Morgunblaðið - 05.01.2017, Page 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2017
Skoðið úrvalið á
dimmalimmreykjavik.is
Laugavegi 53 | Sími 552 3737
Opið virka daga 10-18 og laugard. 10-17
DIMMALIMM
Útsalan
er hafin
Yfir 125.000 Írakar hafa þurft að flýja heimili sín
í Mosúl síðan í október á nýliðnu ári. Þetta kem-
ur fram í upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum
sem birtar voru í gær. Um 9000 manns hafa flúið
borgina á fjórum dögum en átök milli hersins og
hryðjuverkamanna Ríkis íslams hafa færst í
aukana. AFP-fréttastofan greinir frá fjölda fólks
sem flýr fótgangandi og myndin sýnir íraska
fjölskyldu á flótta framhjá skriðdrekum hersins.
Átök milli hersins í Írak og hryðjuverkamanna harðna
AFP
125.000 manns hafa flúið frá Mosúl
Sérstök nefnd, sem skipuð var af stjórnvöldum í
Búrma, skilaði í gær af sér bráðabirgðaniðurstöð-
um, þar sem því var hafnað að herinn og lögreglu-
lið landsins hefðu framið þjóðarmorð á Rohingya-
múslímum. Niðurstöðurnar stangast á við skýrslu,
sem mannréttindasamtökin Amnesty Internation-
al gáfu út um miðjan síðasta mánuð.
Tugir þúsunda múslima hafa flúið heimili sín
eftir að herinn hóf aðgerðir í Rakhine-fylki í norð-
vesturhluta landsins í október. Aðgerðirnar voru
viðbrögð við árásum á lögreglustöðvar í fylkinu.
Talið er að nokkrir tugir hafi látist í aðgerðum
hersins, og hefur flóttafólk, sem saman er komið í
nágrannaríkinu Bangladess, sakað her og lög-
reglulið Búrma um að hafa staðið í ránum og grip-
deildum, íkveikju, nauðgunum og pyndingum
gegn sér.
Ríkisstjórn Búrma, sem lýtur forystu Aung San
Suu Kyi, friðarverðlaunahafa Nóbels, hefur hafn-
að ásökununum. Setti ríkisstjórnin nefndina á fót
til þess að kanna hvað væri rétt í þessu máli, og á
hún að skila lokaskýrslu sinni í lok mánaðarins.
Það þykir draga nokkuð úr trúverðugleika
skýrslunnar, að einungis eru liðnir nokkrir dagar
síðan myndband fór um samfélagsmiðla, þar sem
nokkrir lögreglumenn sáust berja þorpsbúa, sem
tilheyrðu Rohingya-múslímum, til óbóta. Hefur
myndbandið valdið miklum óhug og ýtt undir
gagnrýni á stjórnvöld. Voru nokkrir lögreglu-
menn handteknir í kjölfarið.
Þá hefur nefndin einnig verið gagnrýnd fyrir
það, að hún segist enn eiga eftir að kanna ásakanir
um íkveikju og pyntingar, auk þess sem að „ónæg
sönnunargögn“ væru fyrir ásökunum um nauðg-
anir lögreglumanna. Var sökinni fyrir ástandinu í
staðinn skellt á erlenda öfgamenn.
Hefur verið meinað um borgararéttindi
Afstaða yfirvalda í Búrma er sú að Rohingya-
múslímar séu flestallir ólöglegir innflytjendur frá
Bangladess, frekar en sérstakt þjóðarbrot í
Búrma. Talið er að um ein milljón Rohingya-músl-
íma búi í Búrma, en þeim hefur öllum verið neitað
um ríkisborgararétt og þegnréttindi, jafnvel þeg-
ar þeir geta rakið ættir sínar aftur um margar
kynslóðir. Þá er þeim meinað um aðgang að heil-
brigðis- og menntakerfi landsins.
sgs@mbl.is
Engin merki um þjóðarmorð
Nefnd skipuð af stjórnvöldum í Búrma hafnar því að Rohingya-múslímar hafi
verið ofsóttir Amnesty segir herinn standa fyrir morðum og nauðgunum
AFP
Umdeild skýrsla Sérstök nefnd hefur hafnað því
að stjórnvöld í Búrma hafi framið þjóðarmorð.
Tyrknesk yfirvöld hafa nú borið
kennsl á árásarmanninn sem varð 39
manns að bana á næturklúbbnum
Reia í Istanbúl á gamlárskvöld.
„Við höfum komist að því hver ber
ábyrgð á skotárásinni í Istanbúl. Að-
gerðir til að hafa hendur í hári hans
halda áfram,“ sagði Mevlut Cavu-
soglu, utanríkisráðherra Tyrklands,
í samtali við fréttastofuna Anadolu í
gær, sögn AFP. Hann greindi þó
ekki frá nafni árásarmannsins og
veitti ekki frekari upplýsingar.
„Húsleit var framkvæmd á heimili
hans,“ sagði hann og bætti við að þar
hefði komið í ljós að árásin hefði ver-
ið „fagmannlega“ skipulögð.
Ríki íslams lýsti því yfir á mánu-
dag að samtökin hefðu staðið fyrir
ódæðisverkinu. Er þetta í fyrsta
skipti sem talið er víst að samtökin
beri ábyrgð á stórfelldri hryðju-
verkaárás í Tyrklandi „Markmiðið
var skýrt – að skapa sundrungu og
umturna samfélaginu,“ sagði Recep
Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands,
í gær í ræðu í forsetahöllinni. Hann
sagði á nýársdag að þjóðin myndi
standa sterk og halda stillingu sinni.
36 manns nú í haldi
Af þeim 39 sem létust voru 27 er-
lendir ríkisborgarar, þar á meðal
fólk frá Líbanon, Sádi-Arabíu, Ísr-
ael, Jórdaníu, Írak, Túnis og Mar-
okkó. Þá hafa 36 manns þegar verið
handteknir vegna málsins en árásar-
maðurinn sjálfur gengur enn laus.
Alls eru ellefu konur á meðal þeirra
sem eru í haldi lögreglu en heimildir
herma að þær komi úr þremur fjöl-
skyldum. Talið er að einhverjir
hinna handteknu hafi búið á heimili
árásarmannsins.
Yfirvöld framlengdu einnig yfir-
lýsingu um neyðarástand í landinu
um þrjá mánuði, en hún hefur verið í
gildi frá því að tilraun var gerð til
valdaráns í landinu.
Vita hver gerði árásina
Greina ekki enn
frá nafni hans en
herða aðgerðir
AFP
Ógn Tyrkneskur lögreglumaður
stendur vörð við skemmtistaðinn.
Ísraelski hermaðurinn Elor Azaria,
sem skaut palestínskan árásar-
mann til bana eftir að hann hafði
verið afvopnaður og særður, var
dæmdur fyrir manndráp. Atvikið,
sem átti sér stað í Hebron á Vest-
urbakkanum, náðist á myndband
þar sem glögglega sést hvar Azaria
skýtur hinn rúmlega tvítuga Abdul
Fatah al-Sharif þar sem hann ligg-
ur særður á götu. Rétt áður hafði
hinn látni stungið ísraelskan her-
mann með hnífi.
Azaria sagðist fyrir dómi hafa
haldið að Sharif væri klæddur
sprengjuvesti en ákærendur sögðu
hann hafa verið að hefna sín.
Réttarhöldin vöktu mikla athygli
og hafa valdið mikilli sundrungu á
meðal Ísraela, að sögn Yolande
Knell, fréttamannns BBC í Tel
Aviv. Efnt hefur verið til mótmæla
til stuðnings hermanninum og
margir stjórnmálamenn lýstu yfir
stuðningi við Azaria. Hins vegar
var ísraelski herinn snöggur að
sverja atvikið af sér, það væri ekki
til vitnis um það hvernig ísraelski
herinn hagaði sér.
ÍSRAEL
Hermaður dæmdur
fyrir manndráp
AFP
Ósáttir Átök brutust út við dómhúsið
þegar beðið var dómsuppkvaðningar.
Bandaríski
fjöldamorðing-
inn Charles Man-
son er alvarlega
veikur og hefur
verið fluttur á
sjúkrahús. Þetta
kemur fram í
frétt AFP en
ekki kom þar
fram hvað hrjáir
hann.
Charles Manson er 82 ára gamall
og var dæmdur til dauða meðal
annars fyrir morðið á leikkonunni
Sharon Tate, eiginkonu kvik-
myndaleikstjórans Romans Pol-
anski, en hún var ófrísk. Manson
fór fyrir sértrúarsöfnuði sem
framdi fjölda annarra morða árið
1969. Dómnum var síðar breytt í
lífstíðarfangelsi.
Manson var fluttur úr Corcoran-
ríkisfangelsinu í Kings-sýslu í Kali-
forníu á sjúkrahús í Bakersfield, að
sögn fréttaveitunnar TMZ.
BANDARÍKIN
Charles Manson
fluttur á sjúkrahús
Charles
Manson