Morgunblaðið - 30.11.2017, Síða 44

Morgunblaðið - 30.11.2017, Síða 44
Í Morgunblaðinu laugardaginn 18. nóv- ember s. birtist grein undir heitinu Karl- mennska og -remba á kirkjuþingi. Vitnað er þar í Kólussubréf og hinn gamla og nýja mann sem Páll post- uli nefnir svo í bréfi sínu til Kólussu- manna en þar segir orðrétt: „En nú skul- uð þér segja skilið við allt þetta: Reiði, bræði, vonsku, lastmæli, svívirðilegt orðbragð. Ljúgið ekki hver að öðrum, því þér hafið af- klæðst hinum gamla manni með gjörðum hans og íklæðst hinum nýja, sem endurnýjast til fullkom- innar þekkingar og verður þannig mynd skapara síns.“ Meining Páls postula í þessum skrifum er sú að með því að íklæðast hinum nýja manni, verði heiðinginn kristinn. Greinin hlýtur því að vekja m.a. þá spurningu hvort greinarhöf- undur sé að gefa í skyn að kjörnir fulltrúar á kirkjuþingi séu heiðnir. Umrædd grein er líka athygl- isverð fyrir þá staðreynd að höf- undur er biskupsritari sem segir jafnframt að framganga „hins gamla manns“ hafi verið fyrirferð- armikil á kirkjuþinginu. Sá hinn sami gamli maður, karl eða kona, hafi beitt ofbeldi, verið með nið- urlægjandi framgöngu sem bjóði heim hættu á fljótfærnislegum og röngum ákvörðunum. Því er áhugavert að svo virðist sem greinarhöfundur sjálfur hafi ekki farið að orðum Páls postula, áður en hann sendi inn grein sína, og sagt skilið við reiði, bræði, vonsku eða lastmæli. En hver er þá „hinn gamli mað- ur“ og hvernig ber að skilgreina hann? Er greinarhöfundur í raun og veru að gefa í skyn að kirkju- þingsfulltrúar, prestar og leik- menn, karlar og konur, séu ekki kristnir eða telur hann kannski fremur að hinn gamli maður, kona eða karl, sé bara einhver sem ekki hefur almennt tileinkað sér nýj- ungar og tekið þannig upp nýja siði? Eða er hann einvörðungu að tala um kynbræður sína, karl- menn? Flestir munu að líkindum álykta að svo sé. Það er sitt hvað að vera gamall í árum eða gamall í anda. Á lífsins göngu eykur fólk alla jafna við þekkingu sína og segja má að dag hvern verði sá nýr sem lengi lifir, þar sem nýrri visku er bætt við þann þekkingarbrunn sem fyrir er. Lífaldur segir nefnilega fátt um anda manneskju, aldur anda og líkama þarf ekki að fara sam- an, eins og æði oft hefur sést. Gamlir menn, í árum talið, hafa margsinnist sýnt að þeir eru ungir, framsýnir og ferskir, í andanum, og iðka dag hvern það sem Páll postuli hvatti til, að „endurnýjast til full- kominnar þekkingar“. Að sama skapi má segja að ekki séu allir yngri menn ungir í andanum. Og hafi þeir ekki getu til að kasta sínum gömlu sið- um, standa þeir í vegi fyrir fram- förum, hræðast breytingar og hafa ekki þor til að líta út fyrir ramm- ann. Yfirsýnina skortir og burði til að setja mál og atburði í stærra samhengi, einfaldlega af því að andinn hefur ekki náð að verða nýr, endurnærast og -nýjast dag hvern eins og sá sem lengur hefur lifað. Greinarhöfundur hvetur les- endur til að kjósa hinn nýja mann, konur og karla, til setu á næsta kirkjuþingi og er það réttmæt áskorun. Í raun á andans gamli maður hvergi heima í opinberu lífi. Kemur það til vegna þess að andi hans er gamall, staðnaður og jafnvel hræddur, getur ekki kast- að sínum gamla sið og tekið upp annan, nýrri og betri. Hinn gamli andi sér ekki þörf á breytingum. Kemur gjarnan með þau rök að hann viti hvað hann hafi, ekki hvað öðlist við breytingar. Hann er íhaldssamur og bregður fæti fyrir allt það sem nútíminn telur vera til bóta og hagræðis. Hann hefur eigin hagsmuni fremur að leiðarljósi en það sem henta myndi nútíð og framtíði best, því oft óttast hann að missa spón úr aski sínum. Það er því nákvæm- lega rétt að vonandi ber þjóð- kirkjufólk gæfu til þess að kjósa ekki andans gamla mann, á næsta kirkjuþing. Það yrði þjóðkirkjunni hvorki til framþróunar né fram- dráttar, ekki fremur en í dag. Eftir Birnu G. Konráðsdóttur »Eru kirkjuþings- fulltrúar, prestar og leikmenn, karlar og konur virkilega ekki kristin eða fólk sem hef- ur tileinkað sér nýj- ungar og nýja siði? Höfundur er í meistaranámi og með- limur í þjóðkirkjunni. Birna G. Konráðsdóttir Kirkjuþingsfulltrúar, gamlir eða heiðnir? 44 SER MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017 Hugtök um kynferð- islegt ofbeldi, hvað karla snertir, hafa mót- ast af tíðaranda, þar sem konur hafa átt sviðið. Til dæmis fól opinber skilgreining á nauðgun í Bandaríkj- um Norður-Ameríku (BNA) í sér ódæði karlmanns gegn konu, þ.e. þegar karlmaður beitti þvingun til náinna, líkamlegra kynna. Þessi skilgreining lá til grundvallar skilningi lærðra og leik- inna á nauðgun allar götur frá 1927 til ársins 2012. Þá var skilgreining- unni hins vegar breytt og kvað nú á um kynferðislega innþröngvun eða innrás. Kyn var ekki nefnt. Fátt er um rannsóknir á karlkyns- þolendum ofbeldis í kynlífi. Þær finnast þó á stangli frá miðjum ára- tugi síðustu aldar, um tuttugu ára skeið eða svo. Í rannsókn frá 1995, sem ættuð er frá BNA, og beinist að háskólastúdentum, segir m.a. „Fyrri rannsóknir á hegðun fólks á stefnu- mótum gerðu því skóna, að konur væru fórnarlömb, en karlar gerend- ur. ... Enda þótt konur telji sig frem- ur fórnarlömb, heldur en karlarnir, virðast bæði kyn eiga sök á þving- unum, sem höfðu í för með sér und- anlátssemi, allt frá kossum til sam- fara. Þvinganir af þessu tagi fólu í sér: lyfjanotkun, fjárkúgun, lygar, tóm loforð, sektarkennd, ógnanir um sambandsslit, þráláta snertingu, að koma undir sig, innilokun, ógn um líkamlegt ofbeldi, að neyta aflsmun- ar og beita vopnum. Fjölþátta töl- fræðigreining leiddi í ljós, að lík- legra var að konur teldu sig beittar ofbeldi, þegar þvingunum eins og innilokun, þrálátri snertingu og lyg- um var beitt. Sama átti við, þegar þeim var komið undir. Karlar skýrðu aftur á móti fremur frá of- beldi, allt frá kossum til samfara, ef hlutaðeigandi beitti fjárkúgun eða vopni. Þar eð vopnaskak var fátítt, hefur þetta síðasta atriði takmarkað gildi.“ Starfsmenn þjóðtækrar skrár yfir fórnarlömb afbrota (National Crime Victi- mization Survey) í BNA inntu heimilisfólk fjörutíu þúsund heimila eftir nauðgun eða öðru kynferðislegu ofbeldi. Í ljós kom, að 38 af hundraði þolenda voru karlmenn. Eftir frekari eftirgrennslan komst Lara Stemple við Kali- forníuháskóla í Los Angeles (UCLA) að þeirri niðurstöðu, að tiltala kvenna og karla væri svipaðri en nokkurn skyldi gruna. Hún bend- ir einnig á, að viðhorfum gagnvart kyni þolenda þurfi að breyta og sér- staklega þeirri bábilju, að konur séu ævinlega fórnarlömb karla. Hin nýja skilgreining á nauðgun var svo útfærð í anda hinna nýju laga þannig, að þvingun til innrásar eða innþröngvunar í líkama annars með einhverjum hætti og við ótil- teknar aðstæður, var svo lögð til grundvallar þjóðtækri könnun á kynferðislegu ofbeldi í nánum sam- böndum (National Intimate Partner and Sexual Violence Survey) árið 2010. Fyrrgreind Lara Stemple stóð fyrir þeirri könnun. Þau undur og stórmerki gerðust að 1.270 þúsund kvenna og 1.267 þúsund karla kváðu sig hafa orðið fyrir kynferðislegu of- beldi. Jafnara á metum getur ofbeld- ið varla orðið. Í öðrum yfirlitsrann- sóknum hafa 46 af hundraði karla skýrt frá kynferðislegu ofbeldi af hálfu kvenna. Í fyrrgreindri rann- sókn unninni í samvinnu við Ilan H. Meyer, og greint er frá 2014, segir m.a.: „Við komumst að þeirri nið- urstöðu, að þjóðtækar kannanir varpi ljósi á verulegt algengi kyn- ferðislegs ofbeldis gegn körlum – að mörgu leyti ámóta því, sem á við um konur. Við greindum þætti, sem við- halda bábiljum um kynferðislegt of- beldi gegn karlmönnum: styrk hefð- bundinna staðalímynda, úr sér gengnar og lauslegar skilgreiningar, og aðferðafræðilegir ágallar, þar sem fangar hafa verið undanskildir.“ (Lauslega snarað af undirrituðum.) Eins og fyrr er ýjað að, er algengi kynferðislegs ofbeldis meðal al- mennings geigvænlegt. Í BNA er 21 milljón karlmanna beitt slíku of- beldi, ámóta fjöldi og veikist af krabba í blöðruhálskirtli. Þessi fjöldi er fjórum sinnum meiri heldur en fjöldi þeirra karlmanna, sem þjást af hjartasjúkdómum. En þeir eru ein helsta dánarorsök þeirra. Christopher Anderson tók nýlega saman eftirtaldar staðreyndir (og spádóma) um karlkynsþolendur kynofbeldis á vegum deildar 56 í Bandaríska sálfræðingafélaginu: 1) Um fjórðungur karlmanna í BNA mun verða þolendur kynofbeldis í lífinu. 2) Gera má ráð fyrir, að einn af hverjum sex drengjum megi þola kynofbeldi í æsku. 3) Kynferðislega misnotaðir karlar í hernum eru fleiri en nemur fjölda kvenna þar. 4) Fangelsaðir karlar eiga fremur á hættu en aðrir að verða fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi. 5) Um það bil helmingur barna í kynlífsþrælkun í BNA eru drengir. 6) Karlkyns þol- endur kynofbeldis ljóstra síður upp um ódæðið, skilgreina síður ódæðið sem kynofbeldi, leita síður hjálpar. 7) Ríkjandi viðhorf virða fremur að vettugi skaða og hneisu, sem karl- kyns þolendur kynofbeldis verða fyrir, en þegar um konur er að ræða. 8) Rannsóknir benda til, að veruleg- ur hluti níðinga séu konur, þegar um er að ræða kynofbeldi gegn körlum. Eins og hinn glöggi lesandi vafa- lítið hefur skilið, er hér um að ræða útlendar rannsóknir. Mér er ekki kunnugt um samsvarandi íslenskar. Það er því óvíst, hvort niðurstöður endurspegla íslenskan veruleika. En ekki er það ósennilegt. Kynferðislegt ofbeldi gegn körlum Eftir Arnar Sverrisson » Í umræðum um kynferðislegt of- beldi hefur það verið mál manna, að konur séu nær einvörðungu fórnarlömb karla. Nýjar rannsóknir draga það í efa. Arnar Sverrisson Höfundur er ellilífeyrisþegi. arnarsverrisson@gmail.com Nature Collection arc-tic Retro ÚRIN Fyrir DÖMUR og HERRA VERÐ FRÁ: 29.900,- Álfheimar 74, Glæsibær | 104 Reykjavík | ynja.is Falleg undirföt og náttföt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.