Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 74
74 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 VIÐTAL Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Í ljósmyndunum er ég alltaf að fjalla um tímann og breytingar, og þá einkum áhrif af hnattrænni hlýn- un. Til að sýna tímann í myndum þarf að mynda sömu staðina aftur og aftur og þess vegna held ég áfram að koma til Íslands,“ segir þýski ljósmyndarinn Olaf Otto Bec- ker þegar ég hitti hann á Ásbrú, þar sem áður var innan girðingar á svæði varnarliðsins við Keflavík- urflugvöll. Ég er kominn að sækja Becker, sem er að skila húsbíl sem hann hafði haft á leigu undanfarna viku, meðan hann ferðaðist um og ljósmyndaði. Og þarna við skemm- urnar sem við bíðum við meðan Bec- ker bíður afgreiðslu með bílinn get ég líka séð hvernig tíminn hefur lið- ið; ég kom síðast þarna snemma á níunda áratugnum þegar ég var fréttaritari í Keflavík og þá voru þetta verkstæði hjá varnarliðinu. Það var þá. Olaf Otto Becker er einn virtasti landslagsljósmyndari Evrópu í dag. Ég ætlaði að aka honum til Reykja- víkur, þar sem síðar þennan sama dag var opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sýning á verkum hans, Ís og land – Ljósmyndir frá Íslandi og Grænlandi 1999-2017; sýningin sem mun standa í sumar og allir áhugamenn um ljósmyndun og nátt- úru þurfa að sjá, og líka þeir sem hafa áhuga á markvissri og vandaðri heimildaskráningu og því hvernig sjá má hvernig tíminn líður. Verk Becker eru sýnd um allar trissur þessi árin. Stór sýning á verkum hans er í Amsterdam og önnur var nýverið í Boston. Eftir að hafa myndað á Íslandi þessa viku var hann á leið heim til Þýskalands í tvo daga, þaðan til Noregs að mynda í nokkra daga, þaðan ætlaði hann að fljúga til Bretlands að opna sýningu og svo fara aftur til Noregs að mynda – áður en hann færi til New York að vera viðstaddur opnun gallerísýningar með verkum sínum. Virt þýsk bókaforlög hafa gefið út röð áhrifamikilla bóka með verkum Becker og hafa allar hlotið mikið lof og unnið til verðlauna; fyrst gaf Schaden út Undir the Nordic Light (2005), með myndum frá Íslandi. Síðan hefur Hatje Cantz verið út- gefandi ljósmyndarans og gaf fyrst út Broken Line (2007) með ljós- myndum frá 4.000 km siglingu ljós- myndarans með vesturströnd Grænlands; myndirnar í Above Zero (2009) voru einnig teknar á Grænlandsísnum og skrá bráðnun jöklanna; í Under the Nordic Light – A Journey Through Time / Ice- land 1999-2011 fjallar hann aftur um Ísland; í Reading the Landscape (2014) beinir Becker sjónum að áhrifum hlýnunar og ágangi manna á frumskóga hitabeltisins og þá er nýútkomin bókin Ilulissat: Sculptu- res of Change – Greenland 2003– 2017, hvar hann beinir sjónum að bráðnandi ís við Grænland. Þar til nýlega tók Becker allar sínar myndir á stóra blaðfilmu- myndavél með 8x10 tommu blað- filmum – 20x25 cm að stærð. Vinnu- ferlið krefst aga og skýrrar sýnar, og það er hægt og kostnaðarsamt ferli en útkoman getur verið ægi- fagrar og ofurskarpar ljósmyndir sem henta vel túlkun listamannsins. Stundum gríðarleg breyting „Ég náði í þessari ferð að mynda aftur nokkra staði sem ég myndaði fyrst fyrir átján árum,“ segir Olof Otto Becker þegar við leggjum af stað til Reykjavíkur og hann rifjar upp góða viku við ljósmyndum. „Í bókinni Under the Nordic Light má sjá nokkur myndapör sem ég mynd- aði með tíu ára millibili og nú náði ég að heimsækja suma þeirra staða einu sinni enn. Stundum sést ekki mikil breyting en á öðrum gríðarleg, ekki síst í jöklamyndunum. Eins má sjá tímann líða í myndum sem ég hef tekið af tveimur náungum á mótorhjólum, Stefáni og Ragnari. Fyrst þegar ég myndaði þá voru þeir 14 og 15 ára. Næst myndaði ég þá 24 og 25 ára, á sama stað en á nýjum mótorhjólum. Nú myndaði ég þá á sunnudaginn var, 30 og 31 árs, enn á sama stað og á nýjum hjólum. Og að auki tók ég mynd af þeim með fjölskyldunni; annar á eig- inkonu og sjö mánaða dóttur og hinn konu og sjö ára dóttur sem ég myndaði með þeim. Þannig heldur lífið áfram. Á meðan jöklarnir hörfa fjölgar fólkinu og það eldist. Þetta er sagan um breytingar sem ég er að segja í verkum mínum og ég hef nú fylgst með þessum breytingum hér á landi í nær tuttugu ár. Og ég mun halda því áfram, kem ekki ár- lega að mynda en kannski næst eftir þrjú, fjögur ár.“ Becker bætir við að hann hafi áhuga á þeim ummerkjum sem við mennirnir skiljum eftir okkur á landinu og í náttúrunni, ummerkj- um sem sýni tímann líða. „Hnatt- ræn hlýnun orsakar breytingar og til að sýna þær þarf að skoða staði á löngum tíma, hvort sem ég geri það með myndavél eða vísindamenn eru að verki. Ef maður kemur aftur og aftur að sama jökli má sjá breyting- arnar – og vísindamenn fræða okk- ur um þetta ástand. Breytingarnar tengjast líka þeim takmarkaða tíma sem hvert okkar fær hér á jörðinni en við erum þó ábyrg fyrir gerðum okkar á þeim tíma. Við verðum að hugsa um kynslóðirnar sem taka við af okkur – við megum ekki nota all- ar auðlindirnar fyrir okkur hér og nú, það er fráleit græðgi því lífið heldur áfram. En ég hef ekki bara myndað breytingar sem hafa orðið af völdum náttúrunnar hér á landi því ég kom líka eftir efnahagshrunið og mynd- aði þá byggingar sem hætt hafði verið að reisa í miðjum klíðum. Í síðustu Íslandsbókinni og á sýning- unni má sjá slík pör, sem ég mynd- aði eftir hrun. Og nú fór ég enn og aftur á þá staði. Sum húsin hafa að- eins breyst örlítið síðan 2011 – í einu á fólkið líka enn sama bílinn. Nú hefur verið lokið við önnur, eins og húsið sem ég myndaði þaklaust árin 2010 og 2011. Árið 2014 eignaðist ný fjölskylda það, setti þak á veggina og er flutt inn. Nú bankaði ég þar upp á og fékk að mynda í stofunni, sama sjónarhornið, og fyrir miðri mynd er sonur hjónanna að læra fyrir próf. Þegar ég kem aftur eftir nokkur ár situr hann þar kannski enn og að gera eitthvað allt annað. Alltaf að fjalla um tímann og breytingar  Olaf Otto Becker hefur myndað á Íslandi og á Grænlandi Ljósmyndir/Olaf Otto Becker Ægifegurð Ein hinna stóru ljósmynda eftir Olaf Otto Becker frá Grænlandi á sýningunni í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Ilulissat 01, 2016. Endurtekið Tvö verka Becker tekin hér á landi með áratugs millibili „Stefán og Ragnar 07/2001“ og „Stefán og Ragnar 07/2011“. Hann myndaði mennina í þriðja sinn á dögunum og nú með konum og börnum. Vantar þig lögfræðing? Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.