Fréttablaðið - 25.11.2017, Page 57

Fréttablaðið - 25.11.2017, Page 57
Vegagerðin leitar að rétta einstaklingnum til að leiða starf á sviði umhverfisstjórnunar hjá stofnuninni. Starfið heyrir undir gæðadeild. Vegagerðin hefur um nokkurt skeið unnið að uppbyggingu stjórnunarkerfis með hliðsjón af ISO stöðlum þ.m.t. ISO 14001. Vegagerðin er einnig þátttakandi í verkefninu Græn skref í ríkisrekstri. Vakin er athygli á því að Vegagerðin er með tuttugu starfsstöðvar á landinu og starfsmenn einstakra deilda geta því verið staðsettir víðs vegar um landið. Umsækjandi skal því tilgreina í umsókn þann stað sem hann óskar eftir að hafa sem starfsstöð. Helstu verkefni og ábyrgð • Stjórnun þverfaglegra verkefnateyma um innleiðingu umhverfisstjórnunar. • Umsjón með framfylgd umhverfisstefnu, greiningar- og stefnmótunarverkefni. • Vöktun á umhverfisþáttum og mat á áhættu vegna umhverfisatvika. Gerð viðbragðs-og neyðaráætlana. • Innleiðing grænna skerfa í ríkisrekstri í samvinnu við starfsmenn og stjórnendur á starfsstöðvum. • Ráðgjöf, fræðsla og þróun verklags er varðar umhverfisstjórnun. • Samstarf við innlenda og erlenda samstarfsaðila á sviði umhverfisstjórnunar. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði verkfræði, umhverfis- og/eða náttúruvísinda. Framhaldsmenntun æskileg. • Þekking og reynsla af umhverfisstjórnun skv. alþjóðlegum stjórnunarstöðlum. • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun æskileg. • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp. • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti, auk kunnáttu í ensku og Norðurlandamáli. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum og í samræmi við jafnréttisáætlun Vegagerðarinar eru konur með tilskyldar hæfniskröfur sérstaklega hvattar til að sækja um starfið. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 11. desember 2017. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið starf@vegagerdin.is. Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásrún Rudolfsdóttir gæðastjóri í síma 522 1000 og í gegnum netfangið asrun.rudolfsdottir@vegagerdin.is og Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri í gegnum netfangið sigurbjorg.helgadottir@vegagerdin.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Sérfræðingur á sviði umhverfisstjórnunar Vísindasiðanefnd Starf skjalavarðar/upplýsingafræðings Vísindasiðanefnd auglýsir laust til umsóknar starf skjala- varðar/upplýsingafræðings á skrifstofu Vísindasiðanefndar. Helstu verkefni: • Samskipti við umsækendur og samstarfsaðila nefndarinnar • Vinna við skjalastjórn og skjalavörslu nefndarinnar. • Móttaka og skráning erinda/mála. • Frágangur skjala/mála í málaskrá. • Leitir í skjalasafni, upplýsingaöflun og –miðlun. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun/reynsla á sviði bókasafns- eða upplýsingafræði. • Þekking og reynsla af skjalastjórnunarkerfum stofnana. • Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg. • Ábyrgð, nákvæmni og vandvirkni. • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni. • Mjög gott vald á íslensku er skilyrði. • Mjög góð kunnátta í ensku er nauðsynleg og vald á einu Norðurlandamáli er kostur. • Hæfni við miðlun upplýsinga. • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum og samstarfshæfni. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra. Upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Baldursson, framkvæmdastjóri, í síma 5517100. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu berast Vísindasiðanefnd, Borgartúni 21, 105 Reykja- vík, eða í tölvupósti á póstfangið ebb@vsn.is eigi síðar en fimmtudaginn 4. desember 2017. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið liggur fyrir. www.skaginn3x.com Systurfyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi og 3X Technology ehf. á Ísafirði mynda saman Skaginn 3X. Fyrirtækin framleiða og selja sérsniðnar hátæknilausnir fyrir matvælaiðnað á alþjóðamarkaði og er viðskiptavinina að finna víðsvegar um heiminn. Tæknistigið er hátt og starfsmenn eru rúmlega 200 talsins í starfsstöðvum sem eru um 14.000 m2. Starfsemin hefur vaxið mjög síðustu misseri en frumkvöðla- og nýsköpunarandinn hefur viðhaldist allt frá fyrsta degi. Áhersla er lögð á að bjóða gæðavörur og ryðja braut nýrrar tækni sem færir viðskiptavinum og umhverfinu verulegan ávinning. Skaginn 3X hlaut nýlega Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Nýsköpunarverðlaun Íslands. Söluhönnuður Æskilegir eiginleikar • Frjó hugsun • Útsjónarsemi • Greiningarhæfileikar • Vandvirkni Reynsla og þekking • Kunnátta á teikniforrit, t.d. AutoCad • 3D hönnun í Factory Suite • Þekking á vinnslutækni og búnaði • Reynsla af matvælavinnslu Verkefni • Hönnun og bestun vinnslukerfa • Gerð kerfisteikninga • Greining vinnsluferla og aðferða • Þátttaka í sölumálum og gerð kerfislýsinga • Verðútreikningar • Afkastaútreikningar á tækjum og vinnslukerfum Svæðissölustjóri Æskilegir eiginleikar • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og kraftur • Þarf að geta unnið undir miklu álagi • Skipulagshæfileikar Reynsla og þekking • Reynsla af sjómennsku eða fiskvinnslu • Þekking á vinnslutækni og búnaði • Samningatækni • Reynsla í alþjóðaviðskiptum æskileg • Íslenska og enska nauðsyn, önnur tungumálakunnátta kostur Verkefni • Áætlanagerð og markmiðasetning • Forgangsröðun verkefna • Þátttaka í hönnun og bestun lausna fyrir viðskiptavini • Útbúa kynningarefni, lýsingar og tilboð • Sala á vörum og lausnum ásamt samningum þar um • Ábyrgð og yfirsýn yfir markaðssvæði Vegna mikils áhuga frá viðskiptavinum þurfum við að bæta við öflugu fólki í Reykjavík, á Akranesi og Ísafirði. Pipar\TBW A \ SÍA Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um störfin. Umsóknir sendist á: job@skaginn3x.com Nánari upplýsingar veitir Jón Birgir Gunnarsson í síma 780 3050 eða jonbg@skaginn3x.com. Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2017. Óskum eftir snjöllum stelpum og strákum í söluteymið okkar 2 5 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 1 1 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 5 3 -5 8 9 4 1 E 5 3 -5 7 5 8 1 E 5 3 -5 6 1 C 1 E 5 3 -5 4 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 1 2 s _ 2 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.