Morgunblaðið - 17.05.2018, Page 1
Heimilt verður að leggja á gífurlega
háar stjórnvaldssektir samkvæmt
frumvarpinu að nýjum lögum um
persónuvernd og beiting þeirra
myndi sliga sveitarfélög. Þetta kem-
ur fram á minnisblaði sem lagt var
fram í stjórn Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Skv. frumvarpinu, sem felur í sér
innleiðingu á Evrópulöggjöf um per-
sónuvernd, getur Persónuvernd lagt
á stjórnvaldssektir sem nema allt að
2,4 milljörðum kr. eða 4% af veltu,
hvort heldur er hærra. Sveitarfélög
fara með mikið af viðkvæmum per-
sónuupplýsingum og á minnis-
blaðinu segir að álagning ofursekta
af þessu tagi eigi sér engin fordæmi
gagnvart opinberum aðilum. Tekið
er sem dæmi að velta Reykjavík-
urborgar, samstæðu A- og B-hluta,
er 177 milljarðar kr. og 4% af þeirri
fjárhæð losar sjö milljarða. om-
fr@mbl.is »44
Gæti numið
milljörðum
Ofursektir í per-
sónuverndarlögum
F I M M T U D A G U R 1 7. M A Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 115. tölublað 106. árgangur
BRÚÐKAUPS-
STEMMNING Á
ENGLANDI
GOÐ-
SAGNIR Í
SALNUM
UMDEILT
VERÐMAT
ICELANDAIR
VOCAL PROJECT 86 VIÐSKIPTAMOGGINNHARRY OG MEGHAN 38
Enn þá er eitthvað í að hægt verði að aka
áhyggjulaust um Hrafnseyrarheiði en fram kem-
ur á vef Vegagerðarinnar að þar hafi verið
hálkublettir nýlega. Eins og sjá má af myndinni
hér að ofan, sem tekin var síðastliðinn föstudag,
eru aðstæður á heiðinni enn þá erfiðar þrátt fyr-
ir að langt sé komið inn í maímánuð. Vegurinn
er jafnan ófær stóran hluta vetrar en hann teng-
ir Arnarfjörð í suðri við Dýrafjörð í norðri.
Framkvæmdir við Dýrafjarðargöng hófust
síðasta sumar en göngin eiga að leysa veginn um
Hrafnseyrarheiði af hólmi og stytta Vestfjarða-
veginn um 27,4 km. 2.207 metrar höfðu verið
grafnir við lok síðustu viku en heildarlengd
ganganna verður 5,6 km. teitur@mbl.is
Enn þá hálka á Hrafnseyrarheiði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Þetta lofar óskap-
lega góðu,“ segir
Benedikt Erlings-
son, sem hlaut
SACD-verðlaunin
á Critic’s Week,
hliðarhátíð
Cannes-kvik-
myndahátíð-
arinnar, ásamt
Ólafi Agli Egils-
syni fyrir kvik-
myndina Kona fer í stríð í gærkvöldi.
„Við erum hér heiðraðir af handrits-
höfundum og samtökum handritshöf-
unda í Frakklandi. Við erum alsælir
með það að koma með verðlaun frá
Cannes.“
Benedikt segir verðlaunin hafa
mikla þýðingu og að verið sé að selja
myndina til kvikmyndahúsa um allan
heim. Hann hlakkar þó mest til þess að
koma með kvikmyndina til Íslands.
„Ég er að vona að landar mínir muni
loka Netflix-skjánum og verða gam-
aldags og kaupa sér bíómiða. Þetta er
mynd sem þarf eiginlega að njóta á
stórum skjá í betri kvikmyndahúsum
bæjarins.“
Ítarlegt viðtal er við Benedikt á
menningarsíðum Morgunblaðsins í
dag. »78-79
Kona fer í
stríð verðlaun-
uð í Cannes
SACD-verðlaunin
hafa mikla þýðingu
Verðlaunuð Bene-
dikt og Halldóra
Geirharðsdóttir.
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Sjálfstæðis-
flokkurinn í
Reykjavík kveðst
ætla að lækka út-
svar í borginni úr
14,52% í 13,98% í
fjórum þrepum á
fjórum árum.
Bjarni Bene-
diktsson segir að
nú séu kjör-
aðstæður til lækkunar á álögum.
Sjálfstæðisflokkurinn hyggst
einnig setja Sundabraut aftur á
áætlun í samstarfi við Vegagerðina
og koma upp íbúabyggð á landi rík-
isins við Keldur. Þar verði einnig
atvinnustarfsemi og stofnanir.
„Þetta þrennt fer vel saman, þetta
svæði er yfir 100 hektarar. Reykja-
vík hefur verið að þétta byggð á
dýrum stöðum, þarna er tækifæri
til að þétta á hagkvæmum stað,“
segir Eyþór Arnalds. »6
Kjöraðstæður til
lækkunar á álögum
Eyþór Arnalds.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Framkvæmdir við Fjallaböðin, nýj-
an baðstað og 40 herbergja hótel,
munu hefjast við Reykholt í Þjórs-
árdal á næsta ári. Verkefnið, sem
hefur verið í þróun í þrjú ár og mun
kosta um fjóra milljarða króna, er í
helmingseigu Íslenskra heilsulinda,
dótturfélags Bláa lónsins, og frum-
kvöðlanna Magnúsar Orra Schram,
Ellerts K. Schram og Ragnheiðar
Bjarkar Sigurðardóttur.
Þjórsárdalur setið eftir
Magnús Orri segir í samtali við
ViðskiptaMoggann að Þjórsárdal-
urinn hafi setið eftir sem ferða-
mannastaður á undanförnum árum,
þrátt fyrir að þar sé að finna marga
áhugaverða sögustaði og fagrar
náttúruperlur.
Ásamt því að byggja Fjallaböðin,
mun þjónustumiðstöð rísa í 8 km
fjarlægð frá böðunum. Þá munu
Rauðukambar, félagið utan um
verkefnið, leggja Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi lið við uppbyggingu
innviða í Þjórsárdal, þar á meðal við
brúarsmíði, göngustíga og reiðleið-
ir.
Fjallaböð í Þjórsárdal
Baðstaður og 40 herbergja hótel opna árið 2022 Kostn-
aður fjórir milljarðar króna Innviðir dalsins byggðir upp
Mynd/Basalt arkitektar
Nýtt Hótelið verður byggt inn í fjallið og herbergi standa stök út úr jörðinni.
MViðskiptaMogginn