Morgunblaðið - 17.05.2018, Síða 89
MENNING 89
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2018
Stærsta málverkið sem Amedeo Mo-
digliani (1884-1920) málaði á sinni
stuttu ævi, málverk af nakinni konu
sem nefnist „Nu Couche (sur le cote
gauche)“, var selt á uppboði hjá
Sotheby’s í vikunni og slegið óþekkt-
um kaupanda fyrir 157,2 milljónir
dala, með gjöldum, rúma sextán
milljarða króna. Þetta er fjórða dýr-
asta málverk sem selt hefur verið á
uppboði og það dýrasta sem Sothe-
by’s hefur selt.
Þetta er þó ekki hæsta verð sem
fengist hefur fyrir verk eftir Mo-
digliani því árið 2015 greiddi kín-
verskur auðkýfingur 170,4 milljónir
dala, 17,4 milljarða króna, fyrir
minna málverk eftir hann, þekkt
undir heitinu „Nu Couché“. Bæði
þessi málverk eru úr frægri röð
nektarmynda sem Modigliani málaði
á árunum 1917 til 18 að ósk gall-
erista síns í París, sem greiddi mál-
aranum 15 franka á dag.
Seljandi verksins sem selt var í
fyrrakvöld var írskur milljarðamær-
ingur, hrossaræktandi og listaverka-
safnari, sem keypti málverkið fyrir
fimmtán árum fyrir 26,9 milljónir
dala, sem var á þeim tíma metfé fyr-
ir verk eftir Modigliani. Það ýtti
undir frægð verksins að það var á
dögunum á yfirlitssýningu á verkum
listamannsins í Tate Modern.
AFP
Verðmætt Málverk Modiglianis „Nu Couche (sur le cote gauche)“
var slegið hæstbjóðanda hjá Sotheby’s fyrir um sextán milljarða króna.
Rándýr Modigliani
Bókmennta- og kartöflu-bökufélagið er vissulegalangur og furðulegur titillog hann er jafnvel enn
lengri á frummálinu, The Guernsey
Literary and Potato Peel Pie Soci-
ety. Í upphafsatriðinu er opinberað
hvernig þetta tiltekna félag varð til,
sem var undir afar óvenjulegum
kringumstæðum, sem skýrir einnig
af hverju nafn þess er svona óvenju-
legt.
Titillinn endurspeglar líka
ákveðna lensku, sem hefur frekar
verið áberandi innan bókmennta-
heimsins en kvikmyndaheimsins,
þ.e. að hafa titla óhemju langa og
skrítna. Þetta er líklega fyrst og
fremst gert til að vekja forvitni og
kátínu. Höfundur sem hefur nýtt sér
þetta gagngert er t.d. hinn sænski
Jonas Jonasson, höfundur Gamlingj-
ans sem skreið út um gluggann og
hvarf. Kartöflubökufélagið er ein-
mitt byggð á bók sem kom út árið
2008. Höfundur hennar, Mary Ann
Shaffer, vann um árabil að sögunni
en lést áður en hún gat lokið verk-
inu. Frænka hennar, Annie Barr-
ows, lauk við bókina að Mary látinni
og er titluð sem meðhöfundur. Bókin
naut gríðarlegra vinsælda, hefur
verið þýdd á fjölda tungumála og
hefur nú verið fest á filmu.
Sagan gerist í Bretlandi árið 1946,
rétt eftir lok seinna stríðs. Aðal-
persónan er Lundúnabúinn Juliet
Ashton, ungur rithöfundur sem er í
miðjum klíðum að kynna nýja bók.
Bókin er skrifuð undir leyninafninu
Izzy Bickerstaff og er samansafn af
grínpistlum sem hún skrifaði á
stríðsárunum. Bókin nýtur mikilla
vinsælda, umboðmanni hennar Sid-
ney til mikillar ánægju.
Juliet á í ástarsambandi við
Bandaríkjamanninn Mark, sem
sendir henni stöðugt gjafir og blóm.
Juliet er hrifin af honum en glöggir
áhorfendur ættu að eygja vísbend-
ingar um að þetta samband sé ekki
vænlegt til langlífis.
Á yfirborðinu virðist allt vera í
sómanum hjá Juliet en það er þó
greinilegt að hún er eirðarlaus á ein-
hvern hátt, hún brennur ekki fyrir
þessari nýútkomnu bók og þráir að
skrifa eitthvað af raunverulegri vigt.
Dag einn fær hún fyrirspurn bréf-
leiðis frá manni af eyjunni Gurnsey,
sem rakst á nafn hennar og heim-
ilisfang fyrir tilviljun. Maðurinn
heitir Dawsey Adams og segist til-
heyra Bókmennta- og kartöfluböku-
félaginu í Guernsey. Þetta vekur for-
vitni Juliet og hún biður hann að
útskýra þetta furðulega félag frekar.
Dawsey segir henni alla sólarsöguna
og Juliet er svo heilluð að hún afræð-
ur að fara til Guernsey á fund félags-
ins, með það að markmiði að skrifa
um það pistil fyrir The Times. Þegar
þangað er komið kynnist Juliet með-
limum félagsins, sem eru einkar
vinalegir þótt þeir séu hver öðrum
sérvitrari.
Hún ílengist á eyjunni og kemst
fjótlega að því að vegferð félags-
manna hefur verið þyrnum stráð og
það er ýmislegt viðkvæmt í fortíð
þeirra sem þeir vilja ekki að líti
dagsins ljós. Meðan Juliet aflar sér
upplýsinga um fortíð meðlima og
rýnir í sögu eyjunnar Guernsey, fer
hún að efast um að hún vilji snúa aft-
ur til lífs síns í borginni.
Kvikmyndin gerist rétt eftir stríð
og er afskaplega vel heppnuð sem
períóda. Sviðsmyndin er bæði sann-
færandi og sérlega snotur og bún-
ingarnir sömuleiðis. Það er allt sam-
an afskaplega breskt, myndin kallar
fram hugrenningatengsl við breskt
sjónvarpsefni á borð við Downton
Abbey og Monarch of the Glen og
aðdáendur þess konar efnis verða
vafalaust hrifnir. Eitthvað segir mér
að myndin myndi sóma sér ein-
staklega vel sem sunnudagsmynd á
RÚV.
Sagan líður mjúklega áfram og
heldur áhorfandanum vel, þar sem
hann fylgist með rannsókn Julietar
og hennar persónulegu þróun. Saga
hernámsins í Guernsey setur sterk-
an svip á myndina en í gegnum end-
urlit sjáum við svipmyndir af þeim
hörmungum sem riðu yfir eyja-
skeggja í stríðinu. Þetta hreyfir
mjög við Juliet, hún finnur fyrir ríkri
samúð með fólkinu, og sögurnar af
stríðinu eru tengdar hennar per-
sónulegu sögu.
Þegar kvikmyndir eru byggðar á
bókum skilar það sér oft í dýpri og
litríkari persónum en ella og það er
tilfellið hér. Meðlimir félagsins eru
skemmtilegir og áhugaverðir og
leikararnir túlka þá með glæsibrag.
Sérstaklega var ég hrifin af hinni
undarlegu Isolu, sem selur eyja-
skeggjum heimabruggað gin og
drekkur talsvert af því sjálf.
Þegar aðlaganir eru annars vegar
er samt alltaf hætt við því að texti
taki of mikið pláss, á kostnað þeirrar
sjónrænu frásagnaraðferðar sem er
kvikmyndamiðlinum eiginleg. Hér
leynir það sér ekki að myndin er
byggð á bók og það er jafnvel full-
augljóst. Það er gríðarmikil áhersla
á texta, persónur tala mikið, úskýra
mikið og lesa oft löng bréf upphátt.
Bóklestur er líka lykilþema í mynd-
inni, sem boðar að lestur og ritun
bóka sé töfrandi fyrirbæri sem sam-
einar fólk og bjargar jafnvel manns-
lífum. Þessi sykursæta bókaróman-
tík fer hættulega nálægt því að vera
yfirþyrmandi en gengur blessunar-
lega ekki alveg svo langt.
Bókmennta- og kartöfluböku-
félagið er hugljúf mynd og fínasta
afþreying og þótt hún skilji ekkert
brjálæðislega mikið eftir sig er hún
algjörlega áhorfsins virði. Alveg sér-
staklega á sunnudegi.
Konan sem sigldi yfir hafið til að kynnast
félögum bókaklúbbs en kynntist sjálfri sér
Langur titill Leikkonan Lily James í Bókmennta- og kartöflubökufélaginu, kvikmynd sem ber enn lengri titil á
frummálinu, The Guernsey Literary and Potato Peel Pie Society og er byggð á skáldsögu Mary Ann Shaffer.
Smárabíó
Bókmennta- og kartöflubökufélagið
bbbnn
Leikstjóri: Mike Newell. Handrit: Kevin
Hood, Thomas Bezucha og Don Roos.
Kvikmyndataka: Zac Nicholson. Klipp-
ing: Paul Tothill. Aðalhlutverk: Lily
James, Michiel Huisman, Matthew
Goode, Katherine Parkinson, Jessica
Brown Findlay, Glem Powell, Penelope
Wilton og Tom Cortenay. 124 mín.
Bretland, 2018.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Nú einnig netapótek: Appotek.is
ICQC 2018-20