Morgunblaðið - 30.11.2017, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
TOPPLYKLASETT BORVÉL M12 VERKFÆRASKÁPUR
3/8” 12stk BPD-202c 2x2Ah 7 skúffu
Toppar: 10, 12, 13, 14, 15,
17, 18 og 19mm.
Nett borvél, tveggja hraða
með höggi.
Sterkur verkfæraskápur með
góðum brautum.
MW 48229001 MW 4933441940 TJ TBR3007B-X
7.900 kr. 25.900 kr. 39.900 kr.
Verkfærasalan
Síðumúli 11 - 108 Reykjavík | Dalshraun 13 - 220 Hafnarfjörður
560-8888 • www.vfs.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilinn er réttur til breytinga. Tilboð gildir til 30.nóv - 24.des 2017.
Morgunblaðið/Ásdís
Eðaltöffari Algero heima í Colonnata, litla fjallaþorpinu forna.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Nú er ég gamall og frið-samur, en hér áður fyrrvar ég alltaf að mót-mæla. Núna sér sonur
minn alfarið um að standa í því,“
segir Algero sem býr í hinu forna
fjallaþorpi Colonnata, í marmara-
fjöllunum í Toscana á Ítalíu. Algero
er mótmælandi af hugsjón og hann
kynnir sig alltaf sem stjórnleysingja,
enda var hann mjög virkur anarkisti
á sínum yngri árum og er stoltur af
því. „Ég var fyrir vikið oft settur í
fangelsi, en það stoppaði mig ekki, af
því við verðum að virða frelsi ein-
staklings, líka frelsi hans til að mót-
mæla,“ segir Algero með handa-
slætti og hitnar allur við að rifja upp
gamla daga.
„Ég byrjaði að vinna fullan
vinnudag aðeins 14 ára. Og ég er
ennþá grjótharður,“ segir Algero og
glottir með sígarettu í munnviki, en
hann er á áttræðisaldri og víst er að
návist hans ber vott um að þarna fer
alvöru töffari. Enda er hann orðinn
goðsögn, þessi anarkisti sem hefst
við hátt uppi í fjöllunum.
Byssuhvellir í fæðingu
„Mamma var í andspyrnuhreyf-
ingunni og þegar hún fæddi mig í
seinni heimsstyrjöldinni þá glumdu
byssuhvellir allt um kring. Ég drakk
uppreisnarandann í mig með móður-
mjólkinni. Mamma var harðdugleg
kona sem þurfti að hafa mikið fyrir
lífinu. Hún var ein þeirra kvenna
sem fótgangandi báru mat handa
námuverkamönnunum á höfðinu
hingað upp í marmaranámurnar.
Þessar konur voru kallaðar stjörn-
urnar, Le Stelle, af því ljósin sem
þær báru með sér lýstu í myrkrinu
þegar þær fóru saman í hópum með
mat í körfum. Þær gengu 15 kíló-
metra leið upp brattar hlíðar fjalls-
ins að námunum, með matarskammt
til nokkurra daga. Það er ekki
lengra síðan en svo að níræð kona
sem enn býr hér í þorpinu, hún
sinnti þessu starfi í 60 ár.“
Marmaravinnslan í fjöllunum
hjá honum Algero hófst á dögum
Rómaveldis og í þessar marmara-
námur komu gömlu meistararnir
fyrir 500 árum, Michelangelo og
fleiri, til að sækja sér efniðvið í
verkin sín, því Luni-marmarinn
frá Carrara er hágæða fyrirbæri,
sérlega mjúkur og auðvelt að
höggva í hann. Það er enn lífs-
hættulegt starf að vinna inni í
fjallinu í námunum, og enn deyr
fólk við þau störf, þó minna sé um
það nú en áður.
Jafnvel steinarnir
hér eru anarkistar
Óhætt er að mæla með að fólk á ferð um Toscana-hérað á Ítalíu geri sér ferð í
marmaranámurnar í Carrara, þar sem ferðamenn geta keypt sér rúnt inn í nám-
urnar. Í leiðinni er hægt að koma við í fjallaþorpinu Colonnata og staldra við á
litlum veitingastað hjá meistara Algero sem býr til Lardo, gæðaálegg að mestu úr
svínafitu sem liggur í kryddi og marinerast í marga mánuði í sérstökum marm-
arakerjum. Anarkistinn Algero er töffari sem tekur vel á móti fólki.
Marmarakerin Þar liggur Lardo-
fitan í kryddi í hálft ár eða heilt.
Stjarna Móðir Algero bar mat á
höfði upp fjallið til námumanna. Marmaravinnsla Carrara-marmarinn er mjúkur, eðal og sérstakur.
Lardo Gæðafæða sem sneidd er í þunnar sneiðar ofan á ristað brauð m.a.
Strit kallar á orkuríkan mat
Algero er ekki aðeins orðlagður
fyrir að vera anarkisti, hann er líka
frægur fyrir að búa til sérstakt
álegg þorpsins, Lardo di Colonnata,
gert úr svínafitu og hanterað að
fornum hætti. Lardo er víðfrægt um
alla Ítalíu og um veröld víða sem
mikil gæðafæða.
„Hér í fjöllunum getur verið
kalt og fólkið sem bjó hér í gamla
daga þurfti orkuríkan mat, feitmeti,
sérstaklega stritandi námuverka-
mennirnir. Þannig kom það til að
hér var búið til Lardo, sem er látið
marinerast í eldfornum marmara-
kerjum sem verða að vera úr hrein-
um hvítum marmara. Þar ofan í
þeim harðlokuðum er fitan í minnst
sex mánuði en mest heilt ár,“ segir
Algero og bætir við að krydd-
uppskriftin sé að sjálfsögðu háleyni-
leg, en kerin eru nudduð að innan
með hvítlauk áður en svínafitan, sem
kemur af baki svínsins, er sett þar
ofan í. Fitan er lögð í kerin í mörgum
lögum og milli þeirra eru krydd-
jurtir, pipar, sjávarsalt, hvítlaukur,
kanill, negull, múskat, anís, kóríand-
er, óreganó og rósmarín. Að hálfu
ári eða heilu liðnu er Lardo borið
fram í þunnum sneiðum, og fer
einkar vel með ristuðu brauði.
„Áður fyrr var þetta kallaður
fátækra manna matur, en nú er
þetta orðin víðfræg gæðafæða sem
heimsins bestu kokkar bera fram,“
segir Algero og glottir enn og aftur.
Píndir róttækir verkamenn
Í fjallaþorpinu Colonnata búa
aðeins 300 manns og húsin þar kúra í
fjallshlíðinni, forn og hlýleg. Þorpið
er í nágrenni Carrara, í Apuan-
Ölpunum, vegurinn þangað liggur í
gegnum þorpin Vezzala og Bedizz-
ano. Tilvist litla þorpsins er rakin
allt aftur til Rómaveldis, en þá voru
fyrstu húsin þar reist til að hýsa
verkamenn sem strituðu í marm-
aranámunum. Við lok nítjándu aldar
var þetta svæði orðið að vöggu an-
arkisma á Ítalíu. Samkvæmt grein í
New York Times frá 1894 voru
verkamenn í marmaranámunum
meðal þeirra sem verst höfðu það á
allri Ítlalíu. Margir þeirra voru fyrr-
verandi sakamenn eða menn á flótta
undan réttvísinni. Starf námuverka-
manna var svo erfitt að hver sá vilj-
ugur sem hafði næga krafta í köggl-
um og þrek var ráðinn til starfsins,
án þess að saga hans væri könnuð.
Skoðanir verkamannanna í marm-
aranámunum voru mjög róttækar og
anarkismi og almenn róttækni varð
með tímanum hluti af arfleifð þeirra.
Margir ofbeldisfullir byltingarmenn
sem hafði verið úthýst í Belgíu og
Sviss fóru til Carrara árið 1885 og
stofnuðu fyrsta hóp anarkista á Ítal-
íu. Haft er eftir anarkistanum Gali-
leo Palla að, „jafnvel steinarnir í
Carrara hafi verið anarkistar“.
Námuverkamennirnir voru
hryggjarstykkið í uppreisninni í
Lunigiana í janúar árið 1894.