Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Síða 56
56 20. apríl 2018 Tímavélin Gamla auglýsinginDV 27. mars 1991 Gunnar og Snorri vildu stöðva mynd Scorsese Fáar kvikmyndir hafa valdið jafn miklum úlfaþyt og Síð- asta freisting Krists eft- ir Martin Scorsese frá ár- inu 1988. Myndin, sem fjallar meðal annars um baráttu Jesú við freistingar holdsins, var bönnuð í mörgum löndum, þar á meðal Mexíkó, Grikklandi og Filippseyjum. Á Íslandi reyndu trúarleiðtogar á borð við Gunn- ar Þorsteinsson í Krossinum, Snorra Óskarsson í Betel og Jakob Rolland, prest Landa- kotskirkju, að stöðva sýningu myndarinnar í kvikmyndahús- um og sendu ríkissaksóknara bréf þess efnis. „Hér er um að ræða kvikmynd, sem á allan hátt særir trú okkar og allt sem okkur er heilagt. Öllu trúar- uppeldi stafar hætta af þeirri afbökun, rangfærslu og háði, sem kristin trú verður fyrir í þessari kvikmynd.“ Þrátt fyr- ir að myndin hafi verið sýnd í kvikmyndahúsum var í þrígang hætt við sýningu hennar í sjón- varpi vegna þrýstings. Þ ó að flest raflagnakerfi Ís- lands séu sambærileg þeim sem tíðkast á megin- landi Evrópu þá má finna í mörgum húsum það sem landinn kallar „ítalska kerfið“. Kerfið, sem heitir Ticino, náði útbreiðslu hér á landi á sjöunda og áttunda ára- tugnum en síðar fór það úr al- mennri notkun. Margir hafa þó furðað sig á því af hverju kerfið er enn svo útbreitt en það þekkist varla í nágrannalöndunum í dag. Málmiðnaðar- og raflagnafyr- irtækið Ticino var stofnað árið 1936 og árið 1961 kom Magic-ser- ían þeirra á markað. Íslendingar þekkja þetta enda stendur Magic á innstungunum. Þetta sama ár flutti fyrirtækið Falur hf. í Kópa- vogi kerfið inn til landsins. Í tísku í Breiðholti Helgi Þórður Þórðarson, raf- virkjunarkennari í Tækniskólan- um, segir að kerfið hafi þótt mik- il nýjung á sínum tíma. „Kerfið varð mjög vinsælt af því að það gaf möguleika á því að hafa þrjá rofa í einni dós sem þekktist ekki áður. Þetta er mjög flottur búnað- ur, alls ekki dýr og er enn notað- ur í dag. Að vísu má segja að það sé ákveðinn galli að fólk þarf að skipta út öllum klóm á heimilis- tækjum eða nota millistykki til að tengjast kerfinu.“ Stefnir Helgason, forstjóri Fals, var duglegur að kynna þessa nýjung fyrir landsmönnum. Til dæmis á Akureyri þar sem plast- verksmiðjan Bjarg, í eigu Sjálfs- bjargar, hóf framleiðslu á rofum og tengidósum fyrir Ticino árið 1970. Fram að þeim tíma hafði allt verið flutt beint inn frá Ítalíu. Helgi segir: „Þetta komst í tísku um miðj- an sjöunda áratuginn þegar Breiðholtið var að byggjast upp. Mig minnir að kerfið hafi verið sett í flestallar nýjar íbúðir sem voru byggðar þar.“ Þessi tíska leið undir lok á ní- unda áratugnum en nýrri útgáf- ur Ticino eru enn þá seldar í dag hjá S. Guðjónsson. Auk Íslands og Ítalíu náði Magic-serían tölu- verðri útbreiðslu í Chile. Stefnir Helgason lést þann 10. apríl síð- astliðinn. n Furðuleg útbreiðsla Ticino á Íslandi Stefnir Helgason kynnir Ticino á Akureyri 1970.. Strippklúbbasprengjan Á rin frá um 1995 til 2005 ein- kenndust af því sem sum- ir kalla klámvæðingu en aðrir kynfrelsi. Á þessum tíma varð Bleikt & blátt eitt mest lesna tímarit landsins, Rauða lín- an velti milljónum, erótískt efni á borð við Red Shoe Diaries var sýnt á Stöð 2, tvær erótískar kvikmynd- ir voru framleiddar hér á landi og Palli og Rósa voru með sín klám- kvöld á Spotlight. Í einni vendingu hætti klám og kynlíf að vera feimn- ismál. Fylgifiskur þessarar þróun- ar var uppgangur nektardansstaða sem spruttu upp eins og gorkúlur á höfuðborgarsvæðinu og höluðu inn hundruðum milljóna króna á ári hverju. Bóhem Íslendingar höfðu kynnst erlend- um fatafellum áður en Café Bó- hem kom til sögunnar. Til dæm- is hinni dönsku Susan Haslund sem baðaði sig á skemmtistöð- um, félagsheimilum og öðrum samkomuhúsum á áttunda og ní- unda áratugnum síðustu aldar. Einnig höfðu íslensk ungmenni fækkað fötum á sýningum hjá hin- um skammlífa Pan-hópi á Upp og niður. Árið 1994, þegar nektarsýn- ingar hófust á Bóhem, var jarðveg- urinn hins vegar mun frjórri. Bóhem var stofnaður í des- ember árið 1993 á Vitastíg en þá ekki sem nektardansstaður. Þetta var fyrst og fremst tónleikastað- ur þar sem margar af framsækn- ustu hljómsveitum landsins komu fram. Ári síðar var farið að bjóða upp á „stripp“ á staðnum og síðar var staðurinn fluttur á Grensásveg. Til að byrja með fækkuðu fimm íslenskar stúlkur fötum á Bóhem en ekki leið á löngu þar til erlendar meyjar fóru að troða upp, aðallega frá Austur-Evrópu og Taílandi. 100 dansarar Nektardansmeyjarnar störfuðu sem verktakar á stöðunum og sóttu sínar tekjur sjálfar. Þó með þeirri tryggingu staðanna að ef þær næðu ekki lágmarksupphæð á mánuði var farmiðinn fyrir þær aftur til heimalandsins greiddur. Staðirnir sjálfir rukkuðu inn og fengu tekjur af áfengissölu. Dansararnir fengu þjórfé frá gestunum sjálfum og voru seðlar þá gjarnan settir í þveng, brjósta- haldara eða sokka. Hægt var að panta dansara á borð gegn gjaldi og kostaði það meira ef borðið var afsíðis. Einkadans fyrir viðskipta- vini gaf þó mest í aðra hönd og gat slíkur dans hlaupið á tugum þús- unda króna. Auk þess buðu stað- irnir upp á þjónustu í einkasam- Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.