Fréttablaðið - 25.11.2017, Blaðsíða 51
Borgarholtsskóli er fjölbreyttur, framsækinn og skapandi
skóli sem leggur áherslu á að allir fái nám við sitt hæfi. Boðið er upp
á margar námsleiðir; í bóknámi, listnámi, iðnnámi og starfsnámi.
Einkunnarorð Borgarholtsskóla eru: agi, virðing, væntingar.
Lausar kennarastöður
við Borgarholtsskóla
Eftirtaldar framtíðarstöður kennara við Borgarholtsskóla eru
lausar til umsóknar:
Bifreiðasmíði, 100%
Bifvélavirkjun, 100%
Stærðfræði, 100%
Sjá nánar: www.bhs.is
Skólameistari
Komdu að kenna í Vallaskóla!
Laus er til umsóknar 100% staða kennara í leikrænni tjáningu
og ensku við Vallaskóla á Selfossi út skólaárið 2017-2018.
Umsóknarfrestur er til 4. desember 2017. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
umsagnaraðilum sendist á Þorvald H. Gunnarsson skóla-
stjóra á netfangið thorvaldur@vallaskoli.is.
Viðamiklar upplýsingar um skólann er að finna á slóðinni
www.vallaskoli.is . Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
Urriðaholtsskóli er nýr samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ fyrir nemendur á aldrinum
1-16 ára. Leikskóladeild skólans tekur til starfa í byrjun árs 2018. Auglýst er eftir áhugasömum
og faglegum einstaklingum til að taka þátt í að móta og byggja upp nýtt skólasamfélag.
Samstarf verður einkennandi fyrir alla starfshætti bæði á meðal nemenda og starfsmanna,
svo og milli skólastiga.
Auglýst er eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
• Aðstoðarskólastjóri yngri barna
• Leikskólakennarar
• Háskólamenntaðir leiðbeinendur
• Leiðbeinendur í leikskóla og skólaliðar
Í Garðabæ er lögð rík áhersla á sjálfstæði skóla, fjölbreytni og valfrelsi sem felst meðal annars
í því að foreldrar hafa fullt frelsi um val á skóla fyrir börn sín. Leik- og grunnskólar Garðabæjar
skapa sér sérstöðu í áherslum sínum til að koma sem best á móts við fjölbreyttar þarfir
nemenda og verður það verkefni hópsins að koma að stefnumótun skólans.
Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2017. Gert er ráð fyrir að fyrstu ráðningar taki
gildi um miðjan janúar 2018 og er samkomulag um hvenær viðkomandi getur hafið störf.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri Urriðaholtsskóla,
s. 525 8500 / 621 9505, netfang thorgerdurar@urridaholtsskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi
stéttarfélaga.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is en þar
má finna nánari upplýsingar um störfin.
GARÐATORGI 7 • SÍMI 525 8500 • GARDABAER.IS
STARFSFÓLK
Í URRIÐAHOLTSSKÓLA Í GARÐABÆ
Framkvæmdastjóri Félags um
stofnun Lýðháskóla á Flateyri
Framkvæmdastjóri undirbýr stofnun Lýðháskóla á Flateyri
í samstarfi við stjórn félagsins, auk þess að vinna að
verkefni um lýðháskóla almennt fyrir Fræðslumiðstöð
Vestfjarða sem kostað er af mennta- og menningarmála-
ráðuneytinu. Þar skal greint hver staða, hlutverk og
markmið slíkra skóla gæti verið í menntakerfinu svo
og hugsanleg tengsl við framhaldsfræðslukerfið, auk
markhópagreiningar.
Sérstök fagráð hafa undirbúið námsframboð skólans á
þremur sviðum, sjálfbærni og umhverfismálum, kvik-
myndavinnu og tónlistarsköpun og mun framkvæmdastjóri
vinna með þeim að útfærslu og þróun námsins og skipu-
lagi skólans.
Starfstöð framkvæmdastjóra er á Flateyri og er búseta á
atvinnusvæði Ísafjarðarbæjar skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 15. desember en gert er ráð fyrir
að framkvæmdastjóri taki til starfa 15. febrúar.
Umsóknum skal skila til Runólfs Ágústssonar, formanns
stjórnar Félags um stofnun Lýðháskóla á Flateyri á
netfangið runolfur@runolfur.is.
Upplýsingar veitir formaður stjórnar í síma 695 9999.
Óska eftir sölumönnum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í jan 2018.
Mikilvægt er að viðkomandi sé með gott sjálfstraust og hafi
reynslu af sölumennsku.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
sala@passinn.is
Tryggingastofnun
Laugavegi 114 | 105 Reykjavík
Sími 560 4400 | tr@tr.is | tr.is
Tryggingastofnun óskar eftir að ráða vefstjóra til þess að sjá um vefinn tr.is og Mínar síður á tr.is.
Starfið felur jafnframt í sér þátttöku í kynningarmálum, m.a. að taka þátt í kynningarfundum, setja
efni á Facebook og fleira. Um er að ræða lifandi og skapandi starf.
VEFSTJÓRI
P
ip
ar\TBW
A
\ SÍA
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vefumsjón og þróun vefsins
- Umsjón með Mínum síðum og þróun þeirra
- Framsetning efnis og textagerð
- Kynningarfundir og samskipti við viðskiptavini
Hæfnikröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af vefumsjón er nauðsynleg
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Hæfni í að koma fram og miðla upplýsingum
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
- Metnaður, frumkvæði og hugmyndaauðgi
- Áhugi á málaflokkum stofnunarinnar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem
fjármála- og efnahagsráðherra og Fræðagarður
hafa gert.
Tryggingastofnun þjónar um 60 þúsund viðskipta-
vinum um land allt og gegnir vefurinn tr.is
mikilvægu hlutverki í starfsemi stofnunarinnar.
Stöðugt fleiri viðskiptavinir nýta sér Mínar síður á
tr.is og er markmiðið að auka notkun þeirra enn
frekar í framtíðinni.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2017.
Nánari upplýsingar veita Sólveig Hjaltadóttir framkvæmdastjóri í síma 560 4400
og Hólmfríður Erla Finnsdóttir mannauðsstjóri í síma 560 4400.
2
5
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
5
3
-8
5
0
4
1
E
5
3
-8
3
C
8
1
E
5
3
-8
2
8
C
1
E
5
3
-8
1
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K