið tæpt kíló af kókaíni
í 101 pakkningu í líkama sínum.
Hafði kókaínið að meðaltali 71%
styrkleika að því er kemur fram í
dómi héraðsdóms.
Var burðardýr
Maðurinn játaði sök. Dómurinn
féllst á þá staðhæfingu mannsins
að hann hefði ekki verið eigandi
fíkniefnanna heldur tekið að sér að
flytja þau hingað til lands gegn
þóknun.
Síðasta verðkönnun sem SÁÁ
gerði um verð á fíkniefnum var
birt í september árið 2015, en þá
var verð á grammi af kókaíni áætl-
að um 16 þúsund krónur. Sam-
kvæmt því hefði verið hægt að selja
fíkniefnið sem Hollendingurinn
flutti hingað til lands fyrir að
minnsta kosti 16 milljónir króna
óþynnt.
Hollendingurinn hefur setið í
gæsluvarðhaldi hér á landi frá því
hann var handtekinn í október.
Fram kemur í dómi héraðsdóms að
Hollendingurinn var árið 2006
dæmdur í fimm ára fangelsi í Sví-
þjóð fyrir að flytja kókaín þangað.
Reyndi að smygla kókaíni
Morgunblaðið/Ómar
Leifsstöð Hollendingurinn var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Faldi 101 pakkningu með fíkniefnum í líkama sínum
Matvælastofnun
hefur kært til
lögreglu meinta
kynferðislega
misnotkun á
hrossum í hest-
húsi í Garðabæ.
Eigendur
hrossanna til-
kynntu málið til
Matvælastofnunar. Þeir fundu sleipi-
efni, olíur og plasthanska í hesthús-
inu. Engir áverkar fundust á hross-
unum en ummerki um kynferðislega
misnotkun fundust á að minnsta
tveimur hryssum, að sögn Silju Unn-
arsdóttur dýralæknis sem er einnig
einn af eigendunum. Enginn liggur
undir grun að svo stöddu.
Í lögum um velferð dýra, sem tóku
gildi 1. janúar 2014, var í fyrsta sinn
bundið í lög bann við kynferðislegri
misnotkun á dýrum.
Meint mis-
notkun á hest-
um kærð
FJALLAGRÖSUMMEÐ
Íslensk náttúra.Blikandi dögg og útsýn til allra átta.Þúveður yfir tifandi ána,áleiðis
að settumarki.Framundan rís Herðubreið; drottningin sjálf,stolt í hásæti sínu.
Við höfumnýtt okkur íslensk fjallagrös frá upphafi byggðar.Heilnæm og frískandi
hafa þau haft áhrif til góðs á líkama og sál,handtínd í íslenskri náttúru.Tópas hefur
sömuleiðis fylgt okkur gegnum tíðina.Samanmunu þau gera það áfram.