Morgunblaðið - 10.06.2017, Page 39
sinnti hún öllum verkum með ljóð
eða lagstúf á vörum sér. Við
eyddum ófáum stundum við söng
í sparistofunni á Einarsstöðum,
þar sem gamla fótstigna orgelið
var og þegar tónlistarflutningur-
inn hafði náð ákveðnum gæðum
splæsti amma í hljóðupptökur á
segulband.
Amma var skarpgreind og
mjög vel að sér í því sem kalla má
almenna þekkingu, en er þó ekk-
ert svo almenn. Hún viðaði að sér
fróðleik og var stálminnug. Mér
er mjög minnisstætt þegar hún
kom í heimsókn til okkar í Kaup-
mannahöfn stuttu eftir að við
fjölskyldan fluttum þangað. Þar
gekk hún um götur og fræddi
okkur hin um listaverk, bygging-
ar og minnisvarða þó hún hefði
aldrei komið til borgarinnar áð-
ur.
Hún var á margan hátt til fyr-
irmyndar, sem dæmi var hún
nýtin og nægjusöm. Hún hafði oft
orð á því í seinni tíð að það væri
ofgnótt af veraldlegum hlutum
og að henni blöskraði allt það
sem færi til spillis. Þegar ég var
unglingur benti hún mér eitt sinn
vinalega á, að það yrði ekki svona
mikill þvottur og umstang ef ég
ætti minna af fötum. Mér þótti
þetta ekki mikil speki þá en
hugsa oft til orða hennar í dag
þar sem jörðin okkar líður fyrir
átroðning mannsins.
Það er sjaldséð það jafnaðar-
geð sem amma mín hafði, ég man
aldrei eftir því að hafa heyrt hana
æsa sig eða svo mikið sem hækka
róminn. Allt var gert með þolin-
mæði og umburðarlyndi í fyrir-
rúmi. Hún var einnig nærgætin í
mannlegum samskiptum, hafði
skoðanir á hlutunum en gætti
þess að særa ekki viðmælendur.
Einnig var hún léttlynd og
lúmskur húmoristi, og þó róleg
væri tók hún alltaf vel í smá
sprell og galsa af hálfu okkar
barnabarnanna.
Þrátt fyrir alla þá góðu kosti
sem hún hafði að státa af var hún
hógværðin uppmáluð. Það var al-
veg sama hvert tilefnið var, ár-
angur hennar sjálfrar eða þeirra
sem að henni stóðu, hún átti það
ekki í sér að hreykja sér. Mér
fannst stundum nóg um þessa
hógværð og vildi þá í það minnsta
að hún vissi hvað mér fyndist um
hana, góð fyrirmynd: klár, vinnu-
söm og ósérhlífin. Þá var svarið
jafnan: „Ég?! Ég sem hef aldrei
starfað neitt!“
Nei, amma mín, þú varst
kannski aldrei launþegi en þú
áorkaðir miklu. Þú varst í sjálf-
stæðum rekstri á búi með honum
afa í áratugi. Þú ólst af þér sex
góðhjörtuð og dugleg börn, þú
fræddir og umvafðir barnabörnin
þín 15 með umhyggju og ást.
Langömmubörnin þín, sem nú
eru orðin átta, munu svo njóta
góðs af því veganesti sem þú
gafst okkur sem á undan þeim
komu og minning þín verður ætíð
í hávegum höfð.
Hvíl í friði, elsku amma mín,
ég sakna þín.
Þín nafna,
Hildigunnur Jónsdóttir.
Hildigunnur Valdimarsdóttir,
föðursystir okkar, sem við oftast
kölluðum Ídu frænku, hóf búskap
ásamt manni sínum, Jóni Har-
aldssyni, á Teigi í Vopnafirði, árið
1951. Þar bjuggu þau um skeið í
tvíbýli með foreldrum okkar,
Gunnari og Sólveigu, og var þá
lagður grundvöllur að samvinnu
og vináttu þessara fjölskyldna
sem enst hefur æ síðan.
Árið 1954, byrjuðu Jón og
Hildigunnur að byggja nýtt íbúð-
arhús á Einarsstöðum, innst í
Hofsárdal. Á þessum tíma var
ekkert vegasamband þangað.
Þrátt fyrir erfiða aðdrætti gekk
byggingin vel og árið 1955 fluttu
Hildigunnur og Jón í Einarsstaði.
Þeim varð sex barna auðið og
bjuggu þar af mikilli reisn þrátt
fyrir að vera afskipt lengi af þeim
lífsgæðum sem sjálfsögð þykja í
dag.
Hildigunnur var góð húsmóðir
sem hafði gaman af því að taka á
móti fólki. Hún, ásamt manni sín-
um, bjó börnum sínum gott heim-
ili og treysti þeim frá unga aldri
til verka við bú og heimili. Það
var gaman að sækja frændfólkið
á Einarsstöðum heim og margar
góðar minningar eru frá sam-
verustundum í kringum eldhús-
borðið þar sem sögur voru sagðar
og dægurmálin rædd. Þá kom vel
í ljós að Hildigunnur fylgdist vel
með þjóðmálunum og hafði á
þeim ákveðnar skoðanir. Hún
sagði vel frá, gladdi okkur með
fyndnum sögum og var orðhepp-
in.
Árið 1992 fluttu Hildigunnur
og Jón aftur í Teig og bjuggu þar
með Pétri, elsta syni sínum, til
vors 1998 er þau fluttu austur í
Fellabæ. Meðan þau bjuggu í
Teigi höfðu Hildigunnur og Jón
tekið þátt í því að byggja sum-
arhús ættarinnar, Erlubæ, í landi
Teigs. Í Fellabæ byggðu þau fal-
legt hús við fljótið þar sem þau
ætluðu að njóta ævikvöldsins
saman. En örlögin gripu inn í og
Hildigunnur missti mann sinn
síðla sama ár. Eftir það bjó Hildi-
gunnur ein en hafði góðan fé-
lagsskap og stuðning af Vigfúsi,
syni sínum, Grétu tengdadóttur
og börnum þeirra sem bjuggu í
nágrenni við hana. Árið 2014 fór
heilsu Hildigunnar að hraka og
fluttist hún þá á hjúkrunarheimili
á Egilsstöðum þar sem hún naut
góðrar umönnunar síðustu ævi-
árin.
Hildigunnur var prýðilega
hagmælt, listræn og ljóðelsk og
kunni mikið af ljóðum og vísum
sem hún hafði gaman af að fara
með. Hún hafði góða söngrödd og
kunni mikið af gömlum sönglög-
um, þulum og þjóðvísum. Til allr-
ar hamingju hefur margt af þess-
um gömlu lögum varðveist með
rödd hennar. Í safni Ísmús eru
alls 227 hljóðrit með flutningi
hennar.
Hildigunnur unni landinu og
náttúrunni. Á sumrin var hennar
líf og yndi að fara í berjamó og
gera síðan sultu úr berjunum
sem vinir og ættingjar nutu góðs
af.
Hildigunnur hafði yndi af
hannyrðum og það voru ekki
bara börn og barnabörn sem
nutu afraksturs hannyrða henn-
ar. Hún hafði ríka samfélagslega
ábyrgð og hún gerðist sjálfboða-
liði hjá Rauða krossinum, þar
sem hún prjónaði m.a. sokka og
vettlinga fyrir skjólstæðinga
hans.
Við systkinin frá Teigi viljum
þakka Hildigunni fyrir allar
ánægjulegu samverustundirnar
og fyrir það staðgóða veganesti
sem hún veitti okkur. Við sendum
börnum hennar, barnabörnum,
og barnabarnabörnum innileg-
ustu samúðarkveðjur okkar.
Þorsteinn, Erla,
Helga og Einar.
Eimpípan blístrar í síðasta sinn;
sé ég, að komin er skilnaðarstund.
Hugstola sleppi ég hendinni þinni.
Handtakið slitnar, sem þakkaði kynni,
samvistir allar og síðasta fund. -
Sálirnar tengjast við tillitið hinsta
taug, sem að slítur ei fjarlægðin blá.
Brenna í hjartnanna helgidóm innsta
hugljúfar minningar samverustundum
frá.
(Erla)
Það er komin skilnaðarstund.
Hana bar óvænt að. Skammt er
síðan ég átti tal við Hildigunni
móðursystur mína í myndsíma og
þá fannst mér hún líta hraustlega
út þótt auðséð væri að aldur
færðist yfir. En það ræður eng-
inn sínum næturstað.
Á uppvaxtarárum mínum var
umtalsverð landfræðileg fjar-
lægð á milli Vopnafjarðar og Sel-
foss, hvar við áttum heima og
samgöngur erfiðar og samvistir
því strjálar. Það fylgdi því ætíð
eftirvænting að fá bréf frá
frænku því hún hafði einstakan
frásagnarmáta og kunni frá
mörgu að segja á spaugilegan
hátt. Gladdi það móður mína og
oftar en ekki sá hún ástæðu til að
lesa upphátt úr jólabréfum henn-
ar. Ljóð og stökur fylgdu gjarnan
með en frá barnæsku höfðu þær
alist upp við að fara með bundið
mál. Þessi hæfileiki Hildigunnar
varð líka til þess að hún var oft
fengin til að annast upplestur á
samkomum í heimasveitinni enda
fór hún vel með íslenskt mál.
Persónulega kynntist ég
frænku ekki að ráði fyrr en ég
var fluttur norður yfir heiðar. Þá
heimsótti ég Vopnafjörð í fyrsta
sinn ásamt fjölskyldu minni og
tók frænka mín okkur opnum
örmum. Nýveiddur lax úr Tun-
guá, dásamlegt hrútaberjahlaup
og gisting til reiðu. Þrátt fyrir
strjálar samvistir voru fjöl-
skylduböndin sú taug sem fjar-
lægðin blá hafði engin áhrif á.
Bréfasendingar, fjölskyldumynd-
ir og símasamband treystu þessi
bönd.
Er haldið var upp á aldaraf-
mæli ömmu og afa ákváðu nokkr-
ir afkomendur að hefja byggingu
sumarhúss í landi Teigs. Hildi-
gunnur og Jón maður hennar
voru þátttakendur í þeirri
ákvörðun í þeim tilgangi einum
að treysta fjölskylduböndin.
Bentu þau á heppilegan stað fyrir
húsið en frænka hafði næmt auga
fyrir gróðurfari og berjatínsla
var ástríða hennar. Bygging
hússins fjölgaði ferðum mínum í
Vopnafjörð með frændum og
ætíð stóðu dyr Hildigunnar og
Jóns opnar okkur og þáðum við
margan matarbitann af þeim
hjónum.
Eitt sumarið áttum við hjónin
því láni að fagna að dvelja með
móður minni og Hildigunni
nokkra daga í Erlubæ. Frænka
hafði áhuga á þjóðlegum fróðleik
og viðaði að sér ýmsu efni og
varðveitti. Greip hún með sér
gömul sendibréf og annað ritað
efni frá fyrri tíð sem hún hafði
forðað frá glötun. Bréf sem
amma hennar hafði ritað börnum
sínum og lýstu vel erfiðri lífsbar-
áttu forfeðranna og staðblæ þess
tíma. Og þarna lásu þær systur
hvor fyrir aðra og fengu útrás
fyrir að rifja upp ýmislegt sem
þær höfðu upplifað sameiginlega
þótt nokkur aldursmunur væri á
þeim. Þetta var ævintýr sem við
munum ekki gleyma. Þannig fór
ég ávallt ríkari af fundi frænku
minnar.
En nú er komið að skilnaðar-
stund. Um leið og við hjónin
þökkum samfylgdina og hlýju í
okkar garð færum við aðstand-
endum öllum innilegar samúðar-
kveðjur. Blessuð sé minning
Hildigunnar.
Trausti Þorsteinsson.
Þá er vinkona mín Hildigunn-
ur Valdimarsdóttir lögð af stað til
sinnar Leiðarhafnar. Ég kynntist
Hildigunni fyrir rúmum tíu árum
í tengslum við útgáfu mína á
verkum móður hennar, skáldkon-
unnar Guðfinnu Þorsteinsdóttur,
sem þekkt er undir skáldanafn-
inu Erla. Hildigunnur varðveitti
ýmis gögn sem vörðuðu Guð-
finnu. Ég átti því ófáar ferðir í
Fellabæinn til að kynna mér þau
og dvaldi þar yfirleitt nokkra
daga í senn. Stundum gisti ég hjá
Hildigunni sem dekraði við mig
með sterku kaffi og öðrum trakt-
eringum. Í fyrstu ferð minni
austur ókum við saman um
Fljótsdalinn og komum í
Skjögrastaði þar sem móðir
hennar fæddist. Höfðum við báð-
ar mikla ánægju af þeirri ferð.
Það var ómetanlegt fyrir mig
að njóta leiðsagnar Hildigunnar
og hún gat frætt mig um margt,
sett upplýsingar í samhengi og
sagt mér sögur sem dýpkuðu
skilning minn á rannsóknar-
efninu. Hún sagði vel frá eins og
hún átti kyn til, kunni fjölmargar
vísur og mörg ljóð móður sinnar
auk margs annars. Hún hafði
góða söngrödd og söng fyrir mig
þegar við átti, stundum eigin
kveðskap. Það voru sannkallaðar
gæða- og gleðistundir sem ég átti
hjá henni í Fellabænum.
Í þeim gögnum sem Hildi-
gunnur varðveitti úr fórum móð-
ur sinnar eru meðal annars laus
blöð með textabrotum um eitt og
annað, eins konar dagbókardrög
sem Guðfinna skráði hjá sér. Þar
er til dæmis að finna frásögn af
því hversu erfitt presturinn á
Hofi í Vopnafirði átti með að
skíra litlu stúlkuna nafni þessa
voðakvendis úr Njálu. En for-
eldrarnir hvikuðu hvergi og
stúlkan hlaut sitt hljómmikla og
fallega nafn. Eftirfarandi er ritað
2. október árið 1930 og Guðfinna
er ein í bænum með Hildigunni,
nýfædda: „Lítil stúlka, aðeins 11
sólarhringa gömul, hvílir í rúm-
inu hjá mér. Hún er nýsofnuð,
sofnaði út frá því að teyga sætar
veigar móðurbrjóstanna. Hrein
og þurr, södd og sæl, blundar hún
á svæflinum sínum og hefur
naumast hugmynd um að hún sé
til, gerir sér enga grein fyrir
neinu, veit ekkert um veröldina,
þekkir engan sársauka, engan
ama eða áhyggjur. Þegar hún eitt
sinn vaknar til meðvitundar um
tilveru sína og fer að horfa spyrj-
andi undrunaraugum á heiminn
og alla hluti umhverfis sig, vildi
ég óska að hún lærði að líta björt-
um augum á lífið og tilgang þess.
Ég kýs að hún verði léttlynd, hlý-
lynd, víðsýn og göfuglynd, full
samúðar með öllu smáu og lágu,
öllu sem aðrir lítilsvirða og
gleyma, öllu sem bágt á og þjáist
á einn eða annan hátt, hvort sem
það heldur eru menn eða mál-
leysingjar. Ef hún lærir að ganga
um veröldina á vegum kærleik-
ans, hygg ég að henni verði borg-
ið um flest, hvernig sem lífskjör
hennar annars verða.“
Kynni mín af Hildigunni
benda til að Guðfinnu hafi orðið
að ósk sinni, enda ólst litla stúlk-
an upp á kærleiksríku myndar-
heimili með góðar fyrirmyndir.
Hildigunnur var einstaklega vel
gerð manneskja og vel gefin, kát
og skemmtileg. Ég votta börnum
hennar, fjölskyldum þeirra og
öðrum ástvinum mína innileg-
ustu samúð. Guð blessi minningu
Hildigunnar Valdimarsdóttur.
Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir.
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2017
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær eiginkona mín, móðir og
stjúpmóðir,
ÁSTA LILJA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Siglufirði,
til heimilis að Vesturgötu 7,
andaðist á lungnadeild Landspítalans
2. júní. Jarðarförin verður gerð frá Hallgrímskirkju mánudaginn
12. júní kl. 15.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hinnar
látnu láti Samtökin ´78 njóta þess. Reikningsnr. 0513-26-78
Kennitala 450179-0439
Sigurður Jón Ólafsson
Melkorka Sigurðardóttir Steinar Logi Sigurðsson
Rósa Huld Sigurðardóttir Klara Dögg Sigurðardóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANNES GUÐMUNDSSON
verkfræðingur,
Dalbraut 14, Reykjavík,
áður til heimilis að Laugalæk 48,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 1. júní.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju í Reykjavík þriðjudaginn
13. júní klukkan 13. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem
vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Guðrún María Tómasdóttir
Tómas Jóhannesson Pálína Héðinsdóttir
Helgi Jóhannesson Gunnlaug Helga Einarsdóttir
Sigríður Jóhannesdóttir Skarphéðinn B. Steinarsson
Guðmundur Þ. Jóhannesson Laufey Ása Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JENSEY STEFÁNSDÓTTIR,
Eyja,
Dalbraut 20,
lést á Landspítalanum föstudaginn 2. júní.
Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn
13. júní klukkan 13.
Blóm og kransar er vinsamlega afþakkað en þeim sem vildu
minnast hennar er bent hjartadeild Landspítalans.
Edda Agnarsdóttir Birgir Þór Guðmundsson
Kjartan Agnarsson
Kolbeinn Agnarsson Ljósbrá Guðmundsdóttir
Hlín Agnarsdóttir
Gyða Agnarsdóttir Guðjón Aðalsteinsson
Ari Agnarsson Védís Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
MARGRÉT ÖRNÓLFSDÓTTIR
ritari,
Lyngbrekku 13, Kópavogi,
lést sunnudaginn 4. júní á hjúkrunar-
heimilinu Mörk. Útför hennar fer fram
miðvikudaginn 14. júní klukkan 13 frá Kópavogskirkju.
Örnólfur Kristjánsson Helga Steinunn Torfadóttir
Eyjólfur Kristjánsson Guðrún Eysteinsdóttir
Anna Ragnhildur Halldórsd. Friðbjörn Garðarsson
Hlíf Árnadóttir Einar Freyr Sigurðsson
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, dóttir mín, tengda-
móðir, systir, frænka og amma,
SIGURBORG SVAVARSDÓTTIR,
lést sunnudaginn 21. maí í Schladming í
Austurríki.
Jarðarförin fer fram frá sal Hótels Framtíðar
á Djúpavogi þriðjudaginn 13. júní klukkan 12.
Pálmi Freyr Gunnarsson
Anna Guðný Guðmundsdóttir, Jón Gauti Jónsson
Guðný Jónsdóttir
Hallfríður Svavarsdóttir
Gautur Svavarsson
Örvar Svavarsson
Árni Bergmann Jóhannsson
Linda Rós Jónsdóttir
Sara Deisl
og barnabörn
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800