Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Síða 27
20. apríl 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Hjólreiðar
Reiðhjólaunnendur eiga í vændum mikið ævintýri þegar líða tekur á sum-
arið en dagana 9.–12. ágúst
stendur yfir þriggja daga hjól-
reiðaleiðangur þar sem farinn
er 290 km hringur í kringum
Langjökul, byrjað við Geysi
og endað við Gullfoss. Á næt-
urnar milli hjólaleiðanna er gist
í tjaldbúðum eða fengin hugguleg
innigisting, fyrst í Húsafelli og síðan á
Hveravöllum. Það er engin tilviljun að
þessir staðir eru næturstaðir kepp-
enda því báðir bjóða upp á yndislega
náttúrufegurð og góða aðstöðu
með baðstað og veitingastöðum þar
sem keppendur njóta kvöldverðar og
morgunverðar. Hægt er að fá alla
þjónustu innifalda í skráningu eða
taka klapplið með sér sem sér um
næturstæði, fæði og hvatningu.
En er þetta hjólaævintýri fyrir alla?
„Í WOW Glacier 360 er krefjandi
hjólaleið. Til þess að njóta ævintýr-
isins þarf maður að vera vanur því
að sitja á hjólinu og treysta sér til að
vera á ferðinni í 4-6 klst. Við mælum
því alltaf með einhverjum undirbún-
ingi sé fólk ekki vant þessum ferða-
máta. Hins vegar er vel séð um fólk
og hægt er að stoppa á leiðinni til að
grípa sér drykk og snarl,“ segir Björk
Kristjánsdóttir hjá Made in Mounta-
ins sem stofnaði og heldur keppnina.
Það eru enn nokkrir mánuðir til stefnu
og um að gera að fara að æfa sig
sem fyrst svo maður njóti þessa æv-
intýris sem best þegar það brestur á
í ágúst.
En hvernig hjól er best að nota?
„Við höfum séð alls konar fáka á
ferðinni í þessari keppni en ef við
ættum að mæla með einni gerð
myndum við segja að „short travel
full suspension“ hjól væri vinnings-
hafinn. Leiðin er sannkallað bland í
poka, malarvegir, þröngar brautir,
grýttir slóðar og fleira skemmtilegt.
Hver dagur býður
upp á eitthvað nýtt
þannig að það er
erfitt að segja að
það sé eitt rétt
hjól þar sem flestir
myndu líklega velja
sér nýtt fyrir hvern
hluta af leiðinni.
Hins vegar er bara
leyfilegt að vera
með eitt stell,“ segir
Björk.
Eins og allir vita
er íslensk veðrátta
óútreiknanleg, líka á sumrin, en
Björk segir kjörorðið í þessum
efnum sé að vona það besta en
búa sig undir það versta: „Það er
auðvitað algjör draumur að hjóla
í hlýju, björtu og fallegu veðri
en við lítum einnig á það sem
ákveðið ævintýri að takast á við
óblíða náttúru landsins. Keppn-
ishaldarar munu tryggja öryggi
keppenda og gæta þess að
brautin sé örugg áður en lagt er
af stað, tilbúin með plan B gerist
þess þörf.“
Upplýsingar um hjólaleiðir er
að finna á https://www.glaci-
er360.is/details-itinerary/ og
aðrar frekari upplýsingar, sem
og skráning, eru á https://www.
glacier360.is/
Ævintýraleiðangur
hjólafólksins
WOW GLaciEr 360
Mynd: Guðmundur Halldórsson
Mynd: Cecilia Limberg Rönne
Mynd: cecilia Limberg rönne
Mynd:
Hörður
Ragnarsson