Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 75
MENNING 75 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 Með þessum myndum fjalla ég um þróun á afmörkuðum tíma…“ – Þú blandar saman sögu náttúr- unnar og fólksins. „Já, og í tíma náttúrunnar sést oft bara hæg breyting en þegar menn ráðast í framkvæmdir í henni gerast hlutirnir hratt. Mannheimar breyt- ast á annan hátt; ég hef nokkrum sinnum myndað sama húsið á Akra- nesi en þegar ég kom þar í vikunni var búið að fjarlægja það!“ Gluggar að landslaginu Það er athyglisvert að sjá hvernig Becker myndar nákvæmlega sömu sjónarhornin þegar hann snýr aftur á staðina. Hann þakkar þjálfun sinni sem teiknari og málari áður en hann fór að ljósmynda fyrir þá ná- kvæmni. Hann gat sér orð fyrir að mynda alltaf á mjög stóra og hæg- virka blaðfilmuvél en hefur hann ekki skipt yfir í stafrænt umhverfi? „Jú, ég skipti yfir í stafrænt og ástæðurnar eru nokkrar. Í stafræn- um myndum er auðveldara að fást við ljós og skugga, upplýsingarnar eru enn meiri, og svo er það miklu ódýrara. Áður þurfti ég að skanna allar filmurnar inn og rykhreinsa í tölvu, það gat tekið klukkustundir með hverja mynd. Og svo þurfti að litaleiðrétta – og bara hver filma og framköllun kostuðu mig allt að 50 evrum stykkið. Nú þegar ég mynda landslag tek ég marga ramma staf- rænt og sauma þá saman; allt að 80 skot gera eina mynd. Stundum duga þrjú skot en 12 er þó algengara. Markmiðið er alltaf að skapa stórt myndverk, ég vil opna fólki glugga að landslaginu þar sem ég hef verið. Landslagið þarf að vera jafn skýrt og ef áhorfendur væru á staðnum. Ég vil að öll smáatriði sjáist og þess vegna notaði ég 8x10 tommu film- una. En það má ná enn meiri smá- atriðum í stafrænni samsetningu.“ Mynd af samtíma okkar Ferill Becker sem skapandi ljós- myndara hófst hér á landi en síðan hefur hann unnið að viðamiklum verkefnum á Grænlandi og í hita- beltinu. „Það er satt, hér hófst þetta,“ segir hann. „Mig hafði lengi langað að vinna að langtímaverkefni í ljósmyndum en fann ekki tíma til þess. Árið 1999 hafði ég verið önn- um kafinn við að reka lítið auglýs- ingafyrirtæki, sem tók gríðarlegan tíma, en ég reyndi þó að mynda að- eins með. Ég sá að ég yrði að fara að heiman til að ná að einbeita mér og sá þá athyglisverðar myndir frá Íslandi; hér er ungt eldfjallalands- lag, lítt mótað og fjölbreytilegt, en þó byggt fólki sem var byrjað að breyta ásýnd náttúrunnar með virkjunum og annars konar mann- virkjum. Ég fór að taka hér fallegar og dramatískar svarthvítar myndir með mjög stórri blaðfilmumyndavél, 12x20 tommur – filman er 30x50 cm að stærð. Ég var heillaður af foss- unum og myndaði eins og Ansel Adams. Svo fór ég líka að taka að- eins á minni myndavélina, 8x10 tommu,“ – hann hlær því það er mjög stór myndavél – „en fannst að sumar myndanna þyrfti ég að taka á litfilmu. Þegar ég kom heim og fór að framkalla sá ég að svarthvítu myndirnar voru fallegar en litu út eins og þær hefðu verið teknar fyrir einni öld. Þær fjölluðu um annan tíma! En á 8x10 tommuna myndaði ég hús, sveitaflugvelli, orkuver; myndir sem ég sá að fjölluðu um samtíma okkar og ég vissi að ég yrði að halda áfram á þeirri leið, til að skapa mynd af samtíma okkar. Ég söðlaði því um og fór að mynda um- merki um það sem við mennirnir gerum á jörðinni – og það sem við gerum jörðinni. Og ég kom hingað í nokkur sumur í röð að mynda. Ég hef aldrei sýnt svarthvítu mynd- irnar sem ég tók 1999.“ Eftir að hafa myndað á Íslandi og áttað sig á áhrifum hnattrænnar hlýnunar lá leið Becker til Græn- lands í nokkur sumur. Hann keypti sér gúmmíbát og öflugan mótor og sigldi einn um 4.000 km leið með vesturströnd landsins, lenti í sann- kölluðum svaðilförum en sneri heim með merkileg ljósmyndaverk sem nú hafa verið gefin út á þremur bók- um og sem fjalla meðal annars um hnattræna hlýnun og skúlptúrana sem náttúran mótar í þeim ham- förum. „Ég vil gjarnan fá fólk til að hugsa um hvað er að gerast með jörðina okkar,“ segir hann. „Sá veruleiki þarf að sjást í listasöfnum eins og í fjölmiðlum. Ég er bara einn lítill maður að reyna að segja öðrum frá því sem er að gerast og vekja fólk til umhugsunar um það hvernig við förum með jörðina. Vandamálið er risavaxið og við verð- um öll að taka höndum saman ef okkur á að takast að leysa það, fyrir börnin okkar,“ segir Becker þegar Reykjanesbrautin er að baki og við ökum inn í Reykjavík. Morgunblaðið/Einar Falur Ljósmyndarinn „Til að sýna tímann í myndum þarf að mynda sömu staðina aftur og aftur,“ segir Olaf Otto Becker. Hopandi jökull Becker myndaði skriðjökul við Öræfajökul í tvígang með ellefu ára millibili, 1999 og 2010. Hann segir mikilvægt að snúa aftur að mynda því tíminn sýni alvarleg áhrif hinnar hnattrænu hlýnunar. Pólski rithöfundurinn Olga Tokar- czuk hlaut alþjóðlegu Man Booker- bókmenntaverðlaunin í ár fyrir skáldsöguna Flights og hlýtur hún að launum 50.000 sterlingspund sem hún deilir með þýðanda sínum. Tokarczuk er fyrsti pólski rithöf- undurinn sem hlýtur þessi verð- laun. Verðlaunin eru veitt fyrir verk höfundar sem þýtt hefur verið á ensku og skiptir þá engu hvaðan höfundurinn er. Yfir 100 skáldsög- ur kepptu um verðlaunin og bar sú pólska sigurorð af fyrri vinnings- höfum, þeim Han Kang frá Suður- Kóreu og László Krasznahorkai frá Ungverjalandi. Enskur þýðandi Tokarczuk er Jennifer Croft. Tokarczuk er metsöluhöfundur í heimalandi sínu og hefur þar hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín. Í bók sinni Flights veltir hún m.a. fyrir sér ferðalögum og mannslík- amanum og fjallar m.a. um hjarta Chopins sem systir tónskáldsins flutti frá París til Varsjár. Tokarczuk var gestur á pólsku menningarhátíðinni í Reykjavík ár- ið 2006. Tokarczuk hlaut alþjóðlegu Man Booker-verðlaunin Skjáskot frá Louisiana channel Verðlaunuð Pólski rithöfundurinn Olga Tokarczuk. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Síðustu sýningar komnar í sölu. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Fös 25/5 kl. 20:00 34. s Fös 1/6 kl. 20:00 36. s Sun 27/5 kl. 20:00 35. s Lau 2/6 kl. 20:00 37. s Allra síðustu sýningar! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fim 24/5 kl. 20:30 aukas. Lau 26/5 kl. 20:30 aukas. Fös 1/6 kl. 20:30 aukas. Fös 25/5 kl. 20:30 aukas. Fim 31/5 kl. 20:30 aukas. Lau 2/6 kl. 20:30 aukas. Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Mystery boy (Stóra sviðið) Fim 24/5 kl. 19:30 MYSTERY BOY (Yfirnáttúruleg ástarsaga) Aðfaranótt (Kassinn) Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.