Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 kominn í betra jafnvægi. Þ.e.a.s. kauphlutinn af honum hér á höfuð- borgarsvæðinu, þótt áfram séu mikl- ar verðhækkanir í sveitarfélögunum í kringum höfuðborgarsvæðið. En húsnæðismálin verða enn þá mjög mikið aðalmál. Við bjuggumst við að markaðurinn kæmi inn með hag- kvæmara húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur. Það hefur ekki gengið eftir.“ – Hvers vegna? Nú hefur þetta gerst á þinni vakt? „Ég held að markaðurinn leysi minna í húsnæðismálum heldur en oft er talað um. Þess vegna höfum við sett fram [áform um] að borgin stígi inn í þetta [ástand] og leggi lóðir með sérstökum kvöðum undir uppbyggingu íbúða fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur.“ Bjuggust við meira framboði – Hvers vegna var þetta ekki gert fyrir mörgum árum þegar Airbnb- íbúðum var að fjölga? „Við settum leigu- og búsetu- réttaríbúðirnar í forgang en bjugg- umst við því að markaðurinn – vegna þess að þannig var talað – myndi koma inn með meira af litlum og meðalstórum íbúðum, ekki síst fyrir ungt fólk. Við erum ekki ánægð með þróunina á því sviði, þótt við séum stolt af uppbyggingu leigu- og búseturéttaríbúða. Þannig að núna þurfum við að … leggja fram lóðir í Skerjafirði, Gufunesi, Bryggju- hverfi, á Veðurstofuhæð og Stýri- mannaskólalóð til að þróa þennan hluta húsnæðismarkaðarins.“ – Hefur markaðurinn þá brugðist? „Já. Markaðurinn hefur bæði ver- ið býsna seinn í að minnka íbúðirnar miðað við það sem við höfum, byggt á greiningum okkar, bent á að væri þörfin. Þess vegna þurftum við að stíga inn varðandi leigu- og búsetu- réttaríbúðirnar og þess vegna telj- um við að núna sé rétt að stíga inn varðandi hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur,“ seg- ir Dagur. Nær engar íbúðir byggðar Eyþór biður um orðið: „Dagur er búinn að vera ráðandi í átta ár. Á þessum tíma lofar hann 3.000 leigu- íbúðum fyrir síðustu kosningar og það var enginn sem túlkaði það þannig að það ætti að gerast á þar- næsta kjörtímabili. Bæði hafa nær engar íbúðir verið byggðar á þessu sviði og svo er það hitt að lóðum hef- ur jafnvel verið skilað og þær óbyggðar vegna þess að það eru kvaðir á lóðunum, eins og Dagur er sjálfur að nefna. Bjarg var að skila lóð við Nauthólsvík, nálægt Háskól- anum í Reykjavík, vegna þess að það voru kvaðir þar á. Síðan er það hitt að Reykjavík er að leggja bygg- ingarréttargjald á þessi félög. Það gerir það mjög erfitt fyrir þau að framkvæma. Niðurstaðan er einföld. Þetta hefur ekki gengið upp.“ – Dagur, þinn meirihluti hefur lagt mikla áherslu á þéttingu byggðar, sem er hluti af því að endurhanna Reykjavík. Framboð nýrra íbúða á þéttingarreitum er töluvert minna en eftirspurn. Hvers vegna ættu borgarbúar að treysta þér fyrir húsnæðismálum? „Þétting byggðar er rétta stefnan,“ segir Dagur. „Það skerst í odda í húsnæðismálunum [milli meirihlutans og minnihlutans]. Því þegar einkaaðilar komu inn á leigu- markaðinn, eins og Gamma, Heima- vellir og aðrir, sagði Sjálfstæðis- flokkurinn í borgarstjórn að nú gæti borgin farið að halda að sér höndum. Markaðurinn myndi leysa þetta. Við sögðum nei,“ segir Dagur. „Þetta er misskilningur,“ segir Eyþór en Dagur heldur áfram. „Við teljum að borgin þurfi að vinna með félögum sem eru ekki að byggja í hagnaðarskyni. Þess vegna erum við að vinna með Bjargi, sem er bygg- ingarfélag verkalýðshreyfingar- innar, stúdentum, félögum eldri borgara, Búseta og auðvitað Fé- lagsbústöðum, sem eru fyrirtæki borgarinnar, vegna þess að hús- næðismarkaðurinn er svo fjöl- breyttur. Það er ekki bara eitthvað eitt sem er fyrir alla. Allir þurfa samt eitthvað við hæfi og það eru einfaldlega stórir hópar sem klemm- ast á húsnæðismarkaðnum. Þeir geta illa keypt og eiga erfitt með að ráða við markaðsleigu og þess vegna höfum við litið á það sem okkar stóra hlutverk í húsnæðismálunum að vinna með þessum óhagn- aðardrifnu félögum í að koma upp leiguhúsnæði og húsnæði á viðráð- anlegu verði fyrir venjulegt fólk,“ segir Dagur. „Hvar eru íbúðirnar?“ spyr Eyþór og snýr sér að borgarstjóra. „Þetta er jafnaðarstefnan í hús- næðismálum,“ svarar Dagur. „Ef þetta er jafnaðarstefnan í reynd þá er hún náttúrulega ekki góð fyrir láglaunafólk,“ segir Eyþór. „Því leigan hefur hækkað um 40- 50%. Ég spyr: Hvar eru þessar íbúð- ir og hvert er hlutverk borgarinnar? Þegar Dagur segir að borgin hafi ekki getað beitt sér af því að sjálf- stæðismenn hafi sagt að borgin ætti ekki að gera neitt þá er það alrangt. Því borgin á sem höfuðborg og lang- fjölmennasta sveitarfélagið að út- vega lóðir á hagstæðum stöðum. Það hefur ekki verið gert. Það hefur mest verið byggt upp á þéttingar- svæðum á lóðum sem bankarnir eiga. Það hefur leitt af sér að íbúðir á þéttingarreitum eru að seljast á upp undir milljón á fermetra. Og nýtt Íslandsmet var sett á íbúð þeg- ar hún var sett á sölu á 400 milljónir. Og ef þetta er jafnaðarstefnan þá bið ég Guð að hjálpa jafnaðar- mönnum.“ Jafn margar og á Nesinu Dagur tekur til máls. „Við settum met í lóðaúthlutunum í fyrra.“ „Hvar eru íbúðirnar?“ spyr Eyþór. Dagur fær aftur orðið: „Og úthlutuðum lóðum fyrir 1.711 íbúðir. Svo fólk átti sig á því hvað þetta er mikið er þetta jafn mikið og allar íbúðirnar á Seltjarnarnesi. Hvað fengu félög sem eru rekin án hagnaðarsjónarmiða mikið af þess- um lóðaúthlutunum? 1.440 [íbúðir]. Eitt þúsund fjögur hundruð og fjörutíu. Þetta sýnir þessa forgangs- röðun. Við erum að koma þarna inn með borgarland í samvinnu við félög án hagnaðarsjónarmiða til þess að gera húsnæðismarkaðinn heilbrigð- ari. Og þessar lóðir eru úti um alla borg á þéttingarreitum, úti um alla borg, ekki á einhverjum einum stað.“ „Má ég tala?“ spyr Eyþór. „Takk fyrir. Þessar lóðaúthlutanir fela í sér að borgarland er tekið út úr kerfinu. Ef það er ekki byggt á þessu landi er það í raun tekið út úr kerfinu. Vandamálið er að það hefur vantað uppbyggingu á þessum reitum. Og hluti af vandanum er sá að borgin er að rukka há byggingarréttargjöld og ætlar sér líka, og hefur hafið, að innheimta innviðagjald. Þessi gjöld gera öllum erfitt fyrir, ekki síst þeim sem eru að reyna að búa til leigu- félög,“ segir Eyþór. Kallar eftir samstöðu – Lokaspurning. Sjáið þið ein- hvern samstarfsflöt í borgarstjórn? Eru málefni þar sem þið teljið rétt að setja ágreining til hliðar? Eyþór: „Ég kalla eftir samstöðu um úrbætur í þeim málum sem við leggjum áherslu á; húsnæðismálum, samgöngumálum og umhverfis- málum. Þeir sem eru tilbúnir að leggjast á árarnar með okkur og við- urkenna þann vanda sem liggur fyrir eru aðilar sem við viljum vinna með.“ Dagur: „Ég held að þessi kosn- ingabarátta hafi kristallað að það eru tveir býsna skýrir valkostir í kosningunum. Þ.e.a.s. sá að þróa borgina áfram í átt að grænni, þéttri, áhugaverðri, fjölbreyttri, skemmtilegri borg. Við leggjum áherslu á að þróa borg fyrir alla. Með tækifærum fyrir alla. Og ég vonast til þess að núverandi meiri- hluti haldi áfram og kannski ein- hverjir flokkar bætist þar við sem hafa svipaða framtíðarsýn. Því að ég held að það skipti mjög miklu máli að Reykjavík haldi áfram að þróast á þessari braut.“ – Er þá ekki samstarfsflötur? „Mér finnst þetta hafa kristallast sem tveir mjög ólíkir kostir. Þannig að kjósendur hafi skýra valkosti í kjörklefanum á laugardaginn.“ Reiðubúinn til samstarfs Eyþór kveðst opinn fyrir samstarfi við flokka sem vilja úrbætur á nokkrum lykilsviðum. TIL LEIGU Skipholt 31 – 105 Reykjavík Skrifstofuhúsnæði 2. og 3. hæð hússins Stærð samtals 1.200 fm. Virðisaukaskattslaust. Ólafur Jóhannsson Rekstrarfræðingur Löggiltur leigumiðlari Löggiltur fasteignasali 534 1023 / 824 6703 olafur@jofur.is Allar nánari upplýsingar veitir: Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í síma 824-6703. Laust strax. Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is Til leigu verslunar- og skrifstofuhúsnæði að Grandagarði 13, 101 Reykjavík, alls um 196,8 fm. Laust í júní 2018. Í boði er langtíma leigusamningur. Húsnæðið býður upp á ýmsa möguleika fyrir verslunar eða veitingastarfsemi. Mikil uppbygging er fyrirhuguð á þessu sv ði á næstu árum. Á jarðhæð er verslunarrými með góðum verslunargluggum út að götu. Bakatil er aðkoma og bílastæði. Gengið er upp á 2. hæð um sameiginlegan sti agang þar sem eru sameiginlegar snyrtingar. Á hæðinni r eldhús, tvær skrifstofur og opið vinnurými. Neðri hæð er 80,3 fm., efri hæð 93,0 fm. og hlutdeild í sameign 23,5 fm. 534 1020 Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is Ólafur S: 824 6703 Magnús S: 861 0511 Sigurður J. S: 534 1026 Helgi Már S: 897 7086 Bergsveinn S: 863 5868 TIL LEIGU Grandagarður 13 – 101 Rvk Gerð: Verslunar- og skrifstofuhúsnæði Stærð: 196,8 m2 Allar nánari upplýsingar veitir: Bergsveinn Ólafsson Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari og rekstrarfræðingur 863 5868 | 534 1028 bergsveinn@jofur.is - Eyþór, Sjálfstæðisflokkurinn vill efla strætó, hafa tíðari ferðir, stytta ferðatíma og bæta leiðakerfið. Slíkar að- gerðir til að auka hlut almenningssamgangna hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Hvernig ætlarðu að tryggja að þær beri árangur og hvað mun þetta kosta borgarbúa? „Ég tel að það sem hafi ekki gengið upp hjá strætó séu gæðin. Hann hefur stundum verið of seinn og of fljótur að fara. Það tekur langan tíma að komast út úr hverfunum. Það er sameiginlegt hagsmunamál fyrir alla bíla, hvort sem það er strætó eða fólksbílar, að gatna- kerfið gangi upp. Hlutir eins og Sundabraut, eða úrbæt- ur á ljósastýrðum gatnamótum, eru hagsmunamál fyrir strætó ekkert síður en aðra. Ef gæðin eru ekki í lagi dug- ar ekki að lækka verðið á [farmiðum í] strætó. Ef strætó gengur ekki upp sem leiðakerfi þá notar fólk hann ekki. Það kostar hundruð milljóna fyrir öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu að bæta kerfið. Ég vil skoða hvern- ig framlagið skiptist milli sveitarfélaganna. Að það halli ekki á Reykjavík. Hugmyndin um borgarlínu er óljós og breytileg og al- gjörlega ófjármögnuð. Fyrir ári var enn talað um lestar- kerfi. Nú er talað um stóra vagna. Þetta er óþroskuð til- laga og það er enginn nema Samfylkingin í Reykjavík sem talar fyrir þessu af einhverjum þunga.“ - Dagur, sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu lögðu strætó til 3,2 milljarða í fyrra. Hvers vegna er ekki fram- lagið aukið verulega þannig að ferðirnar verði tíðari og fleiri og árangurinn af því metinn áður en það er stigið þetta stóra skref að fara í borgarlínuna? „Við höfum bæði verið að bæta í og ríkið svolítið líka og við erum búin að meta árangurinn. Það er sameig- inleg niðurstaða allra sveitarfélaganna að það þurfi að stórefla almenningssamgöngur með borgarlínu sem verði öruggur, tíður, áreiðanlegur valkostur í sérrými. Þess vegna leggjum við áherslu á borgarlínu.“ Borgarlínan óljós og ófjármögnuð tillaga EYÞÓR VILL SKOÐA HVORT ÞAÐ HALLI Á BORGINA Í REKSTRI STRÆTÓ Morgunblaðið/Valli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.