Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.05.2018, Blaðsíða 39
Þegar Meghan var 11 ára sendi hún Hillary Clinton, sem þá var for- setafrú Bandaríkjanna, bréf þar sem hún lýsti yfir furðu sinni á því að sjónvarpsauglýsingu um þvottaefni væri eingöngu beint að konum og að í henni væri látið í veðri vaka að staður konunnar væri í eldhúsinu. Þetta vakti talsverða athygli í Bandaríkjunum og varð til þess að auglýsingunni var breytt. Árið 2003 útskrifaðist hún úr Northwestern háskólanum með tvö- falda BA-gráðu í sviðslistum og al- þjóðasamskiptum. Hún hafði hug á að verða leikkona og á milli áheyrn- arprufa vann hún við skrautskrift. Fyrsta hlutverk hennar á skjánum var í sápuóperunni General Hospital árið 2002, síðan tóku við hlutverk í sjónvarpsþáttunum CSI, 90210, Castle og Fringe, svo nokkrir séu nefndir. Einnig lék hún smáhlutverk í nokkrum kvikmyndum en stóra tækifærið kom þegar henni var boð- ið hlutverk Rachel Zane í lögfræði- dramanu Suits árið 2011. Um það leyti giftist hún kvikmyndaframleið- andnum Trevor Engelson en þau höfðu þá verið par í sex ár. Þau skildu árið 2013. Suits urðu geysivinsælir þættir, frægðarsól Meghan hækkaði og hún stofnaði lífsstílssíðuna thetig.com sem varð afar vinsæl. Þar skrifaði hún um lífsstíl frá ýmsum sjón- arhornum, valdeflingu kvenna og hvernig hún sameinaði leikkonu- starfið og vinnu sína að góðgerð- armálum. Síðunni hefur nú verið lok- að eins og reyndar öllum samfélags- miðlasíðum Meghan. Hún var ráðgjafi fyrir alþjóðlegu góðgerðarsamtökin One Young World og hélt erindi á ýmsum vett- vangi um femínisma, mansal og jafn- rétti kynjanna. Til dæmis hélt hún erindi á Alþjóðadegi kvenna í höf- uðstöðvum Sameinuðu þjóðanna ár- ið 2015 um konur í leiðtogahlut- verkum. Þá hefur hún starfað talsvert með Jafnréttisstofnun SÞ. Eftir að tilkynnt var um trúlofun þeirra Harrys hefur hún látið af störfum fyrir flest þessara samtaka. Búist er við því að hún muni láta jafnréttismál og málefni kvenna til sín taka þegar hún tekur til starfa á ný eftir brúðkaupið. Jæja. Er hann góður maður? Bent hefur verið á muninn sem er annars vegar á Meghan, þegar hún giftist inn í þessa frægustu fjöl- skyldu heims, og hins vegar Díönu heitinni prinsessu og Katrínu her- togaynju af Cambridge og tilvonandi svilkonu Meghan. Díana var korn- ung barnfóstra þegar hún giftist Karli og Katrín var ekki vön sviðs- ljósinu í upphafi sambands þeirra Vilhjálms. En það er Meghan aftur á móti, þó sú fjölmiðaumfjöllun sem hún fékk sem leikkona sé ekki neitt í líkingu við þá sem hún fær núna. „Margir halda að ég sé vön þessu. En ég hef aldrei verið í slúðurblöð- unum fyrr en nú, “ sagði hún í viðtali eftir að samband þeirra Harrys varð opinbert. „Í byrjun var svo mikið af rangri umfjöllun að ég las ekkert sem var skrifað um mig.“ Leiðir þeirra lágu saman í júlí 2016 í matarboði hjá sameiginlegum vinum í New York. Brúðurin tilvon- andi sagði í viðtali að hún hefði vissulega vitað hver hann var, en hún hefði ekki vitað mikið um hann. „Ég þekkti lítið til hans. Svo það eina sem ég spurði vinkonu mína um, þegar hún sagði að hún vildi að við tvö hittumst, var: Jæja, er hann góður maður? Vegna þess að ef hann hefði ekki verið það, þá hefði ég ekki haft áhuga á að hitta hann.“ Parið náði vel saman, þau fóru fljótt að hittast reglulega og í októ- ber þetta sama ár fengu fjölmiðlar veður af sambandinu. Skömmu síðar sendi breska hirðin út formlega yf- irlýsingu um samband þeirra og bað þar fjölmiðla um að virða einkalíf Meghan. Þar sagði að prinsinn ótt- aðist um öryggi hennar, hann væri ósammála þeim fullyrðingum að linnulaust áreiti væri það gjald sem hún yrði að greiða fyrir að vera í tygjum við hann og að það væri „hluti af leiknum“. „Þetta er enginn leikur – þetta er líf hennar og hans,“ sagði í yfirlýsingunni. 27. nóvember síðastliðinn var svo tilkynnt um trúlofun þeirra og að brúðkaup væri í vændum. „Við erum tvær manneskjur sem eru virkilega hamingjusamar og ástfangnar. Ég hef ekkert breyst. Ég er sú sama og ég var áður,“ svaraði Meghan spurð um hvaða áhrif það hefði haft á hana að trúlofast inn í bresku konungs- fjölskylduna. AFP Regent Street í London Víða um Bretland eru götur og torg fánum prýdd í tilefni af brúðkaupi þeirra Harrys og Meghan sem verður á laugardaginn AFP Póstur Gefin hafa verið út frímerki með myndum af brúðhjónunum. 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018 Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is Ýmiskonar varningur merktur brúðhjónunum er kominn á markað vegna brúðkaups þeirra Harrys og Meghan. Andlit þeirra prýða drykkjarkönnur og púða, stuttermaboli, sængurföt, sælgæti og diska og brugghús nokk- urt í Windsor hefur bruggað hátíðabjór í tilefni af brúðkaupinu. Hann heitir „Windsorhnútur Harrys og Meghan“ eða Harry & Meghan Windsor Knot og er þar bæði vísað til staðsetningar brúðkaupsins og tiltekinnar gerðar bindishnúts. Bjórinn er svokallaður Pale Ale og er unninn úr bresku byggi og bandarískum humlum. Af öðrum brúðkaupsvarningi má nefna smokka sem seldir eru í for- láta kassa merktum Crown Jewels eða „Krúnudjásn“. Þegar kassinn er opnaður hljómar samsuða af bandaríska og breska þjóðsönginum og á hann er letrað: „Leggstu niður og hugsaðu um England. Prinsinn þinn mun koma!“ Á vefsíðu framleiðandans segir að um sé að ræða hágæðasmokka sem bjóði upp á „konunglega skemmtun“. Konunglegir smokkar, könnur, krúsir, púðar og Harrybjór ÝMISKONAR BRÚÐKAUPSVARNINGUR Í BOÐI Konunglegt Meðal varnings sem framleiddur hefur verið í tilefni brúðkaupsins eru smokkar sem kallast „Krúnudjásn“. Af öðrum varningi má nefna könnur og púða. Síðast þegar karlmaður úr bresku konungsfjölskyldunni giftist fráskil- inni bandarískri konu, þurfti hann að afsala sér krúnunni. Það var Ját- varður VIII sem það gerði en hann gat ekki hugsað sér lífið án Wallis Simpson, tvífráskilinnar konu frá Pennsylvaníuríki í Bandaríkjunum og tók bróðir hans Georg VI, langafi Harrys og faðir Elísabetar drottn- ingar við konungdómi eftir afsögn hans. Þetta var árið 1936, síðan þá hefur margt breyst og nokkrir með- limir fjölskyldunnar eru ýmist fráskildir eða hafa gifst fólki sem á hjónaband að baki. Karl Bretaprins, faðir Harrys, skildi við Díönu prinsessu og er nú giftur Camillu hertogaynju af Cornwall sem einnig er fráskilin. Anna prinsessa föðursystir Harrys er fráskilin og líka Andrés prins, föðurbróðir hans. Um hjónabönd meðlima bresku konungsfjölskyldunnar gilda kon- unglegu hjúskaparlögin (Royal Marriages Act) sem að hluta til eru frá árinu 1772. Fram til ársins 2013 voru í gildi lög um að meðlimur fjöl- skyldunnar missti erfðarétt sinn til krúnunnar ef hann eða hún giftist kaþólskum einstaklingi. Þá giltu einnig fram að þeim tíma lög um að allir meðlimir fjölskyldunnar þyrftu að fá samþykki hjá þjóðhöfðingja fyrir ráðahagnum. Núna gildir það ákvæði eingöngu um þá fjölskyldu- meðlimi sem eru þeir sjöttu fremstu í erfðaröðinni, en það eru í erfða- röð: Karl Bretaprins, Vilhjálmur prins sonur hans og hertogi af Cam- bridge, Georg prins, Karlotta prinsessa og Louis prins sem öll eru börn Vilhjálms og svo Harry prins. Um síðustu helgi birtist á samfélagsmiðlasíðum bresku hirðarinnar mynd af skjali sem sýnir formlegt samþykki Elísabetar Englands- drottningar fyrir brúðkaupi Harrys og Meghan. Skjalið er ritað á pergament, fagurlega skreytt og staðfest með innsigli hennar hátign- ar. Elísabet amma Harrys gaf samþykki fyrir ráðahagnum EINU SINNI MÁTTU ÞAU EKKI GIFTAST FRÁSKILDU FÓLKI Samþykki Skjalið, sem er ritað á pergament, er til staðfestingar um formlegt samþykki Elísabetar Englandsdrottningar, ömmu brúðgumans, fyrir ráðahagnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.