Morgunblaðið - 30.11.2017, Page 52
Morgunblaðið/Hari
Djörfung „Árangur næst ekki með því að synda með straumnum heldur á móti og þá myndast eitthvað nýtt og spennandi,“ segir Vaka.
„Myconceptstore er lífstílsverslun
með vörur sem jafnan getur verið
erfitt að finna annarstaðar,“ svarar
Vaka. „Við höfum ávallt reynt að
búa til upplifun, reynum að fá fólk
til að finna einhverja samsvörun við
sitt heimili eða sinn stíl. Ef ég er
ekki sátt þá hef ég ekki trú á því að
viðskiptavinurinn sé sáttur.“
Að sögn Vöku hefur stefnan með
versluninni frá upphafi að vera
öðruvísi, þó hún hafi engu að síður
þróast talsvert gegnum árin.
„Stefnan hefur alltaf verið að vera
öðruvísi verslun og að viðskiptavin-
urinn upplifi eitthvað nýtt og
spennandi þegar hann komi í búð-
ina. Samt hefur búðin þróast mikið.
Við höfum ávallt reynt að hafa
vörur sem eru ekki seldar í öðrum
verslunum. Ef aðrir hafa byrjað
með sama merki eða tekið upp svip-
aðan stíl höfum við breytt um
stefnu, og þess vegna heitum við
Myconceptstore. Árangur næst
ekki með því að synda með
straumnum heldur á móti og þá
myndast eitthvað nýtt og spenn-
andi.“
Dugleg að reyna eitthvað nýtt
Myconceptstore selur ákaflega
fjölbreytilegar vörur sem mynda
bæði kvenleg, glæsileg og á góðu
verði. Þetta er tímalaus hönnun.“
Af nýjungum í búðina sem vænt-
anlegar eru á nýju ári nefnir Vaka
að búðin er alltaf með eigin hönn-
unarverkefni í gangi sem kynnt eru
jafn óðum og þau eru tilbúin. „Við
byrjum ávallt smátt til þess að sjá
hvernig markaðurinn tekur nýjung-
unum en síðan spinnst oftast eitt-
hvað spennandi í kringum þetta.
Okkur liggur ekkert á í þessum efn-
um, öfugt við okkur Íslendinga al-
mennt sem viljum oft að hlutirnir
gangi hraðar fyrir sig,“ segir Vaka
að endingu. jonagnar@mbl.is
store því að sögn Vöku eru erlendir
ferðamenn duglegir að lita inn í
búðina. „Erlendir ferðamenn sækja
mikið til okkar, enda erum við með
vörur sem er oft erfitt að finna á
þeirra heimaslóðum. Þeir eru mjög
þakklátir fyrir búðina og fáum við
oft pantanir út frá myndum sem
þeir tóku í búðinni.“
Af nýjum vörum sem búðin er að
taka inn fyrir jólin í ár nefnir Vaka
sérstaklega nýjar skartgripalínur
úr silfri, gulli og demöntum sem
þau hafa verið að vinna að allt þetta
ár. „Ég er ákaflega stolt af því að
bjóða upp á handunna vöru sem er
árs. „Það sem var vinsælt í fyrra er
ekki endilega vinsælt í ár. Við reyn-
um líka að vera dugleg að skipta út
og reyna eitthvað nýtt sem hefur
reynst okkur vel. Stundum hafa
vinsældir ákveðinna hluta jafnvel
komið okkur aðeins á óvart. Plötu-
spilarinn virðist til dæmis vera hlut-
ur sem hefur gengið í endurnýjun
lífdaga og heldur áfram að vera vin-
sæll ár eftir ár.“
Alltaf með eigin
hönnunarverkefni
Íslendingar eru ekki einir um að
kunna að meta úrvalið í Myconcept-
engu að síður merkilega góða heild.
Er ekki svolítil kúnst að láta slíkt
ganga upp? Vaka samsinnir því.
„Þetta er ekki alltaf auðvelt.
Þetta þarfnast mikillar yfirlegu
enda þarf allt að falla saman. Leið-
arljós okkar við innkaup og vöruval
búðarinnar er að horfa til þess að
mér líki það sem verið er að bjóða
upp á, sem og að ég sé tilbúin að
ganga með eða prýða mitt heimili
með þessum hlutum. Ég vil ekki
bjóða upp á hluti sem ég væri ekki
sátt við að eiga eða nota.“
Aðspurð um vinsælar vörur segir
Vaka það vera breytilegt frá ári til
Selja það sem ekki fæst annars staðar
Við Laugaveg 45 er
verslunin Myconcept-
store til húsa. Þar fæst
ýmislegt fallegt og
áhugavert sem ekki
finnst hvar sem er svo
verslunarstjórinn, Vaka
Njálsdóttir, var innt eftir
því hvers konar verslun
hér er á ferðinni.
Sýn „Leiðarljós okkar við innkaup og vöruval er að horfa til þess að mér líki það sem verið er að bjóða upp á, sem og að ég sé tilbúin að ganga með eða prýða mitt heimili með þessum hlutum.“
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2017
MIÐBORGIN
Þegar frost
er á fróni
Þinn dagur, þín áskorunOLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga • Brúarsport, Borgarnesi
Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Efnalaug Dóru, Hornafirði • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði
Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi
100% Merino
ullarnærföt
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.run.is