Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nú styttist í að framkvæmdir hefjist við jarð- vinnu vegna uppbyggingar á stærsta húsi Nýja Landspítalans, svokölluðum meðferðar- kjarna. Verkið var boðið út í apríl sl. og tilboð verða opnuð hjá Ríkiskaupum 6. júní nk. Hús- ið verður 66 þúsund fermetrar og er stefnt að því að starfsemi geti hafist árið 2024. Þessar framkvæmdir munu valda miklu raski á lóð Landspítalans. Meðal annars munu mörg bílastæði hverfa og því hefur Landspít- alinn snúið sér til Reykjavíkurborgar og óskað eftir að fá afnot undir bílastæði fyrir starfsfólk og gesti á grænum svæðum á svokölluðum Umferðarmiðstöðvarreit. Alls vill spítalinn fá svæði fyrir 237 bílastæði. Fyrir síðasta fund borgarráðs var lagður til staðfestingar samningur skrifstofu eigna og atvinnuþróunar og Landspítalans en af- greiðslu hans var frestað. Fyrir borgarráð var lögð umsókn Nýs Landspítala ohf. Þar kemur fram að vegna fyrirhugaðra framkvæmda innan lóðar Land- spítalans lendi stór hluti núverandi bílastæða innan framkvæmdasvæðisins. Á fram- kvæmdatíma sé nauðsynlegt að tryggja að- gengi að spítalanum fyrir sjúklinga, gesti spít- alans og starfsfólk. Því sé þörf á bráðabirgðabílastæði, bæði innan og utan lóð- ar Landspítalans. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í júní 2018. Frá þeim tíma og fram til loka árs 2021 er áætlað að þörf sé á bráða- birgðabílastæðum utan lóðar spítalans. Sam- anlagður fjöldi stæða er 237, 150 stæði á vest- ari reit og 87 á eystri reit. Allar skemmdir sem kunna að verða á landi vegna framkvæmda við bráðabirgðabílastæðin verða lagfærðar á kostnað Nýja Landspítal- ans. Verkið innifelur jarðvinnu og yfirborðs- frágang við gerð bílastæðanna, lýsingu, rekst- ur og viðhald á framkvæmdatíma og aðgangs- stýringu bílastæðanna. Gjaldskylda á bílastæðunum Aðgangsstýring bílastæðanna á fram- kvæmdatíma verður bundin við gjaldskyldu til að tryggja gott aðgengi að bílastæðunum fyrir gesti og starfsmenn Landspítalans sem og al- menna notendur. Engin hlið verða, heldur get- ur almenningur (þ.m.t. viðskiptavinir Land- spítalans) lagt í bílastæðin gegn gjaldi en gert er ráð fyrir að starfsmenn og nemendur við Landspítalann muni hafi aðgang að bílastæða- kortum sem gilda í sömu stæði. Til stendur að semja við bílastæðasjóð um fyrirkomulag og eftirlit með þessum stæðum. Landspítalinn þarf 240 ný bílastæði Ljósmynd/NLSH Bílastæðin nýju Þau verða á grænum svæðum norðanmegin við Umferðarsmiðstöðina.  Jarðvinna vegna meðferðarkjarna Nýs Landspítala hefst í sumar  Flest bílastæði spítalans lenda innan framkvæmdasvæðisins  Spítalinn óskar eftir landi undir bílastæði við Umferðarmiðstöðina Tvær íslenskar konur eru á lista Apolitical yfir 100 áhrifamestu ein- staklinga í jafnréttismálum fyrir ár- ið 2018. Það eru Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi ráð- herra og borgarstjóri, en hún hefur verið í fararbroddi fyrir Women Political Leaders. Apolitical, sem er alþjóðlegur stefnumótunarvettvangur, kynnti listann í gær, samkvæmt frétt frá forsætisráðuneytinu. Á listanum eru þeir einstaklingar sem þykja hafa skarað fram úr hvað viðvíkur jafnréttismálum hvort sem er með rannsóknum, stefnumótun, baráttu fyrir málefnum sem tengjast jafnrétti eða öðru. Melinda Gates, annar stofnenda Bill & Melinda Gates Foundation, Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, og Julia Gillard, fyrrver- andi forsætisráðherra Ástralíu, eru einnig á listanum. Hanna Birna Kristjánsdóttir Katrín Jakobsdóttir Eru á lista Apolitical fyrir 2018 Sumarfundur forsætisráðherra Norðurlandanna var haldinn í Örnsköldsvik í Svíþjóð í vikunni. Fundurinn er haldinn árlega og var Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, gestgjafinn í ár. Fundinn sátu Erna Solberg, for- sætisráðherra Noregs, Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra Dan- merkur, Juha Sipilä, forsætisráð- herra Finnlands, Stefan Löfven og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð- herra Íslands. Þau ræddu m.a. nor- rænt samstarf, stöðu alþjóðastjórn- mála, þróun mála í Evrópu og öryggismál og 5G-væðingu Norður- landanna. Þau funduðu einnig með lögmanni Færeyja en leiðtogum Grænlands og Álandseyja var einn- ig boðið til fundarins. Sumarfundur ráð- herranna í Svíþjóð Hagkvæmt húsnæði Leit að samstarfsaðilum Reykjavíkurborg leitar að samstarfsaðilum um uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði á völdum reitum í borginni. Í vetur auglýsti Reykjavíkurborg eftir hugmyndum til að auka framboð á hagkvæmu húsnæði fyrir meðal annars ungt fólk og fyrstu kaupendur. 68 aðilar sendu inn hugmyndir og voru þær meðal annars kynntar á málþingi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Nú er komið að öðrum fasa verkefnisins þar sem umsóknir um reiti sem lýsa uppbyggingu á tilteknum svæðum verða metnar á grundvelli matslíkans. Reitirnir sem um ræðir eru í Úlfarsárdal, á Kjalarnesi, í Gufunesi, í Bryggjuhverfi við Elliðaárvog, við Stýrimannaskólann, á Veðurstofureit og í Skerjafirði. Skipulag þessara svæða er mislangt á veg komið. Gert er ráð fyrir því að samstarfsaðilar komi inn í þróunar- og deiliskipulagsvinnu og geti þannig haft áhrif á endanlegt deiliskipulag. Umsóknir skal senda í síðasta lagi 20. júní 2018. Nánari upplýsingar um verkefnið ásamt matsblaði má finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/hagkvaemt-husnaedi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.