Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Blaðsíða 34
20. apríl 2018KYNNINGARBLAÐHjólreiðar
Reiðhjólasalan er orðin aðal-búgreinin hérna, ég byrjaði að flytja inn reiðhjól fyrir þrem-
ur árum en er búinn að vera miklu
lengur í viðgerðum,“ segir Eiríkur
Ingi Kristinsson hjá Reiðhjóla- og
sláttuvélaþjónustunni, Vagnhöfða
6 í Reykjavík, og segir jafnframt að
reiðhjólasala og reiðhjólaviðgerðir fari
prýðilega vel saman.
Eiríkur byrjaði að gera við reiðhjól
árið 1986. Hann lagði þann starfa
af mörgum árum síðar en í hruninu
gerðist hvort tveggja að Eiríkur sjálfur
þurfti að skipta um starfsvettvang
og eftirspurn eftir viðgerðum stórjó-
kst og hann stofnaði Reiðhjóla- og
sláttuvélaþjónustuna.
„Þegar rignir þá er meira að gera í
sláttuvélunum og þegar það er gott
veður er meira að gera í reiðhjólun-
um,“ segir Eiríkur sem hefur reynt að
gæta þess að reksturinn verði ekki
of umfangsmikill því hann vill halda
þessu sem fjölskyldufyrirtæki. Hann
hefur lengst af starfað einn í fyrir-
tækinu en sonur hans, Eyþór Eiríks-
son, sem er mikið í hjólasporti, starfar
þar nú með föður sínum.
„Sláttuvélaviðgerðirnar hafa held-
ur verið á undanhaldi og við höfum
jafnvel verið að bræða með okkur að
hætta með þær og einbeita okkur að
reiðhjólasölu og reiðhjólaviðgerðum
því það er svo mikill vöxtur í því. Ég
gæti líklega selt miklu fleiri reiðhjól
en ég geri en ég vil ekki að þetta vaxi
mér yfir höfuð, ég vil halda þessu
sem litlu fjölskyldufyrirtæki,“ segir
Eiríkur en vöxtur hljóp í starfsemina
vorið 2015 er hann hóf að flytja inn
hollensku reiðhjólin Sensa. Hafa þessi
reiðhjól notið mikilla vinsælda en alls
konar gerðir af Sensa-hjólum eru í
boði, fjallahjól, götuhjól, keppnishjól
og margt fleira.
„Sensa á það sameiginlegt með
okkur að vera líka fjölskyldufyrirtæki
en fyrirtækið hefur vaxið mikið og
þeir selja nú hátt í 30.000 hjól á ári,“
segir Eiríkur en alls konar aukahlutir
og varahlutir í hjólin eru líka til sölu í
versluninni.
Verkstæðið er vel tækjum búið
enda liggur áratuga reynsla í við-
gerðum að baki. „Við erum hér með
öll helstu tól og tæki til viðgerða á
reiðhjólum og sláttuvélum. Ekki þarf
að panta tíma í viðgerðir heldur
nægir að koma á staðinn með bilaða
reiðhjólið eða sláttuvélina og við-
gerð er oftast lokið samdægurs eða
næsta dag,“ segir Eiríkur.
Sem fyrr segir er Reiðhjóla- og
sláttuvélaþjónustan til húsa að
Vagnhöfða 6, 110 Reykjavík. Opið er
mánudaga–fimmtudaga frá kl. 10–18,
föstudaga 10–17 og laugardaga
13–16. Nánari upplýsingar eru á vef-
síðunni reidhjol.com.
Fjölskyldufyrirtækið sem
selur þér framúrskarandi
reiðhjól og gerir við þau
Eyþór Eiríksson