Morgunblaðið - 17.06.2017, Page 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú munt líklega samsinna yf-
irmanni þínum til að komast hjá árekstrum
í dag. Taktu á þig rögg og ljúktu verkefn-
inu. Sýndu undirmönnum þínum skilning.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú situr í súpunni með að vera ekki
búinn með eitt verkefni, þegar þú hefur
tekið annað að þér. Ekki kaupa neitt nema
þörfin sé brýn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fjármál þín valda óöryggi og
ótta. Tilfinningar þínar eru sterkari en
vanalega, ekki síst gagnvart þínum nán-
ustu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er líklegt að þú fáir góða hug-
mynd varðandi fjárhaginn. Með því að
þiggja einnig ráð frá öðrum, kemur þú í
veg fyrir að verða óvinsæll yfirmaður.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þegar lífið fer illa með þig áttu að
vingast við það. Að gera betur en fólk ætl-
ast til af þér er orðið þitt aðaláhugamál.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Misklíð innan fjölskyldunnar eða
ósætti við viðskiptafélaga mun draga dilk á
eftir sér. Um þessar mundir nálgast þú öll
þín sambönd af ákafa.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dagurinn hentar vel til að grafa upp
gömul leyndarmál. Finndu þér leið til að
létta á þér. Líttu á þetta sem tækifæri til
að sýna góðvild þína í verki.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þetta hefur verið þér mjög
hagstætt ár og það virðist ekkert lát á vel-
gengni þinni. Sumt sem þú manst kemur
sér mjög vel.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Farðu varlega í að lofa fjöl-
skyldu þinni einhverju í dag. Reyndu að
hafa áhrif þar á því þú átt mikið undir því
hvernig fer.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er ákveðinn léttir þegar bú-
ið er að taka ákvörðun um hvert halda
skal. Hlustaðu vel á þinn innri mann, því
þú býrð sjálfur yfir lausninni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér tekst að sýnast glaður á yf-
irborðinu þótt undir niðri eigir þú við erfið
vandamál að stríða. Sinntu þeim sem næst
þér standa af kostgæfni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Stórar og sterkar tilfinningar gerj-
ast nú vegna sambands sem gæti orðið,
því báðir aðilar hafa mikinn áhuga. Varastu
að ganga of langt gagnvart þeim sem við-
kvæmir eru.
Gátan er sem endranær eftir Guð-
mund Arnfinnsson:
Í Borgarfirði bæ ég fann.
Bagga Gráni flytur þann.
Vakri-Skjóni vera kann.
Sér vippar fimur upp á hann.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Hestur, bær í Borgarfirði.
Baggar Grána hestur heys.
Hestur sá var vísna virði.
Varla bogahestur eys.
Helgi Seljan leysir gátuna þannig:
Í tilraununum hest ég tróna fann
taldist klárinn bestur margt að draga,
vakran reiðhest valdi Jón með sann
vatt sér oft á bak hér forðum daga.
Árni Blöndal skrifaði og sagði:
Nú skín sól á fagran fjörð
flestir ylsins njóta,
gróa lauf og grænka börð
grös úr moldu þjóta.
Hestur er bújörð sem ber ekki galla
bagga tvo hesta menn vilja kalla
kapal og fola kalla menn hesta
ég kalla þó hestaskál líklega besta
Guðrún Bjarnadóttir sagði að
gátuhöfundur hefði væntanlega átt
við hestburð af heyi en hún ekki
staðist blóðugu lausnina:
Hestur: bær í Borgarfirði.
Í böggum Grána hrossakjöt.*
Sem hest ég Skjóna vakran virði.
Vart á bogahesti löt.
Helgi R. Einarsson á þessa lausn:
Bæjarheiti og burður er,
brúkaðist við flest,
yfir hann sá fimi fer.
Hér finnst mér átt við hest.
Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna
þannig:
Í Borgarfirði er bærinn Hestur.
Baggi líka hestur er.
Vakri-Skjóni er blakka bestur.
Á bogahesti menn leika sér.
Þá er limra:
Ég treysti og trúi því glaður
og tel það síst vera blaður,
sem skáldið kvað,
Skaparinn að
sé skagfirskur hestamaður.
Og síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund:
Á fætur nú ég flýti mér,
fæ mér egg og brauð og smér,
færast líf í limi finn,
létt er gáta í þetta sinn:
Illt er þá bagga að bera.
Á baugalín heiti er.
Blóðug mun viðureign vera.
Valkyrja nafn þetta ber.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hægt skyldi góðum hesti ríða
Í klípu
„ENN EKKERT. VIÐ ÞURFUM AÐ VINNA
Í TAKTU-MIG-UPP LÍNUNUM OKKAR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG NÝT ALDREI GAMANMYNDAR ÞEGAR
ÞÚ HLÆRÐ BARA ALLAN TÍMANN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að deila Wi-fi-inu
þínu þegar hennar er
dottið út.
STUNDUM GET
ÉG EKKI SOFIÐ
MIG MINNIR AÐ
ÞAÐ HAFI VERIÐ 8.
NÓVEMBER 1992.
AF HVERJU
ERTU AÐ GRÁTA,
HEPPNI EDDI?
ÉG FÉKK
EITTHVAÐ Í
AUGUN!
AUGSÝN AF
ÓVININUM!
HVAÐ FÉKKSTU
Í AUGUN?
Í dag er þjóðhátíðardagur Íslend-inga sem fólk heldur upp á með
mismunandi hætti. Margir fara nið-
ur í miðbæ Reykjavíkur, sumir til að
fylgjast með hátíðardagskrá við
Austurvöll en aðrir mæta síðar um
daginn og skemmta sér með skát-
unum í Hljómskálagarðinum, borða
risastórt „candy floss“ í Austur-
stræti, kaupa sleikjó fyrir börnin
sem eru stærri en haus þeirra eða
blöðrur sem eru á stærð við mann-
eskju og kosta líka hálfan handlegg.
x x x
Þetta er allt gott og gilt en ekkiuppáhaldsleið Víkverja til að
halda upp á daginn. Þegar Víkverji
var búsettur í miðbænum keyrði
hann oftar en ekki út úr bænum á
þessum degi, eða að minnsta kosti í
önnur hverfi eða nálæg bæjarfélög.
Til að mynda hefur Víkverji nokkr-
um sinnum hitt víkinga í Hafnarfirði
en enn oftar farið á Árbæjarsafn.
Það er eitthvað sérstaklega þjóðlegt
við að halda upp á daginn í safninu.
x x x
Fallegir þjóðbúningar verða í aðal-hlutverki á Árbæjarsafni þann
17. júní venju samkvæmt, segir á
Facebook-síðu safnsins um dag-
skrána í ár. Fjallkonu safnsins verð-
ur skautað klukkan 14 og geta gestir
fylgst með því hvernig faldur, fald-
blæja og spöng eru sett upp og borin
við skautbúning. Víkverji hefur
fylgst með þessu og það er sann-
arlega tilkomumikil sjón.
x x x
Svo er eitthvað svo miklu ís-lenskara að borða lummur held-
ur en að verða klístraður af syk-
urbómull. Og hvað þá að sjá spunnið
á rokk heldur en að leika sér að
fingrasnældum.
x x x
Aðgangur að Árbæjarsafni (ogfleiri söfnum) er innifalinn í
menningarkortinu sem Víkverji
kaupir alltaf. Menningarkortið gildir
nefnilega líka sem bókasafnskort
sem er góður bónus. Hvað sem þið
gerið í dag, og hvort sem það verður
sól eða rigning, til hamingju með
daginn! vikverji@mbl.is
Víkverji
Það er andinn sem lífgar, maðurinn
án hans megnar ekkert. Orðin sem ég
hef talað til yðar, þau eru andi og þau
eru líf.
(Jóh. 6:63)
)553 1620
Lauga-ás hefur
frá 1979 boðið
viðskiptavinum
sínum upp á úrval
af réttum þar sem
hráefni, þekking
og íslenskar
hefðir hafa verið
höfð að leiðarljósi.
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Við bjóðum m.a. upp á:
Súpur
Grænmetisrétti
Pastarétti
Fiskrétti
Kjötrétti
Hamborgara
Samlokur
Barnamatseðil
Eftirrétti