Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 67
MINNINGAR 67 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 mig fyrir vin. Deilt með mér gleði og sorg. Ég mun aldrei gleyma því hvernig þú tókst mér opnum örmum þegar ég leitaði til þín, vængbrotin. Þú leist í augun á mér, glottir og sagðir svo eins góðlátlega og bara þú kunnir: „Mikið er gott að sjá að þú ert ekki fullkomin. Ég var farin að hafa áhyggjur!“ Ég fékk nýja vængi og gat aftur flogið. Ég mun aldrei gleyma bláu augunum þínum sem sögðu meira en öll orð. Ég mun aldrei gleyma síða, þykka hárinu, glettnu brosinu, dillandi hlátrinum. Ég mun aldrei, aldrei gleyma okkar síðustu samverustundum, aðeins nokkrum dögum áður en þú fórst. Ég mun aldrei gleyma þér. Þín vinkona, Sigurbjörg. Elsku Kata. Hvernig þú lifðir þessu lífi er til svo mikillar eftirbreytni. Þú gerðir alltaf allt sem þurfti að gera, sama hversu erfitt það var, og þú gerðir allt svo vel. Við vonum að okkur takist að herma það eftir þér héðan af. Við söknum þín og munum allt- af sakna þín en á sama tíma gleður það okkur óendanlega, og mun alltaf gleðja okkur, að hafa fengið að eiga þig að í öllu sem fyrir kom í lífinu. Við fögn- um því innilega að hafa fengið að gráta með þér úr hlátri í óteljandi skipti. Það er gott að þú varst til, þú skilur eftir þig mjúka birtu í veröldinni. Takk fyrir að vera samferða og góða ferð aftur til stjarnanna, elsku vinkona okkar. Elsku Inga, Óli, Kormákur og Róbert, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Vilborg og Jónasína Fanney. Stórt skarð myndaðist í U- bekkinn við þær sorgarfréttir að bekkjarsystir okkar hún Katrín Ólafsdóttir væri látin. Kata upplifði margar sorgir og erfiðleika á sinni stuttu ævi, þurfti að kveðja bæði bróður sinn og systur og lifa sjálf með sama sjúkdóm og þau. Þrátt fyrir þetta var það brosmildi hennar, gleði og jákvæðni sem einkenndi hana alla tíð. Það voru mikil forréttindi að fá að vera með Kötu í bekk í gegnum menntaskólaárin. Kata var öflugur námsmaður og sam- viskusöm með eindæmum, hjálpsöm, þolinmóð og vildi allt- af öllum vel. Þetta nýttist okkur bekkjarfélögunum vel, sérstak- lega þegar kom að blessaðri stærðfræðinni. Kata tók einnig virkan þátt í félagslífinu og fyrstu menntaskólaárin skipaði leikfélagið stóran sess í lífi hennar. Í fyrsta bekk tók hún þátt í uppsetningu á Kabarett og í öðrum bekk var hún orðin gjaldkeri félagsins. Kata var ótrúlega skapandi, gat bæði teiknað og málað, og gerði sér lítið fyrir og teiknaði afar frum- lega og skemmtilega bekkjar- mynd af okkur í Carminu-ár- bókina. Kata tókst á við öll verkefni af jákvæðni, sama hversu stór og erfið þau voru, og lét aldrei neitt stoppa sig. Hún var algjör nagli, kláraði læknisfræði og eftir smá umhugsun fann hún sérnám sem hentaði henni og flutti til Svíþjóðar. Hún var ein- stök móðir og sinnti því hlut- verki af mikilli alúð og metnaði. Það var dásamlegt að fylgjast með sambandi hennar og Kor- máks og öllu því skemmtilega sem þau gerðu saman. Kata var ótrúlega fallega manneskja að innan sem utan. Brosinu hennar munum við aldrei gleyma, svo innilegt var það. Hún brosti með augunum og oft glitti í smá prakkarasvip, enda alltaf stutt í grín og létta stríðni. Hún myndaðist alltaf vel og á öllum þeim ljósmynd- um sem við eigum til af henni brosir hún sínu fallega brosi. Þó að sorgin sé sár og söknuðurinn mikill lifir minningin um góða vinkonu og allar þær einstöku stundir sem við áttum saman. Elsku Kormákur, Inga Lára og Ólafur, missir ykkar er óbærilegur og hugur okkar er hjá ykkur á þessum erfiðu tím- um. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Hvíl í friði, kæra vinkona. Fyrir hönd bekkjarfélaga úr 4U, Menntaskólanum á Akur- eyri, Lilja Þorsteinsdóttir. Föstudaginn 11. maí er ég mætti til vinnu á meinafræði- deild Landspítalans, bárust mér þær hörmungarfréttir að Katr- ín Ólafsdóttir læknir, sem við alltaf kölluðum Kötu, væri látin. Það þyrmdi yfir mig og minn- ingar um hina glöðu og góðu Kötu streymdu fram. Ég kynntist Katrínu fyrst er hún vann rannsóknarverkefni sitt um vélindakrabbamein við læknadeild Háskóla Íslands undir aðalumsjón Agnesar Smáradóttur krabbameinslækn- is. Að verulegu leyti vann Kata samt verkefnið með mér á meinafræðideildinni. Ég sá þá að hún var einstaklega elskuleg, samviskusöm og með mikla námshæfileika. Síðar þegar hún óskaði eftir starfi á meinafræðideildinni, með áhuga á að leggja meina- fræði fyrir sig sem sérgrein í læknisfræðinni, var ég ekki í vafa um að ég vildi ráða Kötu til starfa hjá okkur á deildinni. Kata vann hjá okkur í rúm tvö ár áður en hún fór í frekara framhaldsnám í meinafræði til Svíþjóðar í janúar 2016. Hún var nálægt því að ljúka fram- haldsnámi í meinafræði þegar kallið kom svo skyndilega og svo sársaukafullt. Í starfi sínu á meinafræði- deildinni á Landspítalanum var Kata einstaklega vel liðin. Hún var samviskusöm, dugleg, ósér- hlífin og vingjarnleg. Hún kom vel fram við alla og fór aldrei í manngreinarálit. Allir starfs- menn voru vinir hennar og mynduðust skemmtileg vina- tengsl sérstaklega milli deild- arlækna og lífeindafræðinga á deildinni, en þetta smitaði gleði út frá sér. Kata og hennar góði vinur Rodrigo deildarlæknir áttu mikinn þátt í því. Síðan kom móðir Kötu, Inga Lára, til starfa á sýnamót- tökunni á deildinni og var þá af- skaplega notalegt að hafa þær mæðgur saman hjá okkur. Eftir að Kata fór út til Svíþjóðar fengum við reglulega fregnir af henni um hvernig gengi frá móður hennar, auk þess sem Kata heimsótti deildina iðulega ef hún var á landinu. Því fylgd- umst við vel með Kötu og sam- glöddumst henni með hversu vel var að ganga með fram- haldsnámið og að samræma það fjölskyldumálunum. Við á meinafræðideildinni sáum að styttast tók í lokin á framhaldsnámi Kötu og vorum sannarlega farin að hlakka mik- ið til að fá hana heim aftur og að hún yrði öflugur fastur starfsmaður. Það er þyngra en tárum taki að vita að aldrei verður af því. Ég vil með þessum orðum fyrir hönd okkar allra á meina- fræðideild Landspítalans votta minningu Katrínar Ólafsdóttur virðingu og láta í ljós söknuð okkar. Við vottum Ingu Láru, Ólafi, Kormáki syni Katrínar, og allri fjölskyldu hennar okkar inni- legustu og dýpstu samúð. Með innilegri kveðju frá meinafræðideild Landspítalans. Jón Gunnlaugur Jónasson yfirlæknir. ✝ Jens Sig-urjónsson fæddist í Reykjavík 10. janúar 1964. Hann varð bráð- kvaddur 19. mars 2018. Foreldrar hans eru Sigurjón Árnason, f. 12. jan- úar 1942 í Vopna- firði, látinn 14. apríl 2016 og Edil Jens- dóttir, fædd 5. febr- úar 1945, í Viðareyði, Færeyjum. Systkini Jens eru: a) Adda Guðrún, f. 1962, b) Elísabet Ár- dís, f. 1969, gift Jóni Kristjáni Sigurðssyni c) Hanna, f. 1970, sambýlismaður Karl Ingimars- son d) Elín Sif, f. 1972, gift Elíasi Wium Guðmundssyni. Jens kvæntist Beverley Sig- urjónsson frá St. Johns, Ný- fundnalandi, 8. ágúst 2008. Son- ur hennar úr fyrra sambandi er Chri- stopher Jerrett. Sambýliskona hans er Jennifer Sandra. Börn: Dawson, De- von, Chloe og Jay- den. Fyrrverandi sam- býliskona Jens er Alma Axfjörð, sam- an eignuðust þau Sigurjón Árna, f. 9. febrúar 1993. Sambýliskona Sig- urjóns er Kristín Ragnheiður Óð- insdóttir. Sonur þeirra er Baldur Vopni, f. 11. júní 2017. Jens útskrifaðist frá Stýri- mannaskólanum í Vest- mannaeyjum 1987 og var alla sína starfsævi sjómaður. Útför hans fór fram frá Church of the Ascension í St. Johns 24. mars 2018. Jenni mágur minn er fallinn frá, langt um aldur fram. Síminn hringdi um hánótt og tíðindi berast um að Jenni hefði látist úti á sjó fyrr um kvöldið. Þetta var erfitt að meðtaka, maður á besta aldri, í fullu fjöri og hrifsaður frá okkur á einu augabragði. Jenni hafði komið sér fyrir fjarri heimahögunum, hann fann ástina í Kanada, þar sem hann var ánægð- ur, hamingjusamur og bjartsýnn á framtíðina. Jenni hneigðist til sjó- mennsku snemma og vinna á sjón- um varð hans lífsstarf. Þar naut hann sín fram í fingurgóma, við Ís- landsstrendur framan af og síðar á fjarlægari slóðum. Þótt Jenni hafi verið búsettur í Kanada var hann lengi á fiskiskip- um í Noregi og kom því oft á heim- ili okkar á ferð sinni milli Noregs og Kanada. Þegar Jenni dvaldist hjá okkur tókust með okkur sér- lega góð vinabönd. Það var oft gaman að setjast niður með honum og ræða málin. Af kynnum mínum af Jenna tók ég fljótlega eftir því að í Jenna bjó hafsjór af fróðleik, hann var í raun skarpgreindur á mörgum sviðum og hafði frá mörgu að segja. Áhugasvið hans var breitt og hann hafði skoðanir á flestu og lá ekkert á þeim þegar svo bar undir. Fyrir rúmlega áratug varð Jenni fyrir alvarlegu slysi á sjónum og var um tíma tvísýnt hvort hann gæti gegnt sjómennskunni áfram. Á meðan hann var að ná sér leit- aði hugurinn annað, hann sótti í trúna sér til styrkingar. Um tíma hugleiddi Jenni að fara í guðfræð- ina, af því varð ekki, hann náði það góðum bata af meiðslunum að fyrr en varði var hann kominn til fyrri starfa á sjónum. Þrátt fyrir áfallið stóð Jenni ávallt teinréttur með bjartsýnina að vopni. Hann horfði fram á góða daga með Beverley eiginkonu sinni. Þau voru nýflutt í nýtt hús í St. John‘s og voru að koma sér vel fyrir þegar Jenni féll skyndilega frá. Við ætluðum að heimsækja þau hjónin í sumar, tilhlökkunin var mikil og Jenni hlakkaði mikið til að fá okkur í heimsókn. Ég minnist af hlýjum hug stundanna sem við áttum þegar við grilluðum góðan mat á pallinum heima. Þar naut Jenni sín í hvívetna og sagði frá skemmtilegum uppákomum eins og honum var einum lagið. Vísnagáfur Jenna voru einstakar svo eftir var tekið. Við eigum eftir að varðveita þær því þær munu um ókomna framtíð gleðja okkar hjarta. Jenni, takk fyrir góðar sam- verustundir. Þær voru ljúfar og ógleymanlegar. Ég á alltaf eftir að minnast göngutúranna með þér í Grafarvoginum. Það bíður betri tíma að við hittumst aftur, kæri vinur, og eigum góða tíma saman. Beverley Sigurjónsson, syni hans, móður, systrum og öðrum ástvinum sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Elsku vinur, hvíl í friði. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Jón Kristján Sigurðsson. Jens Sigurjónsson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, VALSTEINS JÓNSSONAR, Þórunnarstræti 117. Alda Þórðardóttir Jón Viðar Valsteinsson Arnar Valsteinsson Kristín Rós Óladóttir Alda Ólína, María, Auður Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELSA BJARNADÓTTIR, búsett að Norðurbakka 3a, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 14. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við þökkum sýndan hlýhug og samúð. Matthías Eyjólfsson Dagmar Huld Matthíasdóttir Friðrik Kristjánsson Matthías Hilmir Matthíasson Bjarni Heiðar Matthíasson María Halldórsdóttir Sylvía Hlín Matthíasdóttir Gísli Rúnar Gíslason Rakel Hrund Matthíasdóttir Sigurður Þór Björgvinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARL ÁSMUNDUR HÓLM ÞORLÁKSSON húsasmíðameistari, lést á Grenilundi, Grenivík, sunnudaginn 20 maí. Útför hans fer fram frá Grenivíkurkirkju laugardaginn 26. maí klukkan 14. Hildigunnur Eyfjörð Jónsdóttir Fanney Sólborg Ásmundsd. Elísa Jóna Ásmundsdóttir Grétar Jón Pálmason Kristinn Hólm Ásmundsson Erna Rún Friðriksdóttir Kristján Þór Ásmundsson Hanna Björg Margrétardóttir Andrés Þór Ásmundsson Guðrún Þórlaug Ásmundsd. Hlynur Aðalsteinsson Jóhanna Guðrún Gunnarsd. Trausti Hólmar Gunnarsson afa- og langafabörn Okkar ástkæri, EINAR S. MÝRDAL JÓNSSON skipasmiður, Akranesi, lést á dvalarheimilinu Höfða Akranesi mánudaginn 14. maí. Starfsfólki Höfða eru færðar alúðarþakkir fyrir einstaka umönnun og umhyggju. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hulda Haraldsdóttir Rósa Mýrdal Guðm. Ottesen Valdimarsson Rikka Mýrdal Kristinn Ellert Guðjónsson Gunnar Mýrdal Ingibjörg Kristjánsdóttir barnabörn og langafabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR J. JÓHANNESSONAR, Hólabraut 25, Skagaströnd. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- heimilisins Sæborgar á Skagaströnd fyrir góða umönnun. Lárus Ægir Guðmundsson Helga J. Guðmundsdóttir Eðvarð Hallgrímsson Guðmundur Guðmundsson Sigurlaug Magnúsdóttir Ingibergur Guðmundsson Signý Ósk Richter Karl Guðmundsson Lára Guðmundsdóttir Gunnar Svanlaugsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær systir okkar, mágkona, frænka og vinur, ANNA MARÍA SIGURJÓNSDÓTTIR ljósmyndari, lést á gjörgæsludeild Landspítalans laugardaginn 12. maí. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 29. maí klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á góðgerðar- og náttúruverndarsamtök. Eiríkur Jónsson Lena Jónsson Engström Guðbjörg Björnsdóttir Rúnar Már Sverrisson Gunnar Eiríksson Berglind E. Jónsdóttir Gunnar Þórisson Björn Þórður Jónsson Birna Björg, Jón Þórir, Úlfar Garpur, Anna Valdís, Rebekka Hrönn og Natalía Rós Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, BIRNA HJALTESTED GEIRSDÓTTIR, Skildinganesi 42, Reykjavík, lést á annan dag hvítasunnu, mánudaginn 21. maí 2018. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 31. maí klukkan 15. Garðar Halldórsson Margrét Birna Garðarsdóttir Helga María Garðarsdóttir Ingvar Vilhjálmsson Þóra Birna Ingvarsdóttir Anna Fríða Ingvarsdóttir Vilhjálmur Ingvarsson Garðar Árni Garðarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.