Morgunblaðið - 30.11.2017, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
Jólatertur
Gríptu eina!
eða allar 4
Strax í dag
Smakkaðu
NÝJA með
rabbarbara
-
sultu
MYLLU
„Hár Gallerí hefur verið starfrækt
á sama stað frá 1983 og hefur ver-
ið í minni eigu frá 2014,“ segir
Rúna Magdalena Guðmundsdóttir,
hárgreiðslumeistari og eigandi
stofunnar. „Það er líka skemmti-
legt að segja frá því að ég kaupi
fyrirtækið af Lilju Sveinbjörns-
dóttur sem rak það í 27 ár, áður
en hún seldi mér stofuna. Vöru-
merkið og staðsetningin fagnar
því 34 ára afmæli nú í ár. Það er
fáheyrt í þeim miklu breytingum
sem hafa orðið á þessu svæði.“
Hártískan í sífelldri þróun
Þó eftirspurn fólks eftir hár-
snyrtingu hvers konar sé viðvar-
andi þá er breytingum háð frá ári
til árs – jafnvel frá árstíð til árs-
tíðar – hvaða þjónusta er þar vin-
sælust. Rúna segir breytingarnar
örar og hártískuna síbreytilega.
„Það hefur verið gríðarleg þró-
un í efnum og tækni og höfum við
tileinkað okkur að hafa bestu og
nýjustu vörur í boði á hverjum
tíma og sótt um leið þau námskeið
sem hafa verið í boði. Það eru
auðvitað tískustraumar í gangi og
útlit kemur og fer. Það er það
dásamlega við hártískuna, við
fáum alltaf að skapa eitthvað
nýtt,“ útskýrir hún. Rúna nefnir
permanent sem dæmi um eitthvað
sem kemur og fer. „Hér fyrir
nokkrum árum voru ekki margir
strákar sem komu í permanent en
síðastliðið ár hefur það verið vin-
sælt hjá strákunum sem er
skemmtileg þróun. Margar dömur
hafa viljað vinna með náttúrulegt
útlit þar sem við vinnum með
hársrótina og þær fá svokallaðar
sólarstrípur í hárið. En allt geng-
ur í hringi og allt er leyfilegt.
Hún er skemmtileg, hártískan í
dag.“
Staðsetningin
sú besta í bænum
Þegar talið berst að staðsetn-
ingunni, við Laugaveg í miðborg-
inni, segir Rúna hana einn helsta
kostinn við stofuna. „Stærsti kost-
urinn er staðsetningin og sér-
staklega síðustu ár þar sem um-
ferð fólks, sérstaklega ferða-
manna, hefur stóraukist í mið-
bænum. Hér er alltaf líf og fjör í
kringum stofuna og gaman bæði
að starfa og fyrir viðskiptavini að
koma og njóta miðbæjarins.“
Aðspurð hvort einhverjir gallar
fylgi því að vera í miðbænum seg-
ir hún svo ekki vera. „Það er ekki
hægt að kvarta yfir staðsetning-
unni enda ein sú besta í bænum.
Auðvitað fylgja svona skemmti-
legum stað að erfiðara er að finna
bílastæði, en þó er mikið af bíla-
stæðahúsum í kring ef fólk er til í
að rölta aðeins. Það er líka bara
notalegt.“
Erlendir ferðamenn
reglulegir kúnnar
Stóraukin umferð erlendra
ferðamanna hefur ekki farið fram
hjá neinum og þar er starfsfólk
Hár Gallerís ekki undanskilið, að
sögn Rúnu. „Staðsetningunni
fylgja þau frábæru forréttindi að
erlendir ferðamenn eru úti um allt
nánast allan sólarhringinn. Þeir
skila sér hingað til okkar í miklum
mæli og hafa bæði nýtt sér okkar
þjónustu og vörusölu,“ segir
Rúna. „Þetta er gríðarlegur mun-
ur frá því fyrir innan við áratug
þar sem fáir voru á ferli í slæmu
veðri og á frídögum. Þetta hefur
gerbreyst. Við tökum sérstaklega
eftir því að það er mikil aukning
á sölu á djúpnæringu þar sem er-
lendu ferðamennirnir baða líka
hárið sitt flestir í Bláa Lóninu og
skilja svo ekkert í því af hverju
hárið þeirra er svona skrítið,“
bætir hún við og hlær.
Vertíð í jólamánuðinum
Jólamánuðurinn framundan og
þá þurfa Rúna og stúlkurnar
heldur betur að bretta upp erm-
arnar því þá er hvað mest að
gera af öllum mánuðum ársins.
„Jólamánuðurinn er okkar
annamesti mánuður og mikil törn
framundan,“ bendir hún á. „Des-
ember fylgja langir og annasamir
dagar, lengri en venjulega, en aft-
ur á móti er eitthvað í loftinu í
desember sem gerir hvern dag
ólýsanlegan. Það eru allir glaðir,
vinahópar koma saman í miðbæ-
inn og njóta og stemningin er
dásamleg! Að mínu mati er
skemmtilegasti dagur ársins Þor-
láksmessa, þá nær stemningin há-
marki,“ segir Rúna Magdalena að
endingu.
jonagnar@mbl.is
Hártískan er skemmtileg í dag
Gleði „Desember fylgja langir og annasamir dagar, lengri en venjulega, en aftur á
móti er eitthvað í loftinu í desember sem gerir hvern dag ólýsanlegan.“
Hár Gallerí er í hópi
þeirra hárgreiðslustofa
sem hafa verið hvað
lengst starfandi í mið-
borginni og á næsta ári
fagnar stofan 35 ára af-
mæli. Það var því full
ástæða til að kíkja í
klippingu á stofunni á
þeim stað sem hún hef-
ur verið frá upphafi.
Stíll „Hér fyrir nokkrum árum voru ekki margir strákar sem komu
í permanent en síðastliðið ár hefur það verið vinsælt,“ segir Rúna.
MIÐBORGIN