Læknablaðið - 01.01.2017, Síða 42
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
42 LÆKNAblaðið 2017/103
sjúklingar fá þar þjónustu árlega og
koma þeir flestir beint frá bráðadeildum
Landspítala.
Á Kristnesspítala, endurhæfingardeild
Sjúkrahússins á Akureyri, eru pláss fyr-
ir 26 sjúklinga, 21 sólarhringspláss og 5
dagdeildarpláss. Deildin er 5 daga deild
en möguleiki á að fjórir einstaklingar geti
verið á deild öldrunarlækninga, sem er í
sama húsi, um helgar.
Á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fer
einnig fram fjölbreytt endurhæfingarstarf-
semi.
Teymisvinna
Starfsemi endurhæfingarstofnana ein-
kennist af samvinnu margra heilbrigðis-
stétta. Unnið er í teymum sem starfa undir
stjórn sérfræðinga í endurhæfingarlækn-
ingum. Teymisvinna hefur frá upphafi
verið einkennandi fyrir allt endurhæf-
ingarstarf. Teymisvinna hefur þróast á
undanförnum árum og áratugum frá því
að vera fjölfagleg (multidisciplinary) yfir í
þverfaglega (interdisciplinary) teymisvinnu.
Í þverfaglegum teymum er endurhæf-
ingarmat og meðferð skjólstæðings sam-
eiginleg svo og markmiðssetning. Skjól-
stæðingurinn verður hluti af teyminu.
Mikilvægt er að endurhæfing fari fram
á réttu og um leið hagkvæmasta þjónustu-
stigi.
Framtíðin
Eftirspurn eftir endurhæfingu er mikil
og nauðsynlegt að úrræði endurhæfingar
verði aukin. Búast má við að þörf fyrir
endurhæfingu aukist eftir því sem lækna-
vísindunum fleygir fram og fleiri lifa af
erfiða sjúkdóma og slys. Þróun þekkingar
og tækni í endurhæfingarlækningum tek-
ur miklum framförum nú um stundir. Má
þar nefna aukna þekkingu á eiginleikum
taugavefs með samhliða framþróun í með-
ferð og endurhæfingaraðferðum. Tölvu-
tæknin er að færa okkur ótal möguleika
í rannsóknum, þjálfun og meðferð fólks
með færniskerðingu. Það eru því sannar-
lega spennandi tímar framundan og næg
verkefni fyrir ungt fólk sem valið hefur
sér lækningar að ævistarfi. Á nýafstöðnum
aðalfundi Landssambands heilbrigðis-
stofnana var haldið málþing um sérhæf-
ingu í heilbrigðiskerfinu og tóku þar
meðal annars þátt fulltrúar velferðarráðu-
neytis og Embættis landlæknis. Kom fram
í máli margra ræðumanna að leggja þurfi
meiri áherslu á teymisvinnu og að hlúa að
einstaklingum með langvinna sjúkdóma.
Þá kom og fram að eitt af forgangsmálum
ráðuneytisins er stefnumörkun í endur-
hæfingu á Íslandi. Félag íslenskra endur-
hæfingarlækna er tilbúið að leggja sitt af
mörkum í þeirri vinnu.
Formaður Félag íslenskra endurhæfingarlækna
er Magnús Ólason
magnuso@reykjalundur.is
Árshátíð LR 2017
LAUGARDAGINN 21. JANÚAR Í SILFURBERGI
✓ Fordrykkur kl 19
✓ Feðgarnir Haukur Heiðar og Haukur Heiðar leika létt lög
✓ Veislustjóri verður Ragnar Freyr læknir,
- kokkurinn í eldhúsinu
✓ Tveggja rétta matseðill, og svo kaffi og konfekt
✓ Mugison kemur að vestan!
✓ The Band Aids, eldhress hljómsveit unglækna
og læknanema
Verð 15.500 kr