Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Side 12
12 20. apríl 2018fréttir Alþingismenn á leigumarkaði F immtíu og fimm af 63 al- þingismönnum búa í eig- in húsnæði samkvæmt út- tekt DV. Sjö alþingismenn búa í leiguhúsnæði en einn í for- eldrahúsum. Það þýðir að 87% þingmanna eiga sitt eigið hús- næði, 11% eru á leigumarkaði og 2% eru í foreldrahúsum. Sam- kvæmt könnun MMR undir lok síðasta árs eiga 70% af Íslending- um, sem eru eldri en 18 ára, sitt eigið húsnæði, 18% búa í leigu- húsnæði en 10% í foreldrahúsum. Hlutfall þeirra sem eiga húsnæði sitt er hærra eftir því sem ald- ur þátttakenda er hærra. Þannig eiga 93% Íslendinga á aldrinum 50–67 ára eigið húsnæði og aðeins 5% eru á leigumarkaði. Það er því hægt að segja að staða þingmanna á húsnæðismarkaði sé ágætis þverskurður af stöðu þjóðarinnar sem þeir þjóna. Píratar eru sá stjórnmálaflokk- ur sem flestir þingmanna sem ekki eiga sitt eigið húsnæði tilheyra. Alls eru tveir þingmenn Pírata á leigumarkaði en einn býr í for- eldrahúsum. Það þýðir að 50% af sex manna þingflokki Pírata á ekki sitt eigið húsnæði. Sama hlutfall er hjá Flokki fólksins, tveir þingmenn af fjögurra manna þingflokki er á leigumarkaði. Að auki eru tve- ir þingmenn Sjálfstæðisflokksins á leigumarkaði sem og einn þing- maður Vinstri grænna. Rétt er að geta þess að í úttekt DV eru ekki tilteknir þeir alþingis- menn af landsbyggðinni sem leigja sér íbúð í höfuðborginni og halda þannig tvö heimili. n Sjö leigja og einn í foreldrahúsum Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Þingflokksformaður Pírata leigir íbúð í fallegu húsi við Miðstræti 10 í hjarta miðbæjarins. Leigusamningi er ekki þinglýst. Þórhildur Sunna svaraði ekki fyrirspurn DV um upplifun hennar af leigumarkaði. Ásmundur Friðriksson Ásmundur sker sig svolítið frá öðrum þingmönnum á leigumarkaði því hann á sitt eigið íbúðarhúsnæði. Ásmundur og eiginkona hans seldu einbýlishús sitt í sveitarfélaginu Garði á síðasta ári en fjárfestu síðan í íbúð í Innri-Njarðvík sem þau leigja út. Sú íbúð er um 115 fermetrar að stærð og er leiguverðið yfir 200 þúsund krónur á mánuði. Á meðan leigja hjónin tæplega 90 fermetra íbúð við Vatns- nesveg 29 í Reykjanesbæ og er leiguverðið 80 þúsund krónur á mánuði. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Ólafur Ísleifsson Samherji Ingu leigir íbúð að Melabraut 7 á Seltjarnarnesi en fyrrverandi eiginkona hans, Dögg Pálsdóttir lögfræðingur, á íbúðina í gegnum félagið Málsefni ehf. Í stuttu svari til DV sagði Ólafur að sér liði ágætlega þar sem hann býr. Um skoðanir sínar á íslenska leigumarkaðinum sagði Ólafur: „Ég tel æskilegt að leigumarkaður fyrir íbúðarhúsnæði á Íslandi þróist í svipaða átt og gerst hefur í nágrannalöndunum. Fólk hefur þá val um hvort það vill fjárfesta í húsnæði eða leigja en nýtur í báðum tilfellum svipaðs langtíma- öryggis. Það er nauðsynlegt að skapa skilyrði til þess á húsnæðismarkaði að hann einkennist af auknu og fjölbreyttara framboði en verið hefur til þessa.“ Inga Sæland Búseta Ingu hefur verið til umfjöllunar á síðum DV undanfarin misseri. Inga hefur leigt íbúð af Brynju, hússjóði Öryrkjabandalagsins, undanfarin sjö ár. Samkvæmt þinglýstum leigusamningi var húsaleigan rúmlega 110 þúsund krónur á mánuði en í kjölfar fyrirspurnar DV og umfjöllunar um málið þá steig Inga fram og sagðist hafa gert samkomulag við sjóðinn um að greiða tvöfalda húsaleigu á meðan hún sæti á þingi, þar sem hún þiggur um 1,7 milljónir króna í mánaðarlaun. Rétt er að geta þess að sú húsaleiga er enn talsvert undir markaðsverði. Var Ingu tíðrætt um illgirni blaðsins þegar þeirri spurningu var varpað fram hvort eðlilegt gæti talist að hún héldi enn í íbúðina í ljósi þess að 500 öryrkjar eru á biðlista eftir íbúð og biðtíminn er um fjögur ár. í skjóli fyrrverandi tækifærin leynast víða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.