Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Page 49
sakamál 4920. apríl 2018 13 ára bandarískur drengur, Craig M. Sorger, var myrtur á hrottalegan hátt af 12 ára vinum sínum, Evan Drake Savoie og Jake Lee Eakin, 15. febrúar 2003. Sorger hafði fengið leyfi hjá móður sinni til að leika sér með félögum sínum tveimur, en skilaði sér ekki heim. Þegar lík hans fannst sögðu vinirnir að hann hefði dottið ofan úr tré. Líkskoðun leiddi annað í ljós því hann hafði verið barinn ítrekað í höfuð og háls og stunginn rúmlega 30 sinnum á sömu stöðum og átta sinnum í bringuna. Eakin fékk 14 ára dóm og Savoie 26 ára dóm. að Gibbs hefði farið með börn- in í gönguferð en orðið áhyggju- fullar og hringt í eiginmenn sína þegar leit í næsta nágrenni bar ekki árangur. Þegar þær síðan fréttu af lausnargjaldskröfunni gátu þær ekki haldið aftur af tárunum. Jock, eiginmaður Thelmu, sagði að þetta væri ótrúlegt og „þau gætu lítið annað gert en að bíða og vona“. Hótað morðum Annar faðir, Rex Howarth, sagði: „Bara skepna mundi gera svona við sex litlar stúlkur.“ Hann bætti við að það væri þó huggun í að vita að Gibbs væri með stúlk- unum, hún væri „skynsöm og áreiðanleg ung kona og mundi hugsa um hag þeirra fyrst og fremst“. Það einfaldaði ekki störf lög- reglunnar að í nokkrar klukku- stundir var talstöðvartíðni hennar rugluð og var talið ljóst að það tengdist mannráninu. Engu að síður mætti fjöldi lögreglumanna á svæðið og viðamikil leit var skipulögð, þrátt fyrir að mannræninginn hefði, í áður nefndum leiðbein- ingum, hótað morðum ef slíkt yrði gert. Leitað dyrum og dyngjum Allar tómar byggingar voru rannsakaðar og ríkisstjóri Vict- oria-fylkis tilkynnti að ríkis- stjórn hans væri tilbúin til að reiða fram lausnarféð. Alla næstu nótt var leitað dyr- um og dyngjum, en klukkan sex um morguninn bárust þau góðu tíðindi að Gibbs og stúlkun- um hefði tekist að flýja og væru hólpin. Gibbs gat þá upplýst að um væri að ræða tvo mannræningja. Þeir hefðu komið inn í kennslu- stofuna með hlaupsagaða haglabyssu. „Stúlkurnar fóru að hlæja, héldu að um væri að ræða eitthvert grín,“ sagði hún. Mennirnir hefðu þá gert öll- um ljóst að um fúlustu alvöru væri að ræða. Mannræningjar gefa fyrirmæli Gibbs og börnin voru sett aft- ur í sendiferðabíl og síðan ekið af stað. „Við urðum skelfingu lostin þegar við gerðum okkur grein fyrir að þetta var að gerast í alvörunni,“ sagði Gibbs síðar. Klukkan tvö eftir miðnætti læstu mannræningjarnir börn- in og kennslukonuna inni í bíln- um: „Þeir sögðu að þeir væru að fara og ná í lausnargjaldið.“ Það reyndist rétt, því skömmu síðar fékk lögreglan símtal. Mannræningjarnir gáfu þau fyr- irmæli að lausnarféð skyldi sett á tröppurnar við pósthúsið í Woodend, sem liggur miðja vegu milli Faraday og Melbourne. Gibbs sagði að það hefði verið mjög kalt í sendiferðabílnum um nóttina. „Okkur kom ekki dúr á auga. Við reyndum að drepa tím- ann með söng, en vorum ekki í skapi til þess.“ Gripið í tómt Lögreglan fór að fyrirmælunum og skildi þrjár ferðatöskur, sem samtals innihéldu eina millj- ón dala, eftir á tröppunum. Eft- ir tveggja tíma bið hafði ekk- ert bólað á mannræningjunum og lögreglunni varð ljóst að hún hafði verið látin fara erindisleysu. Hvað sem því leið sat Gibbs ekki auðum höndum þar sem hún var með börnin aftur í læst- um sendiferðabílnum. Að henn- ar sögn höfðu mennirnir sagt að þeir kæmu aftur í dögun en þegar það gekk ekki eftir ákvað hún að reyna að brjótast út úr bílnum. Fyrir tilviljun var kennslukon- an ekki í pjáturskóm og af miklu harðfylgi sparkaði hún aftur og aftur í hurðina á sendiferðabíln- um. Smám saman tókst henni að sparka út hlera á afturhurðinni og uppskar umbun erfiðis síns. Gíslarnir koma í leitirnar Þær skriðu út úr bílnum og hröð- uðu sér af vettvangi. „Allan tím- ann óttaðist ég að mannræningj- arnir næðu okkur. Svo heyrði ég skothvelli og varð dauðskelfd,“ sagði Gibbs. Ótti hennar var ástæðulaus því um var að ræða tvær manneskj- ur á kanínuveiðum sem hjálpuðu Gibbs og stúlkunum að komast á næstu lögreglustöð. Var farið með allan hópinn á sjúkrahús, enda voru stúlkurnar og Gibbs lúnar, svangar og miður sín eftir raun- irnar. Sendiferðabíllinn kom fljót- lega í leitirnar og lögreglan rakti hann til bílasala sem hafði selt hann mannræningjunum. Gripnir í morgunsárið Lýsingu á mönnunum var dreift og þess þurfti ekki að bíða lengi að lögreglan kæmist á slóð þeirra. Robert Clyde Boland, 32 ára múr- ari, og Edwin John Eastwood, 21 árs, voru gripnir með allt niðri um sig, í nánast bókstaflegri merk- ingu, í morgunsárið 14. október. Síðar sama dag voru þeir færð- ir fyrir dómara og var eftir því tek- ið að Boland var berfættur. Ákær- an á hendur þeim báðum var í sjö liðum. Í desember játaði Eastwood sig sekan um mannrán og fékk 15 ára fangelsisdóm. Hann fékk felldar niður þrjár ákærur vegna vopn- aðra rána gegn því að hann vitn- aði gegn Boland. Réttað var í þrígang yfir Bol- and og hann loks dæmdur, í mars 1974, í 17 ára fangelsi. Í janúar var Mary Gibb sæmd George-orðunni fyrir það æðru- leysi og áræði sem hún sýndi á ögurstundu. Edwin John Eastwood komst aftur í fréttirnar árið 1976, en það er önnur saga. n „Allan tímann óttaðist ég að mann- ræningjarnir næðu okkur. Svo heyrði ég skothvelli og varð dauðskelfd. Mary Gibbs og stúlkurnar Kennslukonan var heiðruð fyrir áræði sitt og dugnað. Sendiferðabíllinn Kennslukonunni tókst að brjóta sér leið út. Robert Clyde Boland Samdi við ákæruvaldið og vitnaði gegn félaga sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.