Morgunblaðið - 17.05.2018, Page 24

Morgunblaðið - 17.05.2018, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is • Verndar vopnið þitt gegn flestum skemmdum • Byggir upp sterka vörn gegn tæringu • Verst frosti niður í – 80°C • Lengir líftíma vopnsins • Hryndir frá sér ryki og skotleifum • Ver vopnið í mjög langan tíma Smurefni fyrir skotvopn SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Segja má að þessi rannsókn hafi byrjað árið 1991 með samræðum mín- um við Pétur Sigurðsso, fyrrum for- stjóra Landhelgisgæslu Íslands. Þá kom í ljós að við Pétur höfðum báðir furðað okkur á því sama, nefnilega hvernig íslensk yfirvöld fóru að því að leysa úr þeim verkefnum sem leiddi af strandi herskipsins Gautaborgar hér við land 7. nóvember 1718. Þá þurfti fyrirvaralaust að taka við hátt á annað hundrað skipbrotsmönnum, hýsa þá og fæða að minnsta kosti til sumars 1719 og síðan senda þá utan til áframhaldandi þjónustu í sjóher konungs vors. Þetta getur ekki hafa verið auðvelt í fátæku og strjálbýlu landi og kominn vetur.“ Þetta eru upphafsorð ritgerðar Halldórs Baldurssonar til meist- araprófs í sagnfræði við Háskóla Ís- lands í byrjun þessa árs, Þegar fylgd- arskipið fórst. Aðgerðir yfirvalda á Íslandi vegna strands herskipsins Gautaborgar á Hraunsskeiði 1718. Um er að ræða afrakstur margra ára rannsóknar hans á frumskjölum málsins, jafnt hér heima sem erlend- is. Halldór, sem er 75 ára gamall, er ekki maður einhamur, hann er læknir að mennt og hefur um árabil verið einn helsti bæklunarsérfræðingur hér á landi, doktor í því fagi. Um alda- mótin var hann í um hálft ár ár læknir og majór í norska NATO-frið- argæsluliðinu í Kosovo. Sagnfræði hefur hins vegar lengi verið ástríða hans og dró hann sig út úr daglegum læknisstörfum til að geta sinnt rann- sóknum og fræðum, þar á meðal há- skólanámi. Fékk dagbækur skipsins Það var með aðstoð Péturs Sig- urðssonar og danskra kollega hans sem Halldór fékk í hendur dagbækur Gautaborgar úr þessari síðustu ferð skipsins. Þar er sjóferðinni lýst með færslum oft á dag. Dagbækurnar eru varðveittar í Ríkisskjalasafni Dan- merkur sem góðfúslega lét hann fá 35 mm ljósmyndir af hverri síðu í bók- unum. Könnun Halldórs á sögu Gautaborgar og aðgerðum íslenskra yfirvalda vegna strands skipsins var þó stopul framan af og oft með margra mánaða og jafnvel nokkurra ára hléum. hann segir að eftir því sem hann kynnti sér málið nánar hafi hann fengið annað og betra álit á yf- irvöldum þess tíma en hann hafði áð- ur haft. „Áður hafði ég helst haft í huga þrálátar deilur og sundrungu meðal embættismanna landsins í upp- hafi 18. aldar,“ segir hann. En undir stjórn nýkomins amtmanns, Norð- mannsins Níels Fuhrmann, var leyst úr þeim erfiðu verkefnum sem til komu vegna strands Gautaborgar, en það útheimti ekki aðeins samvinnu embættismanna innbyrðis, heldur einnig samvinnu embættismanna við á þriðja hundrað bændur. Yfirvöld á Íslandi stóðu sig hér með prýði þegar á reyndi Vegna styrjaldar milli Dana og Svía sigldu kaupför Íslandsversl- unarinnar í skipalestum með her- skipafylgd á árunum 1714 til 1720. Gautaborg var eitt þessara fylgdar- skipa. Það var sænskt að uppruna, smíðað 1696. Notuðu Svíar skipið í margar herferðir gegn Rússum og Dönum á árunum 1700 til 1715 þegar Danir náðu skipinu á sitt vald. Vopnabúnaður skipsins auk hand- vopna var veglegur: 18 tólf punda fallbyssur, 18 sex punda fallbyssur og 8 fjögurra punda fallbyssur. Byss- urnar voru allar steyptar úr járni. Venjuleg áhöfn Gautaborgar var 250 manns. Í síðustu sjóferðinni sumarið 1718 var áhöfnin þó aðeins 189 manns. Segir Halldór að ótilgreindur fjöldi sjóliða hafi á síðustu stundu verið tekinn af Gautaborg til að manna annað herskip og strandvirki Kaupmannahafnar. Liðsforingjar um borð voru flestir danskir, en meiri hluti háseta var Norðmenn. Siglingin til Íslands gekk áfallalaust og kom skipið til Hafnarfjarðar í lok ágúst eftir að hafa sótt vistir í Kefla- vík. Að undanteknum stuttum sigl- ingum til eftirlits og æfinga lá skipið í Hafnarfirði í nærri tvo mánuði, meðan kaupskip losuðu farm sinn og tóku farm til utansiglingar. Strandar í ofsaveðri Gautaborg sigldi frá Hafnarfirði og áleiðis heim 23. október 1718. Nú var kominn vetur og allra veðra von. Skip- ið var ekki komið langt frá landi þegar fárviðri skall á. Það varð fyrir tjóni á reiða, hraktist upp að suðurströnd Ís- lands og króaðist inni í Hafnarvík við Þorlákshöfn. Þar var akkerum varpað 4. nóvember. Öll þrjú siglutré voru höggvin og felld fyrir borð til að minnka vindfang og auka þar með lík- ur á að akkeri héldu. Sunnudaginn 6. nóvember var kóngsins flagg (Danne- brog) ásamt bréfi Friis skipherra sett í tunnu sem var látin reka í land. Í bréfinu skýrði skipherra frá þeirri hafsnauð sem hann var í staddur og bað um að merktur yrði staður þar sem helst væri björgunarvon, ef hann neyddist til að hleypa skipsflakinu til brots. Mánudaginn 7. nóvember fór skipið að reka og var greinilegt að akkeri héldu ekki. Höggvið var á akkeris- festar og siglt í strand við Hrauns- skeið á Ölfusi. Neyðar-framsigla hafði verið reist til að hafa nokkra stjórn á skipinu. Átta menn úr áhöfninni drukknuðu í strandinu. Þegar skip- verjar voru komnir í land, skrifaði skipherra bréf til Fuhrmanns amt- manns. Lýsti hann neyð sinni og bað amtmann að koma sem fyrst ásamt landfógeta til að gera ráðstafanir til bjargar skipverjum og til að bjarga því sem unnt væri af kóngsins eigum. Þegar bréf skipherrans barst til Bessastaða var amtmaður staddur í Skálholti, en Cornelius Wulf land- fógeti brást röggsamlega við hjálp- arbeiðninni. Hann kallaði til sín nokkra landseta konungs ásamt varalögmanninum Niels Kier. Þeir héldu að Hrauni í Ölfusi með 56 hesta. Þegar amtmaður frétti af at- burðunum skrifaði hann þegar bréf til sýslumanns Árnessýslu, Brynjólfs Thorlaciusar, og skipaði honum að fara þegar í stað til Þorlákshafnar og gera þar viðeigandi ráðstafanir til að bjarga áhöfn og þeim verðmætum úr Gautaborg sem unnt væri. Amtmað- ur kvaðst mundu hitta sýslumanninn á strandstað og kom þangað að kvöldi 11. nóvember ásamt landfóg- eta. Varð Hraun í Ölfusi stjórnstöð fyrstu aðgerða vegna strandsins. Sjóliðunum komið fyrir Nú verður að gera langa sögu stutta. Að skipan Fuhrmanns hóf Brynjólfur sýslumaður sjópróf að Hrauni 15. nóvember. Áhöfnin var yfirheyrð um það sem gerst hafði og framburður allra vitna skráður. Jafn- framt hófst sýslumaður handa um að skrá og varðveita öll þau verðmæti sem björguðust úr skipsflakinu. Ákveðið var að lesa upp fyrir almúg- ann á viðeigandi stöðum í nágrenninu tilskipun konungs frá 1705 um hvern- ig fara skyldi með góss sem bjargað yrði eða ræki upp við strand svo eng- inn freistaðist til refsiverðs athæfis, svo sem þjófnaðar, hilmingar eða launverslunar. Skylt var heimamönn- um að aðstoða við björgun og vörslu á strandgóssinu gegn sanngjarnri þóknun. Skipið liðaðist sundur á tveim vik- um frá strandinu. Fram eftir vetri var reynt að bjarga verðmætum á strandstað. Tæki skorti til að rífa flakið og til að bjarga fallbyssunum. Þær eru enn einhvers staðar djúpt í sandinum á Hraunsskeiði og hafa ýmsir látið sig dreyma um að ná þeim upp, en það mun vera þrautin þyngri. Sjóliðarnir 174 sem björguðust voru dýrmætir menn, sérstaklega þegar Danakonungs ríki átti í styrj- öld. Mikilvægt var að koma þeim ut- an til áframhaldandi þjónustu í sjó- hernum. Kaupskip sem komu til landsins 1718 voru farin frá Íslandi. Því varð að koma skipverjum fyrir á bæjum þar til unnt yrði að senda þá til Danmerkur. sem gat í fyrsta lagi orðið haustið 1719 með þeim kaup- skipum sem kæmu til landsins sum- arið 1719, ef stríðið hindraði ekki siglingar. Amtmaður bað Friis skip- herra að láta sem fyrst gera skrá yfir alla skipverja. Þar skyldi tilgreina hverjir væru sjúkir og yrðu því að flytjast frá ströndinni, einnig hverjir væru vanir fiskveiðum svo þeim yrði komið fyrir við sjávarsíðuna. Greini- legt er að sjóliðum hefur verið ætlað að taka þátt í störfum þar sem þeir hefðu vetursetu. Tókst að finna pláss fyrir alla skipverjana á bæjum á svæðinu frá Fljótshlíð til Álftaness. Liðsforingjar voru vistaðir hjá höfð- ingjum, á Bessastöðum, hjá Skál- holtsbiskupi, varalögmanni í Nesi við Seltjörn og hjá sýslumönnum. Samkomulag gestanna og heima- manna um veturinn virðist hafa verið gott. Sums staðar kannski full gott því þegar skipbrotsmenn fóru heim skildu þeir eftir ein 8 lausaleiksbörn. Íslensku barnsmæðurnar voru dæmdar í fjársektir því barneignir utan hjónabands voru refsiverðar. Barnsfeðurnir heyrðu ekki undir ís- lenska lögsögu og fóru af landi brott án eftirmála. Innlyksa á Íslandi heilan vetur  Í nóvember 1718 fórst danskt herskip við Hraunsskeið í Ölfusi  Finna þurfti 174 skipbrotsmönn- um heimili næstu mánuði  Örsmátt og veikt stjórnkerfi á Íslandi réð við þetta margbrotna verkefni Herskip Á þessu málverki frá því í lok 18. aldar er herskipið Gautaborg sýnt innan um fleiri sænsk herskip á siglingu; það er fimmta skip frá hægri. Morgunblaðið/Valli Fræði Sagnfræði er ástríða Halldórs Baldurssonar læknis. Ritgerð hans um strand Gautaborgar byggist á viðamikilli rannsókn frumskjala málsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.