Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 94% ökumanna finnst þeir öruggari með EyeSight tækni Þú fyllist hugarró þegar þú veist að bíllinn þinn skerst í leik og aðstoðar þig við að koma í veg fyrir árekstur. Varar þig við þegar aðvífandi ökutæki er á blinda punktinum. Og gerir þér kleift að leggja bílnum áreynslulaust í þröngt stæði með aðstoð myndavélar sem sýnir nálægð við gangstéttarbrún. Slakaðu á. EyeSight er staðalbúnaður í Subaru Forester LUX, bensín. EyeSight er hjálparbúnaður fyrir ökumann sem virkar e.t.v. ekki fullkomlega við allar akstursaðstæður. Ökumaður þarf alltaf að sýna ábyrgð og vera með fulla athygli við aksturinn. Virkni búnaðarins er m.a. háð reglulegu viðhaldi bílsins, veðri og akstursaðstæðum. Nánari um virkni og takmarkanir búnaðarins í eigandahandbók eða á vefsíðu. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 8 8 2 2 0 laust og Íslendingar vilja búa í eigin húsnæði. Næstu tvö ár verður þó áfram skortur á íbúðum,“ segir Ás- geir sem telur að lækkun langtíma- vaxta árin eftir hrun hafi skapað for- sendur fyrir starfsemi leigufélaga. Áður hafi „fórnarkostnaður fjár- magns“ verið of hár til að það borg- aði sig að leigja út. Vextir og leiga séu tvær hliðar á sama peningi. Ekki í takt við eftirspurn Fram kom í Morgunblaðinu í gær að vísitala Þjóðskrár fyrir leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækk- að áfram í ár. Benti Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur hjá Íbúða- lánasjóði (ÍLS), á að íbúðaskortur geti þrýsti upp leiguverðinu. Hólmsteinn Brekkan, fram- kvæmdastjóri Samtaka leigjenda á Íslandi, segir framboð leiguíbúða ekki hafa aukist í takt við eftirspurn. „Leiguverð á fermetra fer því ekki lækkandi. Það má gera ráð fyr- ir viðvarandi kostnaðarhækkunum,“ segir hann um áhrif skorts. Hólmsteinn segir stóru leigu- félögin – félög á borð við Heimavelli og Almenna leigufélagið – orðin ráð- andi í verðmyndun á leiguhúsnæði. Almennir leigusalar taki orðið mið af leiguverðinu hjá þessum félögum. Neyðast til að leigja dýrt Hólmsteinn segir eina afleiðingu skortsins þá að leigjendur taki íbúð- ir á leigu sem þeir hafa ekki ráð á. Eftir nokkra mánuði fari það að segja sín. Tekjurnar dugi ekki til. Samkvæmt nýrri skýrslu Íbúða- lánasjóðs töldu 93% aðspurðra í könnun sem gerð var í febrúar að óhagstætt væri að leigja húsnæði. Um 3% aðspurðra töldu það hins vegar hagstætt. Áætlaði sjóðurinn að nú væru um 50 þús. manns, 18 ára og eldri, á leigumarkaði á Íslandi. Vísbendingar eru um að leiguverð fari hækkandi á Suðurnesjum. Sævar Pétursson, löggiltur fast- eignasali hjá Eignamiðlun Suður- nesja, segir fasteignaverð hafa hækkað á árinu. Hækkanirnar séu þó ekki jafn miklar og á fyrri hluta árs í fyrra. „Verðið er að nálgast Hafnarfjörð. Nýbyggingar eru vin- sælar og það er beðið eftir raðhús- unum. Það er helst að stærri íbúðir í fjölbýli seljist hægar,“ segir Sævar. Hann segir leigufélagið Heima- velli orðið ráðandi í verðmyndun á leigumarkaði á Suðurnesjum. „Við fylgjum Heimavöllum. Þeir stýra markaðnum. Leigumarkaður- inn er mjög góður. Síðasta íbúð sem við leigðum fór á 2.000 krónur á fer- metrann,“ segir Sævar. Seldi blokk til Heimavalla Umsvif leigufélaga eru að aukast. Á vefsíðu Heimavalla kemur fram að félagið áformar að bæta við fjölbýlis- húsum í útleigu. Meðal þeirra er Jaðarleiti 8, nýtt fjölbýlishús sunnan við Útvarpshúsið í Reykjavík. Samkvæmt fasteignaskrá keypti C4 ehf., félag í eigu Péturs Stef- ánssonar, fjárfestis í Lúxemborg, umrætt fjölbýli af fasteignafélaginu Skugga í haust fyrir um 779 millj- ónir króna. Félag hans seldi síðan húsið til Heimavalla fyrir áramótin á 828 milljónir. Hafði kaupverðið þá hækkað um rúmar 49 milljónir með haustinu. Alls 18 íbúðir eru í húsinu. Bygging þess er langt komin. Leiguverðið að ná toppi Guðlaugur Ö. Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Leigulistans, hefur efasemdir um að leiguverð muni fylgja kaupverði og halda áfram að hækka. Þvert á móti séu komnar fram vísbendingar um að leiguverðið hafi náð toppi. Það birtist í því að leigusalar slái af leiguverðinu. Guðlaugur telur að á næstu mán- uðum muni leiguverð frekar fylgja launavísitölu en hækkun fast- eignaverðs. Húsaleiga sé enda fjár- mögnuð með launum en fasteigna- kaup að miklu leyti með lánsfé. Leigufélögin eru orðin ráðandi í verði  Samtök leigjenda spá frekari hækkun leiguverðs  Dósent telur að leigjendum muni fjölga frekar  Fasteignasali suður með sjó segir leigufélagið Heimavelli orðið ráðandi í leiguverði á Suðurnesjum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jaðarleiti Nýbyggingar við RÚV. Söluverðmæti íbúða í Jaðarleiti 8 Samkvæmt tveimur kaupsamningum árið 2017 778.859.579 828.000.000 Skuggi ehf. selur C4 ehf. Kaupverð: 778.859.579 kr. C4 ehf. selur Heimavöllum Kaupverð: 828.000.000 kr. Kaupsamningur 3. október 2017 Kaupsamningur 26. desember 2017 Munur: 49.140.421 kr. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vísbendingar eru um að stór leigu- félög séu orðin ráðandi í leiguverði íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Ásgeir Jónsson, forseti hagfræði- deildar Háskóla Íslands, rifjar upp að leigumarkaðurinn hafi stækkað mikið í kjölfar hrunsins. Sú breyting sé á vissan hátt varanleg. Fasteigna- verð hafi hækkað mikið í fyrra. „Um leið og það fer að tregðast með sölu, og fólk er ekki tilbúið að kaupa á núverandi verði, mun leigu- markaðurinn sækja aftur í sig verð- ið. Verðið á mörgum íbúðum sem eru að koma á markaðinn er alltof hátt fyrir fyrstu kaupendur. Það skapar misvægi á markaðnum. Skortur á framboði, strangari kröfur um eigið fé og verðhækkanir á hús- næði gætu farið að þrýsta upp leigu- verði þegar kemur fram á veturinn.“ Verðið mun ná toppi Ásgeir bendir á að fyrr eða síðar muni fasteignaverðið ná toppi. Margir leigjendur muni telja að um sinn sé skynsamlegra að leigja. Þá bendir Ásgeir á að ef fyrstu kaupendur komast ekki á markaðinn muni markaðurinn fyrr en síðar „koðna niður“. Fyrstu kaupendur séu nauðsynlegur hluti hringrásar. „Til lengri tíma litið mun sér- eignastefnan koma til baka. Fram- boðsskorturinn mun ekki vara enda-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.