Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Qupperneq 31
 20. apríl 2018 KYNNINGARBLAÐ Hjólreiðar Einhver mesti hjólreiðakappi heims, George Hincapie, verður heiðursgestur KIA Gullhringsins í sumar. Enginn maður í heiminum hef- ur hjólað í fleiri Tour De France keppn- um og aðeins einn annar hefur verið jafn oft í sigurliði Tour De France. Margir af gömlu liðsfélögum og mótherjum George gera sér ferð hingað og keppa í mótinu og eru goðsagnir eins og Þjóðverjinn Erik Za- bel, Bobby Julich og Christian Vande Velde meðal keppenda. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem George kemur til Íslands en sumarið 2015 hjólaði hann í WOW Cyclothon að frumkvæði Þorvaldar Daníelsson- ar. Endurbætur gerðar á keppninni Mótshaldarar KIA Gullhringsins hafa síðan í haust unnið að endurskoðun keppninnar vegna slysa sem urðu í henni í fyrra. Fundað hefur verið með Lögreglunni á Suðurlandi og Vega- gerðinni í Reykjavík og á Suðurlandi síðan í september um hvernig efla megi öryggi keppenda. Hugsanleg lokun fyrir bílaumferð á þeim stutta tíma sem keppendur fara um svæðið hefur verið til skoðunar. Vel hefur ver- ið tekið í allar hugmyndir mótshaldara og gagnlegar ábendingar einnig kom- ið frá þessum aðilum. Ræsingartími færður og lokun á umferð Ræsingartími mótsins verður verið færður til 19.00 í stað 18.00 til þess að gera lokun brautarinnar auðveldari í framkvæmd. Þá er umferð um svæðið enn umfangsminni. Sérstakur öryggis- stjóri hefur verið fenginn inn í teymið sem mun samhæfa vinnu Björgunar- sveita, viðbragðsteymis, lögreglu og Vegagerðar svo allt sé á einni hendi. Einnig verður gæsla efld enn meira bæði innan og utan brautar. Móts- haldarar hafa samið við Lögregluna á Suðurlandi um þjónustu þriggja lög- reglubíla sem munu fylgja keppninni og vinna með keppninni í kringum lokanir. Kemur þetta til viðbótar við allt annað viðbragðsteymi sem við höfum verið með. Þá munum við bæta við brautar- bílum og gera fleiri öryggisráðstafanir. Óháður sérfræðingur í umferðar­ öryggi ráðinn Ólafur Kr. Guðmundsson hefur verið fenginn til þess að vinna öryggis- úttekt á keppnisbrautum KIA Gull- hringsins í komandi keppni næsta sumar. Ólafur er helsti sérfræðingur landsins í umferðaröryggi. Hann er varaformaður FÍB og fulltrúi Eur- oRAP (European Road Assessment Programme) en verkefni þess er að kortleggja vegi og ástand þeirra út frá öryggissjónarmiðum. Ólafur mun vinna þá úttekt mánuði fyrir keppni og munu mótshaldarar birta þá skýrslu á heimasíðu keppn- innar og vinna að öryggisúrbótum með viðeigandi aðilum fram að keppni. Önnur úttekt verður svo unn- inn síðasta sólarhringinn fyrir keppni en þá verður ljóst hvaða svæði verða orðin örugg og hvaða svæði verða metin sem sérstök öryggis áhættu- svæði og séð til þess að þau verði merkt sem slík og athygli keppenda vakin á því. Innri öryggisstjóri skipaður í teymið Þá hefur Þórir Erlingsson verið skip- aður öryggisstjóri KIA Gullhringsins. Þórir er með meistaragráðu í al- þjóðlegri ferðaþjónustu frá Háskól- anum í Suður-Karólínu. Hann kennir ferðaþjónustustjórnun við Háskólann á Hólum. Þórir rak um tíma fyrir- tæki sem sérhæfði sig í öryggis- og forvarnarlausnum og vörum fyrir heimili og fyrirtæki og þá hefur hann áratuga reynslu af björgunarsveit- arstörfum á Íslandi og starf hans mun felast í úrvinnslu ábendinga úr öryggisúttektum EuroRAP, öryggis- merkingum í keppnisbrautum og samhæfingu og samskiptum björg- unar- og viðbragðsaðila mótsins við stjórnendur. Áhersla á umfangsmikið viðbragðs­ teymi Áfram verður unnið með Björg- unarsveitum á Laugarvatni og Selfossi, Lögreglunni á Suðurlandi og Sjúkraflutningum í Árnessýslu að því að á Laugarvatni verði öfl- ugasta viðbragðsteymi sem völ er á í hjólreiðakeppni á Íslandi. Tvær björgunarsveitir með viðbragðsbíla, sjúkraflutningabíll, læknir og sjálf- boðliðar hafa komið að innri öryggis- málum í keppninni til þessa og munu gera áfram. Í keppninni í fyrra voru viðbragðsteymi lögreglu og sjúkra- flutninga í fyrsta sinn staðsett á Laugarvatni ofan á annan viðbúnað keppninnar þar. Eins og flestir vita varð alvarlegt slys í keppninni í fyrra, en eftir að slysið var tilkynnt var allt tiltækt lið lögreglu, sjúkraflutninga, og björgunarsveita komið á slysstað á um það bil 15 mínútum. Njóta eða þjóta Gildi keppninnar verða áfram: Vin- átta, virðing og keppni – og verða þau í hávegum höfð. Keppendur í Silfurhring geta valið um „njóta“ eða „þjóta“ ræsingu. Sú fyrrnefnda er fyrir þá sem eru umfram allt hjóla til að hafa gaman og keppa við sjálfa sig en sækjast ekki eftir að slá brautarmetin. Í stað drykkjastöðvar verða „gleði- stöðvar“ þar sem bæði verður boðið upp á mat, drykk og alls konar uppá- komur. KÍA Gullhringurinn 2018 Hér er hægt að skrá sig í Gullhringinn: http://gullhringurinn.competiz.com/ Meira um KIA Gullhringinn: www.kiagullhringurinn.is Meira um KIA: http://www.kia.com/is/ Meira um EuroRap: http://www.eurorap.org/partner­countries/iceland/ George Hincapie
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.