Morgunblaðið - 17.05.2018, Side 45
45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018
Loftslagsbreytingar af manna-
völdum eru hnattrænn umhverf-
isvandi enda virðir mengun engin
landamæri. Vitundarvakning á
þessu sviði hefur meðal annars leitt
til stórfelldra framfara í framleiðslu
vistvænna bifreiða, bæði varðandi
notkun á vistvænni orku og notkun
áls til að létta bílana. Kostir um-
hverfisvænni bíla eru ótvíræðir,
þeim fylgir ekki aðeins umhverf-
islegur ávinningur heldur líka fjár-
hagslegur því að orkan sem knýr þá
er ódýrari. Það á sérstaklega við
hér á Íslandi þar sem allt rafmagn
er framleitt með sjálfbærum hætti.
Undanfarin ár hafa stjórnvöld ýtt
undir áframhaldandi vistvæna þró-
un með því að leggja virðisauka-
skatt niður af rafknúnum bílum,
auk þess sem vörugjöld af bensín-
og dísilknúnum bifreiðum eru
breytileg eftir skráðri losun koltví-
sýrings ökutækisins. Umræðan í
dag beinist í áttina að rafbílavæð-
ingu, en með hliðsjón af miklum
framförum í þróun bensín- og dís-
ílvéla er útlit fyrir að þær muni
gegna mikilvægu hlutverki við að
draga enn frekar úr mengun.
Styttist í tvo milljarða öku-
tækja
Á annan milljarð ökutækja er í
heiminum og mikil aukning er á
sölu í þróunarlöndum. Með áfram-
haldandi vexti styttist í að tveir
milljarðar ökutækja verði í umferð,
þar af rúmlega helmingurinn fólks-
bílar. Jörðin okkar nálgast því tíma-
mót þar sem reynt verður á þol-
mörk hennar, að hluta
til vegna mengunar úr-
eltra bílvéla. Ábyrgð
kallar á aðgerðir.
Frá upphafi hefur
loftmengun verið
þekktasti vankantur
bifreiða, en ekki sá
eini. Á nítjándu öld
skildu úreltir bílar eftir
sig úrgangsefni, göml-
um hjólbörðum var
brennt í milljónatali og
þungmálmar úr raf-
hlöðum skiluðu sér til
hafsins. Þrátt fyrir
þetta neikvæða vistspor hafa bílar
gegnt veigamiklu hlutverki í þróun
mannkyns og eru nauðsynlegir til
að viðhalda þeim lífsstíl og efnahag
sem við þekkjum í dag. Hér á landi
eru bifreiðar ein af forsendum efna-
hagslegra framfara, þær eru til
dæmis mjög mikilvægar í dreifingu
ferðamanna um landið, auk þess
sem mikið landrými á Íslandi leyfir
okkur að búa á rýmri máta en flest-
um öðrum vestrænum þjóðum. Bif-
reiðar veita okkur einnig persónu-
legt frelsi, sveigjanleika og þægindi
umfram það sem almennings-
samgöngur eða reiðhjól bjóða upp á,
þó þessir samgöngumátar eigi full-
komna samleið með bíleigandanum.
Aðhald Evrópusambandsins
Frá 1992 hefur Evrópusambandið
sett fram reglugerðir með það
markmið að auka loftgæði, sem þýð-
ir að bílaframleiðendur þurfa að
mæta ströngum Evrópustöðlum til
þess að halda koltvísýringi og nít-
uroxíðmengun niðri. Þökk sé þess-
um stöðlum hafa orðið
miklar framfarir í þró-
un bensín- og dísilvéla.
Sem dæmi losar dís-
ilbíll með Euro 6-
vottun eingöngu 0,08
grömm af níturoxíði á
kílómetra, sem er einn
tólfti af því sem var
árið 1992 þegar stað-
allinn var fyrst kynnt-
ur til sögunnar. Við
bætist að nýjustu dís-
ilbílarnir er útbúnir
sérstökum síum sem
fjarlægja að miklu leyti útblásturs-
efni er valda svif- og reykmengun.
Losun dísilvéla á níturoxíði er orð-
inn það lítil að það styttist í að slík
mengun heyri sögunni til.
Þessari framfarir marka kaflaskil
í sögu dísilvéla þar sem nýjustu dís-
ilvélar eru ekki lengur hluti vand-
ans heldur lykill að lausn hans.
Framtíðin felst í því að minnka út-
blástur koltvísýrings enn frekar en
miklar framfarir hafa nú þegar átt
sér stað. Dísilbílar með Euro 4-6
vottun mega eingöngu losa 0,50
grömm af koltvísýringi á kílómetra
en bifreið með Euro 1 staðli mátti
losa 2,2 grömm á kílómetra árið
1992. Minnkunin er því rúmlega
sexföld. Allir nýir bílar sem skráðir
eru á Íslandi í dag verða að uppfylla
Euro 6-staðalinn. Ýmsir bíla-
framleiðendur munu frá því í sept-
ember 2018 uppfylla enn ríkari
staðal, Euro 6d-staðalinn, sem setur
fram enn frekari kröfur um hreinan
akstur, og það allt að ári áður en
staðallinn verður skylduviðmið.
Val og ábyrgð bílnotenda
Með því að farga gömlum bílum,
sem ná einungis að uppfylla Euro
1-3-staðla og endurvinna þá geta
neytendur spornað við skaðlegum
útblæstri og stuðlað þannig að
minni gróðurhúsaáhrifum og betra
andrúmslofti. Bílaumboð hér á landi
bjóða til dæmis upp á slíka þjón-
ustu, þar sem bíleigendur geta látið
farga eldri bílum til endurvinnslu og
fengið inneign til kaupa á vistvænni
og sparneytnari Euro 6-bíl í stað-
inn. Finnar hafa stigið þetta skref
af fullum krafti og miklu þéttar en
við Íslendingar, en gegn förgun
eldri bíls, þá greiða finnsk stjórn-
völd innborgun fyrir viðkomandi bíl-
eiganda inn á nýjan, sparneytnari
og hreinni bíl, til móts við bílgrein-
ina sjálfa sem leggur til þátttöku á
móti. Mörg önnur lönd hafa farið
þessa leið til að flýta endurnýjun
bílaflotans með hreinni bílum sem
um leið eru miklu öruggari og spar-
neytnari. Meðalaldur bíla á Íslandi
er nú um 12 ár og einn sá hæsti í
Evrópu.
Með hjálp nýjustu og öflugra um-
hverfisstaðla og þróunarvinnu bíla-
framleiðenda losa bílar eingöngu
um 4% prósent af heildar koltvíox-
íðútblæstri (CO2) á Íslandi í dag.
Það hlutfall mun væntanlega lækka
enn frekar næsta áratuginn með
áherslu stjórnvalda á orkuskipti og
lágmarksmengun bifreiða í sam-
göngum. En þrátt fyrir jákvæða
þróun hefur aldrei verið mikilvæg-
ara að bifreiðanotendur séu meðvit-
aðir um hvaða staðli bíllinn þeirra
fylgir og taki ábyrgar ákvarðanir
um framtíðina í kjölfarið.
Að sama skapi er mikilvægt að
stjórnmálamenn sem tala fyrir
Borgarlínu og umhverfisvænni bíla-
flota, tali af ábyrgð og þekkingu.
Helga Vala Helgadóttir þingmaður
Samfylkingarinnar ritar grein í
Morgunblaðið föstudaginn 11. maí.
Hún segir það óhrekjanlega stað-
reynd að bíllinn sé mesti sökudólg-
ur mengunar hér á landi og sé upp-
runi mestrar losunar kolefnis. Ljóst
er að hún hefur ekki kynnt sér mál-
in nægjanlega vel. Af lestri grein-
arinnar má sjá að þingmaðurinn
gerir sér líklega ekki grein fyrir því
að nýir bílar, hvort sem þeir eru
knúnir rafmagni, bensín, dísil eða
blöndu af þessum orkugjöfum eru
miklu hreinni en bílar sem voru
skráðir fyrir einum eða tveimur
áratugum síðan, og þeim mun síður
gerir hún sér grein fyrir að bifreið-
ar hér á landi, þótt gamlar séu, skila
aðeins 4% af þeim koltvíoxíðút-
blæstri (CO2) sem við landsmenn
skilum út í andrúmsloftið, eins og
kom fram í svari umhverfisráðherra
á Alþingi árið 2015.
Eftir Jón Trausta Ólafsson
»Kostir umhverf-
isvænni bíla eru
ótvíræðir, þeim fylgir
ekki aðeins umhverf-
islegur ávinningur held-
ur líka fjárhagslegur.
Jón Trausti
Ólafsson
Höfundur er formaður
Bílgreinasambandsins og
framkvæmdastjóri Öskju.
Hreinni bílar – lykill að lausninni
Þegar litið er yfir
farinn veg í rekstri
Seltjarnarnesbæjar
geta sjálfstæðismenn
verið stoltir. Ekki að-
eins á Nesinu heldur
um land allt. Seltjarn-
arnes er frábært
dæmi um skyn-
samlegan rekstur
bæjarfélags. Hér eru
skattar og skuldir með
því lægsta sem gerist.
Álagning útsvars er t.d. 13,7% hér
en 14,52% í Reykjavík, sem er
raunar hámarksútsvar enda
vinstrimenn við völd þar undir for-
ystu Samfylkingarinnar. Þetta
skiptir auðvitað miklu máli. Samt
sem áður er þjónustustigið hér
mikið mun hærra, og reyndar með
því hæsta á landinu í öllum mála-
flokkum og ánægja íbúa eftir því.
Ómakleg gagnrýni
Í dag er sótt að okkur sjálfstæð-
ismönnum á Seltjarnarnesi úr ýms-
um áttum. Óvæntum líka. Helsta
gagnrýnin er hversu lengi flokk-
urinn hefur verið við völd. Það eru
einkennileg rök þegar vel gengur.
Einnig er gagnrýnt hversu þjón-
ustustigið er hátt og lítill afgangur
er af rekstri bæjarins, sem sveiflast
eftir atvikum. En undir forystu
Sjálfstæðisflokksins hefur tekist að
bjóða íbúum Seltjarnarness úrvals-
þjónustu með lágum sköttum og
álögum og erum við stolt af því.
Skuldahlutfallið er með því lægsta
á landinu og sterkar stoðir eru í
grunnrekstri bæjarins. Stækkun
íþróttamiðstöðvar, sem Reykvík-
ingar kosta 2/3 hluta af, og bygging
hjúkrunarheimilis, sem ríkið borg-
ar 85% af auk alls rekstrarkostn-
aðar eru enn fremur hluti af gagn-
rýninni. Ef þetta eru helstu
gagnrýnisefnin er ekki mikið sem
bjátar á hjá okkur á
Nesinu.
Vaxandi vinsældir
Fyrir síðustu kosn-
ingar ritaði ég grein
um vinsældir Sel-
tjarnarness hjá
barnafjölskyldum.
Ekki óraði mig þá fyr-
ir hvað hefur síðan
gerst. Svefnbærinn er
bókstaflega að fyllast
af barnafjölskyldum.
Á sama tíma rituðu
fulltrúar minnihlutans
um að hér væri allt ómögulegt.
Sem betur fer hlustuðu fáir. Þeir
eru að minnsta kosti hér sjálfir
ennþá. Hér er ekki ódýrt að festa
kaup á húsnæði, enda eftirspurn
úr öllum sveitarfélögum, ekki síst
úr Reykjavík þar sem ríkir
ófremdarástand í leiksskólum,
grunnskólum og frístundamið-
stöðvum. Það eru gleðifregnir hve
Seltjarnarnesbær er vinsæll og því
ber að fagna. Til skemmri tíma út-
heimtir það fjárfestingu í innviðum
en á móti koma nýir skattgreið-
endur sem taka þátt í að viðhalda
háu þjónustustigi á skynsamlegum
kjörum.
Stefnan er skýr
og metnaðarfull
Þrátt fyrir töluverða uppbygg-
ingu ætlar Sjálfstæðisflokkurinn
ekki að hækka skatta. Flokkurinn
ætlar þvert á móti að nýta svigrúm
til skattalækkana. Viðmiðunar-
aldur tómstundastyrkja verður
lækkaður niður í fimm ára aldur úr
sex. Nýr leikskóli mun rísa, enda
Sólbrekka úr sér gengin. Allt
stefnir í yfir 10% fjölgun barna á
leikskólunum frá því í fyrra miðað
við sama inntökualdur, 14 mánaða.
Það er lægra en víðast hvar annars
staðar. Með nýjum leikskóla er
stefnt á 12 mánaða inntökualdur.
Öryggis- og umferðarmál verða
sett í forgang. Áhersla verður á
eflingu Strætó og að ekki verði
þrengt meir að einkabílnum en nú
þegar er búið að gera. Sjálfstæð-
isflokkurinn á Seltjarnarnesi hef-
ur tekið skýra afstöðu varðandi
Borgarlínuna sem er í dag óraun-
hæf hugmynd. Umhverfismál og
vestursvæðin hafa ávallt verið í
öndvegi hjá okkur og sérstök
áhersla verður á að hlúa vel að
eldri borgurum sem er hratt
stækkandi hópur í samfélaginu.
Gerum lífið enn betra
Ég þekki engan Seltirning sem
vill búa í öðru sveitarfélagi.
Ástæðan fyrir því er einföld. Hér
hefur okkur tekist að byggja upp
svo eftirsóknarvert samfélag að
önnur sveitarfélög líta hingað öf-
undaraugum. Þetta hefur tekið
marga áratugi og allan þann tíma
hefur bærinn verið undir öruggri
forystu Sjálfstæðismanna. Í kosn-
ingunum 26. maí óska Sjálfstæð-
ismenn eftir traustum meirihluta
til að hér verði áfram eitt eftir-
sóknarverðasta bæjarfélag lands-
ins. Við heitum því að gera enn
betur – gera lífið enn betra. Til-
raunastarfsemi í breytingastjórn-
un úr þekktri formúlu getur
reynst bæjarbúum dýrkeypt.
Kjósum áframhaldandi lífsgæði,
ábyrgð og festu.
Eftir Magnús Örn
Guðmundsson »En undir forystu
Sjálfstæðisflokksins
hefur tekist að bjóða
íbúum Seltjarnarness
úrvalsþjónustu með lág-
um sköttum og álögum
og erum við stolt af því.
Magnús Örn
Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur
og skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðis-
manna á Seltjarnarnesi.
Lífsgæði, ábyrgð
og festa á Nesinu
Þrjú stórmál skipta
fólkið í Reykjavík
miklu máli: Greiðar
samgöngur, húsnæði
og laun. Við kynntum
lausnir í þessum mál-
um út við Örfirisey í
gær ásamt fjár-
málaráðherra, Bjarna
Benediktssyni. Með
þessum skynsömu
lausnum mun
Reykjavík dafna og
styrkjast á ný.
Leysum um-
ferðarhnútana
Við setjum Sunda-
braut á dagskrá en
með henni munu tafir
í Ártúnsbrekkunni
hverfa. Við viljum
fækka 3-4 hættu-
legum gatnamótum á
borð við Bústaðaveg,
Kringlumýrarbraut,
Grensásveg og Háa-
leitisbraut. Við viljum
bæta sérakreinar fyr-
ir strætó og stuðla að samfloti fyr-
ir þrjá í bíl. Laga ljósastýringar
og auðvelda hleðslu fyrir raf-
magnsbíla í fjölbýli. Borgin hefur
ekki lagt áherslu á þessi mik-
ilvægu mál sem verða sett í for-
gang ef við komumst í meirihluta.
Byggjum upp á Keldum
Á sama tíma og Garðabær hefur
dafnað og leyst til sín Vífilsstaða-
landið hefur Reykjavík ekkert
klárað á Keldum. Þetta mikla land
er síðasta stóra svæðið sem liggur
vel að samgönguæðum. Við ætlum
að skipuleggja Keldur fyrir stofn-
anir, fyrirtæki og heimili. Hægt
væri að koma 20 spítölum fyrir á
Keldum, svo stórt er landið. Und-
anfarin ár hafa stofnanir og fyrir-
tæki farið frá
Reykjavík. Íslands-
banki flutti í Kópavog
og WOW er á leiðinni
þangað. Sýslumað-
urinn á höfuðborg-
arsvæðinu er kominn
í Kópavog og það er
lýsandi fyrir ástandið
að Reykvíkingar
þurfa að fara í Kópa-
vog til að kjósa utan-
kjörfundar. Að
óbreyttu munu fleiri
fara, en með Keldum
getum við boðið frá-
bærar lóðir fyrir
þessa mikilvægu að-
ila. Þessi uppbygging
mun jafna skipulags-
hallann sem er í
borginni þar sem um-
ferðin er stífluð í
aðra áttina alla daga
vikunnar.
Lækkum skatta
á launafólk
Á sama tíma og
margir knýja á kaup-
hækkun rukkar
Reykjavík hæstu
skatta á launafólk af öllum sveita-
félögum á höfuðborgarsvæðinu.
Þessu viljum við breyta. Við ætl-
um að lækka útsvarið úr 14,52% í
13,98% í fjórum skrefum á fjórum
árum. Með þessu fær fólkið í
borginni meira í vasann og
Reykjavík verður samkeppnishæf
á ný. Það er með ólíkindum að
langstærsta sveitarfélagið skuli
ekki geta nýtt hagkvæmni stærð-
arinnar. Hér ættu að vera lægstir
skattar og besta þjónustan. Allt of
lengi hefur höfuðborgin dregist
aftur úr nágrönnum sínum og því
þarf að snúa við. Það er kominn
tími á breytingar.
Endurræsum
Reykjavík
Eftir Eyþór
Arnalds
» Það er með
ólíkindum að
langstærsta
sveitarfélagið
skuli ekki geta
nýtt hagkvæmni
stærðarinnar.
Hér ættu að
vera lægstir
skattar og besta
þjónustan.
Eyþór Arnalds.
Höfundur er borgarstjóraefni
Sjálfstæðisflokksins.