Fréttablaðið - 25.11.2017, Blaðsíða 86
Í dag, 25. nóvember, er alþjóð-legur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum. Hann markar jafnframt upphaf sextán daga átaks til vitund-arvakningar um kynbundið
ofbeldi. Ákvörðunin um þennan
baráttudag var tekin á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna síðla árs
1999 og var dagsetningin valin með
það fyrir augum að minnast Mira-
bal-systranna fá Dóminíska lýðveld-
inu. Þrjár þeirra voru einmitt myrtar
á þessum degi árið 1960.
Morðin á systrunum vöktu
heimsathygli á sínum tíma, einkum
þó í löndum Rómönsku-Ameríku.
Hætt er þó við að nöfn þeirra séu
flestum Evrópubúum gleymd í dag.
Saga þeirra er þó merkileg og sam-
tvinnuð dapurlegri stjórnmálasögu
heimalands þeirra á tuttugustu öld.
Dóminíska lýðveldið er ríki á
austurhluta eyjunnar Hispanjólu í
Karíbahafinu, en Haítí er á vestur-
hlutanum. Eftir að evrópskum yfir-
ráðum lauk var gerð skammvinn
tilraun til sameiningar landanna
tveggja á fyrri hluta nítjándu aldar.
Sú tilraun fór út um þúfur og voru
ýfingar milli ríkjanna tveggja um
langt árabil, sem mótað hafa sögu
svæðisins.
Dóminíska lýðveldið hefur eins
og önnur ríki í þessum heimshluta
fallið undir skilgreint áhrifasvæði
Bandaríkjastjórnar, sem hefur
leynt og ljóst áskilið sér rétt til að
hlutast til um málefni viðkomandi
landa. Eftir að Bandaríkin tóku við
greftri Panama-skurðarins árið 1904
og luku honum áratug síðar jókst
áhugi þeirra á málefnum Hispan-
jólu til mikilla muna. Bandaríkja-
stjórn var mjög í mun að tryggja að
evrópsk ríki kæmust ekki til áhrifa
í Dóminíska lýðveldinu og á Haítí
og gætu þannig ógnað umferð um
skipaskurðinn.
Svikull herforingi
Fyrstu áratugir tuttugustu aldar
einkenndust af miklum pólitískum
óróa í Dóminíska lýðveldinu, með
valdaránum, uppreisnartilraunum
og pólitískum morðum. Bandarísk
yfirvöld fylgdust grannt með og
gripu reglulega inn í atburðarásina.
Þannig hernámu Bandaríkjamenn
landið vorið 1916 og réðu þar
ríkjum næstu sex árin. Frjálsar for-
setakosningar voru loks haldnar í
Dóminíska lýðveldinu árið 1924 og
við tók skammvinnt stöðugleika-
tímabil.
Árið 1930 hugðist forsetinn leita
eftir endurkjöri, en andstæðingar
hans höfðu annað í huga. Rafael
Trujillo var metnaðarfullur her-
foringi sem náð hafði æðstu met-
orðum í hernum þrátt fyrir að vera
rétt tæplega fertugur. Hann gerði
leynilegt samkomulag við leiðtoga
uppreisnarmanna sem höfðust við
í sveitum landsins. Uppreisnar-
liðið gerði árás á höfuðborgina
Santo Domingo, en Trujillo fyrir-
skipaði hernum að aðhafast ekkert.
Forsetinn var hrakinn í útlegð en
uppreisnarmenn launuðu Trujillo
greiðann með því að styðja hann
í forsetakosningunum í kjölfarið.
Með hjálp uppreisnarmanna og
hersins voru mögulegir mótfram-
bjóðendur Trujillos hræddir frá því
að taka þátt í kosningunum, sem
urðu hreinn skrípaleikur. Trujillo
var lýstur forseti með 99 prósentum
atkvæða og hófst þar með langur og
blóðugur valdaferill hans.
Trujillo breytti Dóminíska lýð-
veldinu í eins flokks ríki, þar sem
aðrar stjórnmálahreyfingar voru
bannaðar og nær útilokað að fá
embætti eða ná árangri í þjóðfélag-
inu nema með aðild að flokknum.
Stjórnarfarið einkenndist af skefja-
lausu ofbeldi gegn öllum þeim sem
voguðu sér að efast um ágæti for-
setans eða gagnrýna hann á nokk-
urn hátt.
Annað einkenni Truji l lo-
stjórnarinnar var hömlulaus per-
sónudýrkun á leiðtoganum. Nafni
höfuðborgarinnar og hæsta fjalls
landsins var breytt og hvort tveggja
kennt við leiðtogann mikla. Götur,
bæir og opinberar byggingar voru
nefnd upp á nýtt foringjanum
eða ættmennum hans til heiðurs.
Trujillo lét sér ekki nægja vegtyll-
urnar, heldur stjórnaðist hann af
gríðarlegri ágirnd. Hann dró sér
óhemjuháar upphæðir úr sjóðum
ríkisins og sífellt fleiri svið atvinnu-
lífsins komust með tímanum undir
stjórn hans og fjölskyldumeðlima.
Á skömmum tíma komst Trujillo í
hóp ríkustu manna veraldar.
Ætla mætti að svo skefjalaus sjálf-
taka forsetans hefði dugað til þess
að snúa almenningi gegn stjórn
hans. Efnahagslegar aðstæður voru
hins vegar hagstæðar og hagvöxtur
mikill í mörgum ríkjum Rómönsku-
Ameríku. Trujillo-stjórnin gat því
makað krókinn en á sama tíma
staðið fyrir ýmsum uppbyggingar-
verkefnum sem voru til vinsælda
fallin. Órói og innanlandserjur ára-
tuganna á undan urðu jafnframt
til þess að ýmsir voru til í að styðja
stjórn „sterks leiðtoga“ sem stýrði
með járnhnefa.
Þjóðarmorð
Trujillo greip einnig til þess ráðs,
sem reynst hefur einræðisherrum
vel á öllum tímum, að spila inn á
þjóðernishyggju og skapa sameigin-
legan óvin. Þann óvin fann Trujillo í
fátækum íbúum í landamærahéruð-
unum, sem áttu uppruna sinn að
rekja til Haítí. Árið 1937 rann upp
viðbjóðslegasta tímabilið í sögu
Trujillo-stjórnarinnar – og er þó af
ýmsu að taka – þegar hernum var
fyrirskipað að drepa landsmenn
sem ættaðir væru frá Haítí, hvar sem
til þeirra næðist.
Við tók skelfileg sláturtíð þar sem
hersveitir fóru um og drápu líklega
á bilinu 20-30.000 manns á fáeinum
dögum. Flestir voru stungnir með
byssustingjum, því talið var að of
auðvelt yrði að rekja drápin til hers-
ins ef notast væri við byssukúlur.
Atburðir þessir hafa gengið undir
nafninu „steinselju-fjöldamorðin“ í
Dóminíska lýðveldinu. Byggist það
á lífseigri flökkusögn um að her-
menn stjórnarinnar hafi stöðvað
fólk af handahófi, sýnt þeim stein-
seljublöð og beðið um að segja um
hvers konar jurt væri að ræða. Átti
framburðurinn á nafni plöntunnar
að fletta ofan af því hvort viðkom-
andi væri í raun Haítíbúi og því rétt-
dræpur.
Hin svívirðilegu þjóðarmorð
Trujillo-stjórnarinnar ollu ráða-
mönnum í Washington nokkru
hugarangri, en þó mátu Banda-
ríkjamenn það sem svo að hags-
munum þeirra væri betur borgið
með Trujillo við völd. Á sama hátt
var Bandaríkjastjórn lítt skemmt
yfir fregnum af óhófslífi Ramfis
Trujillo, sonar einræðisherrans, í
Hollywood á árunum upp úr 1950.
Glaumgosinn Ramfis, sem gerður
var að ofursta í dóminíska hernum
aðeins fjórtán ára gamall, átti að
taka við veldi föður síns, en kaus
fremur að lifa ljúfa lífinu innan um
kvikmyndastjörnur. Hann var í vin-
fengi við sumar af frægustu leikkon-
um sinnar tíðar og jós þær gjöfum:
skartgripum, sportbílum og dýrum
loðfeldum. Vakti eyðslusemin sér-
staka gremju þeirra sem spurðu sig
hvers vegna í ósköpunum Banda-
ríkin væru að veita háar fjárhæðir í
stuðning við Dóminíska lýðveldið á
sama tíma og þessu færi fram.
Heima fyrir sýndi Trujillo þó
engin merki um að slaka á klónni.
Flokkur hans fékk einatt 100 pró-
sent atkvæða í kosningum, hvort
sem Trujillo var sjálfur í framboði
til forseta eða fól öðrum að sinna
starfinu sem strengjabrúðum. Í
kosningunum 1947 þóttist stjórnin
þó ætla að heimila stjórnarandstöð-
unni að bjóða sig fram og starfa, en
hinn raunverulegi tilgangur var þó
sá einn að draga andstæðinga hans
fram í dagsljósið, svo unnt væri
að fangelsa þá eða myrða einn af
öðrum.
Uppreisn fiðrildanna
Á sjötta áratugnum færðist pólitísk
andstaða við Trujillo-stjórnina í
vöxt og voru Mirabal-systurnar
hluti af þeirri hreyfingu. Þær voru
fjórar talsins, úr bændafjölskyldu.
Þrjár þeirra: Patria, Minerva og
Maria Teresa, gengu menntaveginn,
urðu pólitískt róttækar og giftust
mönnum sem deildu stjórnmála-
skoðunum með þeim.
Systurnar gengu til liðs við hina
leynilegu andspyrnuhreyfingu og
stofnuðu sinn eigin hóp, sem þær
kölluðu „Fiðrildin“ (sp. Las Maripo-
sas). Næstu misserin létu þær til
sín taka með ýmsum hætti: gáfu
út dreifirit og héldu fundi, en við-
uðu einnig að sér upplýsingum um
sprengjugerð og vopnaburð. Þær
voru handteknar, en sleppt aftur
úr haldi og með tímanum urðu þær
persónugervingar andófsins gegn
Trujillo.
Að kvöldi 25. nóvember 1960
stöðvuðu meðlimir öryggislögregl-
unnar bifreið systranna þriggja. Þær
voru dregnar út úr bílnum og barðar
til bana. Líkunum var komið fyrir í
bíl þeirra og reynt að láta líta út fyrir
að um bílslys hefði verið að ræða.
Öllum var þó ljóst hvernig í pott-
inn væri búið og að aftökur þessar
hefðu aldrei átt sér stað nema með
samþykki einræðisherrans.
Reiðibylgjan sem fylgdi í kjölfar
morðsins á systrunum varð kröft-
ugri en Trujillo og fantar hans höfðu
látið sér til hugar koma. Dóminíska
lýðveldið einangraðist í samfélagi
ríkja Rómönsku-Ameríku og þegar
Trujillo var fáeinum mánuðum
síðar bendlaður við misheppnað
morðtilræði við erkióvin sinn, for-
seta Venesúela, var fokið í flest skjól.
Bandaríkjastjórn komst að þeirri
niðurstöðu að Trujillo væri orðinn
skaðlegur bandamaður og valda-
tími hans yrði senn á enda. Sum-
arið 1961 var Trujillo veitt fyrirsát
og hann skotinn til bana. Deilt er
um hvort tilræðismennirnir hafi
beinlínis notið aðstoðar bandarísku
leyniþjónustunnar eða hvort hún
hafi einungis veitt þegjandi sam-
þykki sitt. Kvennabósinn Ramfis
gerði skammlífa en vonlitla tilraun
til að setjast í stól föður síns, en
hrökklaðist fljótlega úr landi ásamt
ættmennum sínum með það af þýf-
inu sem þeim tókst að hafa með sér.
Þótt andstæðingar Trujillos fögn-
uðu dauða einræðisherrans reyndist
sigurvíman skammvinn. Samstarfs-
menn hins fallna forseta héldu
áfram ýmsum þráðum valdsins í
höndum sér. Við tók tímabil með
valdaránum, ægivaldi hersins og
blóðugum pólitískum hreyfingum.
Sú niðurstaða hefði væntanlega
valdið Mirabal-systrum miklum
vonbrigðum, en enn í dag lifa þær
sem táknmynd hetjulegrar póli-
tískrar baráttu kvenna og fórnar-
lamba ofbeldis.
Dauði fiðrildanna
Morðin á systrunum vöktu heimsathygli á sínum tíma, einkum þó í löndum Rómönsku-Ameríku. Hætt er þó við að nöfn þeirra séu gleymd Evrópubúum.
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um
píslarvotta.
SySturnar gengu til
liðS við hina leynilegu
andSPyrnuhreyfingu
og Stofnuðu Sinn eigin
hóP, Sem þær kölluðu
„fiðrildin“ (SP. laS ma
riPoSaS). næStu miSSer
in létu þær til Sín taka
með ýmSum hætti.
ERTU LÖNGU HÆTT/UR AÐ REYKJA EN
SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR!
Supreme Demantshúðslípun + Intraceuticals
“Hollywood-meðferð”
Fyrir Eftir
Fyrir þá sem gera kröfur um
gæði og árangur
Jólagjöfin í ár
Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is
Snyrtistofan Hafblik
2 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
5
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
5
3
-3
6
0
4
1
E
5
3
-3
4
C
8
1
E
5
3
-3
3
8
C
1
E
5
3
-3
2
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K