Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
RenaultKADJAR&CAPTUR
Sparneytnir sportjeppar
Renault Captur, verð frá: 2.750.000 kr.
Renault Kadjar, verð frá: 3.550.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
8
0
8
3
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrirtæki innan raða Félags atvinnu-
rekenda hefur stefnt Þjóðskrá og
Reykjavíkurborg vegna útreiknings
fasteignamats og álagningar fast-
eignagjalda. Telur fyrirtækið að
Þjóðskrá hafi notað ólögmætar að-
ferðir við endurmat á fasteign félags-
ins og krefst þess að þær verði ógiltar
og að Reykjavíkurborg verði gert að
endurgreiða oftekin fasteignagjöld
upp á rúmlega þrjár milljónir kr.
Félag atvinnurekenda hefur á
undanförnum árum gagnrýnt sveitar-
félög fyrir að lækka ekki álagningar-
prósentu fasteignaskatts á móti mikl-
um hækkunum fasteignamats en í
flestum tilvikum talað fyrir daufum
eyrum, að sögn Ólafs Stephensen
framkvæmdastjóra. „Langflest
sveitarfélög halda áfram að inn-
heimta hæsta lögleyfða fast-
eignaskatt af gjaldstofni, sem er
fundinn út með vafasömum aðferð-
um. Við fylgjumst þess vegna grannt
með þessu máli og vonumst til að það
skili á endanum réttlátri og sann-
gjarnri niðurstöðu fyrir eigendur at-
vinnuhúsnæðis,“ segir Ólafur.
Gjöldin tvöfaldast
Fyrirtækið sem um ræðir á fast-
eign í Kringlunni. Fasteignamat
hennar hefur hækkað úr rúmum 40
milljónum árið 2014 í rúmar 80 millj-
ónir og fasteignagjöldin úr 668 þús-
und í 1.322 þúsund krónur á sama
tímabili, eða um 98%.
Í stefnunni kemur fram að Þjóð-
skrá hafi á árinu 2014 tekið upp nýja
aðferð við að reikna út fasteignamat
atvinnuhúsnæðis. Það hafi leitt til
mikillar hækkunar á mati umræddr-
ar fasteignar. Lögmaður fyrirtækis-
ins telur að eingöngu sé heimilt að
beita svokallaðri tekjumatsaðferð,
sem Þjóðskrá hefur tekið upp sem
meginmatsaðferð, þegar gangverð
fasteigna er ekki þekkt. Ekki hafi
verið gengið úr skugga um það í
þessu tilviki.
Krafan gagnvart Reykjavíkurborg
byggist meðal annars á því að gjald-
stofninn hafi verið ranglega ákvarð-
aður. Einnig að borginni hafi verið
óheimilt að leggja á 25% álag við inn-
heimtu fasteignagjalda. Ákvæði um
valkvæða skattlagningu sé í andstöðu
við ákvæði stjórnarskrár.
Hækkun fasteigna-
mats verði ógilt
Fyrirtæki telur að borgin hafi oftekið fasteignagjöld
Morgunblaðið/Hari
Kringlan Fasteignamat og fasteignagjöld eignar fyrirtækis í Kringlunni
hafa tvöfaldast frá árinu 2014. Það reynir að fá ákvörðuninni hnekkt.
„Við fáum aukna starfsemi inn í
samfélagið. Reksturinn skapar um-
svif og störf,“ segir Valgarður Hilm-
arsson, sveitarstjóri á Blönduósi. Í
gær var fyrsta skóflustunga tekin að
húsi fyrir gagnaver Borealis Data
Center (BDC) á sérstöku gagna-
verssvæði sem skipulagt hefur verið.
Forsvarsmenn sveitarfélagsins
hafa lengi haft áhuga á að fá til sín
gagnaver. Sú vinna er að skila
árangri nú með samstarfi við BDC
sem rekur gagnaver á Ásbrú.
Blönduósbær og Húnavatns-
hreppur styðja við uppbygginguna
með því að standa að byggingu húss
fyrir gagnaverið í samvinnu fast-
eignafélags heimamanna, Ámunda-
kinnar, og BDC, sem á meirihluta.
Sveitarfélögin leggja 20 milljóna
króna hlutafé inn í fasteignafélagið í
þessum tilgangi.
Tilbúið í júlí
Pantað hefur verið 400 fermetra
einingahús frá Austurríki og rís það
á gagnaverslóðinni sem er við Svín-
vetningabraut, rétt fyrir ofan hest-
húsahverfi bæjarins. Það á að rísa
hratt og rekstur á að geta hafist í
júlí.
Valgarður segir stefnt að aukinni
starfsemi en hún ráðist af því hvern-
ig gangi að útvega aukna orku til
hennar. Segir hann unnið að því í
samvinnu við raforkufyrirtækin.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Skóflustunga Björn Brynjólfsson, Arnar Þór Sævarsson, Guðmundur
Haukur Jakobsson og Ásmundur Einar Daðason hefja framkvæmdir.
Fyrsta gagnaverið
rís á Blönduósi