Morgunblaðið - 17.05.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
as
ér
ré
ttt
ill
eið
ré
ttin
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
28. maí í 11 nætur
GRIKKLAND
Tolo & Loutraki í beinu flugi til Aþenu
Stökktu
Loutraki í Grikklandi
kr. 79.995 á mann m/morgunmat
Stökktu
Tolo í Grikklandi
kr. 89.995á mann m/hálfu fæði
595 1000 . heimsferdir.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Útför Huldu Valtýsdóttur, fyrrverandi blaðamanns, þýð-
anda og borgarfulltrúa, fór fram í Dómkirkjunni í gær.
Sr. Sigurður Árni Þórðarson jarðsöng. Tengdasynir og
barnabörn báru kistu Huldu úr Dómkirkjunni.
Á myndinni eru frá vinstri Ásgeir Haraldsson, Stein-
unn Ásgeirsdóttir, Gunnar Stefánsson og Eggert Stef-
ánsson. Frá hægri Michael Dal, Eva Kristín Dal, Hulda
Stefánsdóttir og Gunnar Steinn Ásgeirsson. Á eftir kist-
unni ganga dætur Huldu; Kristín, Helga og Hildigunnur
Gunnarsdætur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hulda Valtýsdóttir borin til grafar
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
Stórsókn í uppbyggingu Landspítala
var aðalumræðuefni ársfundar spít-
alans sem fram fór í Silfurbergi í
Hörpu í gær. Uppbygging Landspít-
alaþorps við Hringbraut hefur verið í
undirbúningi síðan árið 2010, en nú
er fyrsti áfangi þess loks í sjónmáli:
Stefnt er að opnun nýs 66 þúsund fer-
metra meðferðarkjarna árið 2024 og
rannsóknarhús, þar sem umfangs-
mikil og dreifð þjónusta rannsóknar-
deilda Landspítalans munu samein-
ast, fer í fullnaðarhönnun á árinu.
Auk þessara tveggja bygginga er í
undirbúningi bílastæða-, tækni- og
skrifstofuhús, auk viðbyggingar við
Læknagarð.
Meðal hefðbundinna ársfundar-
starfa voru ávarp heilbrigðisráðherra
og forstjóra Landspítalans. Í máli
sínu lagði Svandís Svavarsdóttir
áherslu á mikilvægi þess að skil-
greina hlutverk einstakra þátta heil-
brigðisþjónustunnar og samstarf
þeirra á milli og sagði Landspítalann
mikilvæga þungamiðju og móðurskip
heilbrigðisþjónustunnar í heild.
Páll Matthíasson forstjóri sagði
Landspítalann aldrei hafa verið öfl-
ugri þrátt fyrir skin og skúrir í starf-
inu, og sagði yfirskrift ársfundarins,
Landspítali í vörn og sókn, eiga vel
við daglega starfsemi spítalans.
Ársreikningur Landspítalans var
einnig kynntur, en rekstrargjöld
hækkuðu um 7,1% á milli ára, en
hækkun rekstrartekna nam 2,7%.
Í kjölfar kynningar ársreiknings
kynnti Ólafur Baldursson, fram-
kvæmdastjóri lækninga, nýjan sam-
skiptasáttmála Landspítalans. Hann
sagði tugmilljónir samskipta fara
fram á spítalanum á ári á milli starfs-
fólks, sjúklinga og aðstandenda sem
saman mynduðu þverskurð úr þjóð-
félaginu. Vegna þessa hefðu mál sem
uppi væru í þjóðfélaginu á hverjum
tíma einnig áhrif innan spítalans. „Af
slíkum málum hefur borið einna hæst
gjörsamlega óásættanleg og óþolandi
hegðun miðaldra karlmanna.“
Hann sagði fagnaðarefni að
#MeToo hefði varpað ljósi á þetta
vandamál og sagði mátulegt að í púlti
stæði miðaldra karlmaður til þess að
ræða hvaða umbætur væri verið að
fara í. Að gerð sáttmálans komu 700
manns á 50 fundum, 900 samskipta-
atvik voru skrásett og 530 ábending-
ar bárust frá starfsfólki og sjúkling-
um. Kaflar sáttmálans eru níu talsins
og fjalla um viðmót, virðingu, fag-
mennsku, umhyggju, skilning,
ábyrgð, hreinskilni, jafnræði og við-
urlög og er markmið sáttmálans að
stuðla að bættri líðan starfsfólks og
eflingu öryggis sjúklinga og starfs-
fólks.
Starfsfólk og teymi heiðrað
Runólfur Pálsson hlaut þá nafnbót
að vera heiðursvísindamaður Land-
spítala, en hann er yfirlæknir á lyf-
lækningasviði og fæst einkum við
rannsóknir á nýrnasjúkdómum. Þá
voru tíu einstaklingar frá mismun-
andi sviðum spítalans heiðraðir fyrir
framúrskarandi starf, auk þriggja
teyma. Teymin þrjú voru teymið sem
innleiddi ræstingastaðalinn INSTA
800, verkefnahópur um nýtt verklag
fyrir sjúklinga með brátt heilaslag og
teymið á Teigi, dagdeild fíknimeð-
ferðar.
Í lok fundarins var til sýningar ít-
arlegt kynningarmyndband um upp-
byggingu fjögurra nýrra bygginga í
Landspítalaþorpinu við Hringbraut.
Nú starfar Landspítali á 20 stöðum í
um 100 byggingum.
Morgunblaðið/Hari
Stórsókn Miðað við fjölmiðla sagði Páll spítalann einungis virðast í vörn.
Uppbygging og samskipti á ársfundi
Ársfundur Landspítalans var haldinn í Hörpu í gær Uppbygging Landspítalaþorps við Hringbraut
í forgrunni Nýr samskiptasáttmáli vegna „óásættanlegrar hegðunar miðaldra karlmanna“ kynntur
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það léttist á stöðunni á bráða-
móttökunni eftir því sem leið á daginn í
gær,“ sagði Jón Magnús Kristjánsson,
yfirlæknir á bráðamóttökunni, en í
gærmorgun biðu 29 sjúklingar sem
lokið höfðu bráðamóttökuþjónustu eft-
ir innlögnum á legudeildir Landspít-
alans.
Jón Magnús segir að við alvarleg
slys komi plássleysið sér hvað verst.
„Sem betur fer höfðum við létt að-
eins á ástandinu í gær áður en umferð-
arslys varð og við náðum að sinna því
vel,“ segir Jón Magnús. Hann segir
allar deildir taka á sig aukið álag og
bæta við sjúklingum umfram það sem
þær ættu að gera og eru þegar með.
„Það er það sem bjargar og gerir
það að verkum að það verða heldur
færri sjúklingar á bráðamóttökunni,“
segir Jón Magnús og bætir við að inn-
lagnarvandinn á spítalanum sé hluti af
fráflæðisvanda sem stafi af skorti á
hjúkrunarfræðingum sem hefur leitt
til lokana fjölda rúma og skorts á
hjúkrunarheimilium á höfuðborg-
arsvæðinu
„Fólk með færni- og heilsumat
kemst ekki af sjúkrahúsinu þegar það
hefur lokið sinni sjúkrahúsmeðferð.
Heilbrigðisráðherra hefur boðað til
stórátaks við fjölgun hjúkrunarrýma á
höfuðborgarsvæðinu en það verkefni
er langtímalausn. Skortur á hjúkr-
unarfræðingum stafar í grunninn af
því hvaða virðingu við berum fyrir mis-
mundandi störfum. Það verður að
segjast að stór hluti þeirrar virðingar
birtist í launum sem miðast við mennt-
un og álag. Þar hafa hjúkrunarfræð-
ingar eins og ljósmæður klárlega setið
eftir,“ segir Jón Magnús.
Hefð að fara á bráðamóttöku
Jón Magnús segir að heilsugæslan
eigi sjálf að skilgreina þá sjúklinga
sem koma til hennar en almennt geti
fólk leitað til heilsugæslunnar með
bráð vægari mál, svo sem vægari sýk-
ingar og minni áverka.
„Heilsugæslan leysir úr málum
meirihluta fólks en sendir einstaka
sjúkling áfram ef á þarf að halda.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
hefur staðið sig vel í því að auka við
þjónustu sína miðað við það sem áður
var. Það tekur langan tíma að breyta
hefðinni og fara frekar á heilsugæsl-
una en bráðamóttöku með vægari ein-
kenni,“ segir Jón Magnús.
Aukið álag á deildirnar
Yfirlæknir segir að hækka þurfi laun hjúkrunarfræðinga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Álag Jón Magnús Kristjánsson,
yfirlæknir á bráðamóttökunni.
Hreppsnefnd Árneshrepps sam-
þykkti kjörskrá og undirritaði á
fundi sínum síðdegis í gær vegna
sveitarstjórnarkosninga. Fyrirvari
var gerður vegna könnunar Þjóð-
skrár Íslands á lögmæti lögheimilis-
flutninga í hreppinn.
„Við gerðum fyrirvara um breyt-
ingar ef einhverjar verða. Í kjör-
skránni eru nöfn sem misjafnar
skoðanir eru á hvort eigi að vera þar
eða ekki. Þetta veltur á því hvort
Þjóðskrá staðfestir, tekur út einhver
nöfn eða bendir okkur á að einhverj-
ir eigi ekki að vera þarna,“ segir Eva
Sigurbjörnsdóttir, oddviti hrepps-
ins.
Hún segir engin nöfn hafa verið
fjarlægð úr kjörstofni Þjóðskrár sem
barst hreppnefndinni í gær og allir
sem voru skráðir til heimilis í
hreppnum 5. maí, þ.e. á viðmiðunar-
degi stofnsins, séu á kjörskránni.
„Þjóðskrá klárar þetta mál öðru
hvoru megin við helgina og þá mun-
um við funda aftur og fara eftir þeim
tilmælum sem við fáum,“ segir Eva.
Yfir 60 eru á kjörskránni
Fjöldi íbúa í Árneshreppi sam-
kvæmt lögheimilisskráningu hefur
verið sagður hafa aukist um 40% síð-
ustu tvær vikurnar fyrir 5. maí sl. Ný
sveitarstjórn í Árneshreppi mun
miklu ráða um mögulega byggingu
Hvalárvirkjunar. 43 voru á kjörskrá
síðasta haust. „Síðan bættust við
íbúar í kringum áramót sem búa hér
í sveitinni. Ég veit ekki hvenær þetta
fólk flutti lögheimili sitt. Frá 24. til 4.
eða 5. maí fjölgaði í íbúahópnum um
u.þ.b. 40%,“ segir Eva, en hún kveðst
aðspurð ekki muna nákvæmlega hve
margir séu á kjörskránni, en þeir séu
u.þ.b. 64.
Skráin er aðgengileg almenningi í
verslun hreppsins samkvæmt venju
og í samræmi við lög að sögn Evu.
Samþykktu kjör-
skrá með fyrirvara
Bíða niðurstöðu Þjóðskrár Íslands