Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 Ó, hvað ég skil ykkur vel, það er eitt af því erfiðasta sem foreldrar lenda í að horfa á barnið sitt upp- lifa sorg og erfiðleika. Stundum vildi ég að það væri til lítil „van- líðunar-ryksuga“ sem ég gæti rennt yfir kollinn á börnum og svo djús til að gefa þeim, sem væri búinn til úr seiglu og hamingju, sykurlaus auðvitað og lífrænn. Þegar börnin okkar eru að tak- ast á við eitthvað nýtt, hvort sem það er sorglegt eða dásamlega yndislegt, ráðlegg ég foreldrum að finna sér rólega stund til þess að ígrunda hvað líklega hentaði þeim og þeirra börnum best að gera. Í dag er svo auðvelt að finna fullt af ráðum á netinu um hvað sé rétt og nauðsynlegt í öllu uppeldi. Ef þið náið að setjast niður saman og bara anda og hlusta á eigin til- finningar, eruð þið strax á réttri leið. Allar þessar upplýsingar sem er svo auðvelt að sækja draga stundum úr öryggi okkar sem for- eldra og þagga niður í þessari mikilvægu eðlishvöt sem við fæð- umst með. Hlustið á eigin sann- færingu, þið þekkið börnin ykkar best. Segjum börnunum satt Að því sögðu, vil ég samt segja að það er auðvitað hægt að gera mistök í þessum aðstæðum. En það er yfirleitt þegar við segjum þeim ekki satt og reiknum ekki með skynsemi og visku barnanna okkar. Erfiðasta málið mitt sem tengist dauðsfalli ættingja var þegar foreldrar voru búnir að fela veikindi elskaða afans, hlífa börn- unum við þeim athöfnum sem fylgdu dauða hans og svo loks þegar þau treystu sér til þess að segja hvað hefði gerst, gátu þau ekki notað þessi þungu erfiðu orð eins og „dáinn“, sögðu að afi hefði sofnað og ekki vaknað aftur. Væri bara sofandi. Jú, einmitt! Þau komu vegna svefnvanda barnanna. Ég þarf ekkert að segja ykkur að dauðinn sé hluti af lífinu, þið vitið það allt saman. Verkefnið ykkar núna er að kenna stúlkunni ykkar að takast á við sorgina og missinn. Eins mikið og við elskum fólkið okkar er brýnt að kenna börnum að lífið heldur áfram. Haldið rútínu eins og unnt er með áherslur á grunnþarfir eins og að borða, sofa, mæta í tómstundir og skóla. Á þessum tímum er skólinn oft besti griðastaður barnsins, þar breytist lítið og allir fylgja sömu rútínu. Auðvitað má upplýsa kenn- arana svo þeir geti veitt henni hlýju og stuðning ef á þarf að halda. En annars finna börn mest öryggi í daglegu rútínunni sinni. Amma lifir áfram Erfiða atburði er oft auðveldara að ráða við þegar við getum gefið þeim tilgang. Amma lifir áfram í hjartanu okkar, hvað er það sem við viljum muna og hvað myndum við vilja segja næstu kynslóð um ömmu? Að þekkja fólkið sitt og geta tengt við styrkleikana í ætt- inni er bæði nærandi og heilandi fyrir okkur öll. Leyfið henni að eiga hlutverk í þessu ferli, það er gott ef hún nær að kveðja ömmu sína og líka gott ef hún fær aðstoð við að skrifa ömmu bréf og/eða teikna mynd sem svo má fara með í kistuna. Sorgin og þær sterku tilfinn- ingar sem henni fylgja geta komið í bylgjum, hún þarf að vita að hún má leita til ykkar og þið getið grátið saman og svo er líka allt í lagi að fara út að leika og hlæja með vinum. Það er oft hjálplegt að geta í ró- legheitum sett sig í spor allra við svona erfiðar og krefjandi að- stæður. Auðvitað vill amma ekkert annað en að yndislega fólkið henn- ar minnist þess góða og þótt hún skilji tárin þá vill amma að við gerum það sem hún kenndi okkur. Kláraðu skólann, vertu góður vin- ur, fylgdu hjartanu þínu, burstaðu skóna, ferðastu um heiminn og góða litaðu hárið á þér bleikt ef þig langar til. Gangi ykkur vel, kæru foreldrar. Mikill missir framundan Rúmlega fertug kona, þriggja barna móðir í Reykjavík, á móður sem liggur á líknardeild Landspítalans með krabbamein á lokastigi og ljóst að hún á ekki langt eftir. Fjölskyldan er búin að taka út mikla sorg og reynir að undirbúa sig eftir bestu getu undir komandi missi. Þetta ferli er öllum aðstandendum erfitt en þó sýnu erfiðast fyrir yngstu dóttur konunnar sem er níu ára gömul og ömmu sinni mjög náin. Eldri börnin eru komin á unglingsaldur, þau eru döpur en takast á við sorgina og erfiðleikana af skynsemi og halda áfram í sínu en yngsta dóttirin sýnir merki um mikinn kvíða og andlega vanlíðan. Börn og sorg Sorgin er aðstandendum þungbært en erfiðast fyrir yngstu dótturina sem er náin ömmu sinni. Spurningum sem berast Fjölskyld- unni á mbl.is svarar SÓL sálfræði- og læknisþjónusta en þar starfar hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita börnum, ungmennum og fjöl- skyldum þeirra góða þjónustu. Nánari upplýsingar á www.sol.is Spurt og svarað Ég leiði ekki hugann dagsdaglega að þeim uppeldisaðferðum sem ég beiti. Þetta er bara eitthvað sem maður gerir. En það er þó alltaf hollt að staldra við og hugsa út í samskipti sín við börnin. Lengi býr að fyrstu gerð og það er mikilvægt að vanda sig að koma börnum til manns, sýna þeim ást en líka hafa reglu á hlutunum og veita þeim öryggi. Það gerir maður með því að hlusta á börn, treysta þeim og tala fallega við þau. Þá farn- ast öllum best. 5 UPPELDISRÁÐ Lífar Magneudóttur Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is FYRIR HUNDA 80% kjöt 20% jurtir grænmeti ávextir O% kornmet – fyrir dýrin þín 1 Hlusta á börnin, taka mark á þeimog veita þeim athygli. 2Tala við börnin eins og skynsamarmanneskjur, ekki hóta þeim eða skipa þeim einhliða fyrir frekar en öðrum manneskjum. 3 Vera góð fyrirmynd, efna loforðog segja börnunum satt. Þannig læra þau heiðarleika og sannsögli. 4 Nota félagslega hvatningu semumbun frekar en dót og nammi og hafa hrósið nákvæmt. 5 Treysta dómgreind barna ogvirða sjálfstæði þeirra (t.d. þegar þau ákveða að fara í einhver föt sem þér finnast kannski aðeins of flipp- uð!). Uppeldi Líf Magneudóttir borgarfulltrúi á fjögur börn á aldrinum 5-17 ára með sambýlismaka sínum Snorra Stefánssyni lögmanni. Hér deilir hún fimm uppeldisráðum með lesendum Fjölskyldunnar á mbl.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.