Fréttablaðið - 25.11.2017, Qupperneq 57
Vegagerðin leitar að rétta einstaklingnum til að leiða starf á sviði umhverfisstjórnunar
hjá stofnuninni. Starfið heyrir undir gæðadeild. Vegagerðin hefur um nokkurt skeið unnið
að uppbyggingu stjórnunarkerfis með hliðsjón af ISO stöðlum þ.m.t. ISO 14001.
Vegagerðin er einnig þátttakandi í verkefninu Græn skref í ríkisrekstri.
Vakin er athygli á því að Vegagerðin er með tuttugu starfsstöðvar á landinu og starfsmenn
einstakra deilda geta því verið staðsettir víðs vegar um landið.
Umsækjandi skal því tilgreina í umsókn þann stað sem hann óskar eftir að hafa sem
starfsstöð.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stjórnun þverfaglegra verkefnateyma
um innleiðingu umhverfisstjórnunar.
• Umsjón með framfylgd umhverfisstefnu,
greiningar- og stefnmótunarverkefni.
• Vöktun á umhverfisþáttum og mat á áhættu vegna
umhverfisatvika. Gerð viðbragðs-og neyðaráætlana.
• Innleiðing grænna skerfa í ríkisrekstri í samvinnu
við starfsmenn og stjórnendur á starfsstöðvum.
• Ráðgjöf, fræðsla og þróun verklags er varðar
umhverfisstjórnun.
• Samstarf við innlenda og erlenda samstarfsaðila
á sviði umhverfisstjórnunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði verkfræði,
umhverfis- og/eða náttúruvísinda. Framhaldsmenntun æskileg.
• Þekking og reynsla af umhverfisstjórnun
skv. alþjóðlegum stjórnunarstöðlum.
• Þekking og reynsla af verkefnastjórnun æskileg.
• Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti,
auk kunnáttu í ensku og Norðurlandamáli.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum
og í samræmi við jafnréttisáætlun Vegagerðarinar eru konur með tilskyldar hæfniskröfur
sérstaklega hvattar til að sækja um starfið.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 11. desember 2017. Umsóknir berist Vegagerðinni á netfangið
starf@vegagerdin.is. Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum
um þá menntun og hæfni sem óskað er.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásrún Rudolfsdóttir gæðastjóri í síma 522 1000 og í gegnum
netfangið asrun.rudolfsdottir@vegagerdin.is og Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri í
gegnum netfangið sigurbjorg.helgadottir@vegagerdin.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sérfræðingur á sviði
umhverfisstjórnunar
Vísindasiðanefnd
Starf skjalavarðar/upplýsingafræðings
Vísindasiðanefnd auglýsir laust til umsóknar starf skjala-
varðar/upplýsingafræðings á skrifstofu Vísindasiðanefndar.
Helstu verkefni:
• Samskipti við umsækendur og samstarfsaðila
nefndarinnar
• Vinna við skjalastjórn og skjalavörslu nefndarinnar.
• Móttaka og skráning erinda/mála.
• Frágangur skjala/mála í málaskrá.
• Leitir í skjalasafni, upplýsingaöflun og –miðlun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun/reynsla á sviði bókasafns- eða
upplýsingafræði.
• Þekking og reynsla af skjalastjórnunarkerfum stofnana.
• Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg.
• Ábyrgð, nákvæmni og vandvirkni.
• Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
• Mjög gott vald á íslensku er skilyrði.
• Mjög góð kunnátta í ensku er nauðsynleg og vald á einu
Norðurlandamáli er kostur.
• Hæfni við miðlun upplýsinga.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
og samstarfshæfni.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi Félags
háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins og
fjármála- og efnahagsráðherra. Upplýsingar um starfið
veitir Eiríkur Baldursson, framkvæmdastjóri, í síma 5517100.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil
skulu berast Vísindasiðanefnd, Borgartúni 21, 105 Reykja-
vík, eða í tölvupósti á póstfangið ebb@vsn.is eigi síðar en
fimmtudaginn 4. desember 2017. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið liggur fyrir.
www.skaginn3x.com
Systurfyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi og 3X Technology ehf. á Ísafirði mynda saman Skaginn 3X. Fyrirtækin framleiða og selja sérsniðnar hátæknilausnir fyrir
matvælaiðnað á alþjóðamarkaði og er viðskiptavinina að finna víðsvegar um heiminn. Tæknistigið er hátt og starfsmenn eru rúmlega 200 talsins í starfsstöðvum sem eru um 14.000 m2.
Starfsemin hefur vaxið mjög síðustu misseri en frumkvöðla- og nýsköpunarandinn hefur viðhaldist allt frá fyrsta degi. Áhersla er lögð á að bjóða gæðavörur og ryðja braut nýrrar tækni sem
færir viðskiptavinum og umhverfinu verulegan ávinning. Skaginn 3X hlaut nýlega Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Nýsköpunarverðlaun Íslands.
Söluhönnuður
Æskilegir eiginleikar
• Frjó hugsun
• Útsjónarsemi
• Greiningarhæfileikar
• Vandvirkni
Reynsla og þekking
• Kunnátta á teikniforrit, t.d. AutoCad
• 3D hönnun í Factory Suite
• Þekking á vinnslutækni og búnaði
• Reynsla af matvælavinnslu
Verkefni
• Hönnun og bestun vinnslukerfa
• Gerð kerfisteikninga
• Greining vinnsluferla og aðferða
• Þátttaka í sölumálum og gerð kerfislýsinga
• Verðútreikningar
• Afkastaútreikningar á tækjum
og vinnslukerfum
Svæðissölustjóri
Æskilegir eiginleikar
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og kraftur
• Þarf að geta unnið undir miklu álagi
• Skipulagshæfileikar
Reynsla og þekking
• Reynsla af sjómennsku eða fiskvinnslu
• Þekking á vinnslutækni og búnaði
• Samningatækni
• Reynsla í alþjóðaviðskiptum æskileg
• Íslenska og enska nauðsyn,
önnur tungumálakunnátta kostur
Verkefni
• Áætlanagerð og markmiðasetning
• Forgangsröðun verkefna
• Þátttaka í hönnun og bestun lausna fyrir viðskiptavini
• Útbúa kynningarefni, lýsingar og tilboð
• Sala á vörum og lausnum ásamt samningum þar um
• Ábyrgð og yfirsýn yfir markaðssvæði
Vegna mikils áhuga frá viðskiptavinum þurfum við að bæta við öflugu fólki
í Reykjavík, á Akranesi og Ísafirði.
Pipar\TBW
A
\ SÍA
Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um störfin.
Umsóknir sendist á: job@skaginn3x.com
Nánari upplýsingar veitir Jón Birgir Gunnarsson
í síma 780 3050 eða jonbg@skaginn3x.com.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2017.
Óskum eftir snjöllum stelpum og strákum
í söluteymið okkar
2
5
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
5
3
-5
8
9
4
1
E
5
3
-5
7
5
8
1
E
5
3
-5
6
1
C
1
E
5
3
-5
4
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
2
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K