Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Qupperneq 59

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2018, Qupperneq 59
menning 5920. apríl 2018 H öfundurinn Duncan Macmillan (skoskara verð- ur það varla) er nýjasta stjarnan á evrópska leik- húshimninum. Það sem er óvenjulegt við eyjarskeggjann er að hann hefur líka náð fótfestu í leikhúsinu í Berlín og Vín. Verk hans, bæði eigin höfundarverk og leikgerð annarra höfunda, hafa farið sigurför um leiksvið Evrópu. Hann var (að eigin sögn) mis- heppnaður leikari, en áttaði sig á því sjálfur í tæka tíð. Þar með hófst frægðarferill hans sem höf- undar, leikgerðarhönnuðar og leikstjóra. Það er auðfundið að sem fyrr- verandi leikari þekkir Macmillan leikhúsið út og inn. Hann skynjar meira að segja að hlutverkið get- ur verið leikaranum eins konar vímugjafi. Til vitnis um það nefn- ir hann þekkta norska leikkonu, sem þurfti sinn skammt af am- fetamíni þegar hún lifði sig inn í aðalhlutverk grísku harmleikj- anna, eins og Antígónu, Medeu og Elektru. Þetta er ekkert einsdæmi. Eru það ekki viðtekin sannindi nú til dags að snilligáfan sé á mörk- um geðbilunar, og að afburða- listamenn leiti á náðir vímuefna til að örva sköpunarkraftinn? Duncan Macmillan, höfund- ur leikritsins, kom sérstaklega til landsins á föstudaginn til að vera viðstaddur frumsýninguna. Hér er hann ásamt Gísla Erni Garðars- syni, leikstjóra sýningarinnar. Sjálfur segir höfundur að leik- húsið sé leikkonunni Emmu – að- alpersónu verksins – (eða Söru, því hún lýgur oft til nafns), eins konar flótti frá áfallastreitu hvers- dagslífsins: „Maður fær að standa á sviðinu og segja eitthvað, sem er svo satt, þrátt fyrir að vera skáldað. Maður fær að gera hluti, sem virðast hafa stærri tilgang en þú finnur í þínu eigin lífi.“ Höfundur sem skynjar þetta á auðvelt með að leggja leikur- um sínum orð í munn. Kannski er það höfuðstyrkur þessa verks. Samtöl Emmu við lækninn eru eins og flugeldasýning. Orða- skiptin springa út í stjörnugliti, heilla og töfra og afvegaleiða áhorfandann auðveldlega. Sjálf- hverfa sjúklingsins og hroki fá á sig birtingarmynd andlegra yfir- burða. En það er þvert á veruleikann, sem er sá að Emma er fársjúk, veikburða, niðurbrotin – sár- lega hjálparþurfi. „Hún á í erf- iðleikum með raunveruleikann,“ eins og hún kemst sjálf að orði – hversdagsleikann í öllum sín- um birtingarmyndum – sorg og gleði. „Það eitt að komast fram úr og takast á við daginn er mér of- viða.“ Það sem er mér efst í huga – eftir að hafa fylgst með ör- væntingu, niðurlægingu, skömm og afneitun Emmu á vegferð hennar inn og og út af meðferðar- stofnun – er samtal móður og dóttur í lokin – reyndar föður líka, þótt samband þeirra sé ekki eins náið – þegar hún er snúin heim aftur í faðm fjölskyldunnar, kom- in í gamla herbergið sitt og reyn- ir að horfast í augu við vandamál hversdagsins á ný. Það er grimmt, hatrammt og sársaukafullt samtal, þar sem engum er hlíft. Það er ekki bara líf Emmu sem er í rúst, heldur líka foreldra hennar. Botninum er náð. Árum saman hafa þau fórn- að öllu, staðið með henni í blíðu og stríðu, en nú er komið nóg. Pabbi óskar þess eins að hún væri dauð, og mamma viðurkennir í þessu samtali að hún hafi orðið að hætta að spila á píanóið, eftir að Emma braut á henni fingurna í æðiskasti. Kannski er það loksins á þessu augnabliki sem Emma viður- kennir að hún er alkóhólisti og verður að horfast í augu við það. Hún hefur ekki bara eyðilagt sitt eigið líf, heldur líka líf foreldra og aðstandenda. Það er ekki fyrr en þá sem það rennur upp fyrir henni. Hingað til hefur hún bara vorkennt sjálfri sér, aldrei hugsað út í þær þjáningar sem hún hefur valdið sínum nánustu. Fyrst eftir uppgjörið getur bataferlið hafist. Það er kannski von. Leikmyndin – hvít og mjó eins og ofvaxin pilla – liggur þvert í gegnum salinn. Góð lausn. Þar er stöðug umferð. Læknar og hjúkr- unarfólk á þeytingi með rúm og borð og stóla, áhöld og tæki – jafnvel klósett til að æla í. Aldrei stundarfriður, sífelldur erill. Nýir sjúklingar koma, aðrir fara. Mik- ið grátið, jafnvel öskrað. Framan af er Emma utangarðs í þessari hópsálarfræði. Nína Dögg Filippusdóttir vinnur eftirminnilegan leiksigur í hlutverki Emmu. Hún er hrikaleg, fer hamförum, líkaminn nötrar og skelfur, froðan fellur úr munn- vikum hennar. Hún er eins og dýr í búri, fer út úr sjálfri sér – kom- in á endastöð. Ég minnist þess ekki að hafa séð slík tilþrif á sviði áður. Slíkan ofurleik, kraft, úthald og hrollvekjandi áhrif. Samt líka samúð. Meiri háttar. Fast á hæla henni kemur Björn Thors. Berskjaldaður í barnslegri einlægni, sem fer honum svo vel. Samtöl þeirra tveggja eru marg- slungin, blæbrigðarík og áleitin. Sigrún Edda á líka sterka inn- komu, mátulega stjórnsöm, en samt svo mannleg í öllum þrem- ur hlutverkum, sem hún birtist okkur í. Og það eru þau reyndar öll, Jóhann Sigurðsson – sem fer hamförum á sviðinu og sýnir okk- ur inn í hugarheim vitfirringsins – Hannes Óli og stelpurnar, Edda Björg og Maríanna Clara, eru hófstillt og íhugul, eins og góðu starfsfólki ber að vera. Sú hugsun læðist að manni í allri þessari innhverfu sjálfs- vorkunn – því að allt eru þetta sjálfskaparvíti – að þessi um- kvörtunarefni séu harla fáfengi- leg í samanburði við hin raun- verulegu vandamál, sem hrjá meirihluta mannkyns. Ætli þeim þætti ekki harla lítið til þessar- ar sjálfsvorkunnar koma í eit- urefnaskýinu í Damaskus eða í gaddavírsgirtum flóttamanna- búðum heimsins? Út frá því sjón- arhorni er pólitísk nærsýni okkar í neysluþjóðfélögum Vesturlanda nánast skammarleg. Ofgnótt, of- drykkja, offita, kvíðaköst, þung- lyndi, sjálfsvorkunn, sjálfsmorð. Maðurinn er sjálfum sér verstur. Það fylgir sögunni að þessi leiksýning hafi fengið firna góð- ar undirtektir í Noregi, og að sýn- ingin hafi vakið heitar umræður um áfengisbölið og vímuefna- vandann. Við höfum það fyrir satt, að þrátt fyrir ríkidæmið séu Norðmenn sýnu hófsamari en við, enda arfgengur órói í okkar keltneska blóði. Í ljósi þessa er ekki fjarri að ætla að þessi sýning skírskoti rækilega til landans og slái jafn- vel öll aðsóknarmet. Leikstjórinn, Gísli Örn Garðarsson, má með sanni vera stoltur af þessu sköpunarverki sínu. n Lúxusvandamál á fyrsta farrými Bryndís Schram ritstjorn@dv.is Leikhús Fólk, staðir og hlutir Leikstjóri: Gísli Örn Garðarsson Leikmynd: Börkur Jónsson Búningar: Katja Ebbel Fredriksen Lýsing: Þórður Orri Pétursson Tónlist: Gaute Tönder og Frode Jacobsen Hljóð: Garðar Borgþórsson Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir Sýningarstjórn: Þórey Selma Sverrisdóttir Leikarar: Nína Dögg Filippusdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Jóhann Sigurðsson, Björn Thors, Hannes Óli Ágústsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Maríanna Clara Lúthers- dóttir. Frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 13. apríl síðastliðinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.