Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
Ó, hvað ég skil ykkur vel, það er
eitt af því erfiðasta sem foreldrar
lenda í að horfa á barnið sitt upp-
lifa sorg og erfiðleika. Stundum
vildi ég að það væri til lítil „van-
líðunar-ryksuga“ sem ég gæti
rennt yfir kollinn á börnum og svo
djús til að gefa þeim, sem væri
búinn til úr seiglu og hamingju,
sykurlaus auðvitað og lífrænn.
Þegar börnin okkar eru að tak-
ast á við eitthvað nýtt, hvort sem
það er sorglegt eða dásamlega
yndislegt, ráðlegg ég foreldrum að
finna sér rólega stund til þess að
ígrunda hvað líklega hentaði þeim
og þeirra börnum best að gera.
Í dag er svo auðvelt að finna
fullt af ráðum á netinu um hvað sé
rétt og nauðsynlegt í öllu uppeldi.
Ef þið náið að setjast niður saman
og bara anda og hlusta á eigin til-
finningar, eruð þið strax á réttri
leið. Allar þessar upplýsingar sem
er svo auðvelt að sækja draga
stundum úr öryggi okkar sem for-
eldra og þagga niður í þessari
mikilvægu eðlishvöt sem við fæð-
umst með. Hlustið á eigin sann-
færingu, þið þekkið börnin ykkar
best.
Segjum börnunum satt
Að því sögðu, vil ég samt segja
að það er auðvitað hægt að gera
mistök í þessum aðstæðum. En
það er yfirleitt þegar við segjum
þeim ekki satt og reiknum ekki
með skynsemi og visku barnanna
okkar. Erfiðasta málið mitt sem
tengist dauðsfalli ættingja var
þegar foreldrar voru búnir að fela
veikindi elskaða afans, hlífa börn-
unum við þeim athöfnum sem
fylgdu dauða hans og svo loks
þegar þau treystu sér til þess að
segja hvað hefði gerst, gátu þau
ekki notað þessi þungu erfiðu orð
eins og „dáinn“, sögðu að afi hefði
sofnað og ekki vaknað aftur. Væri
bara sofandi.
Jú, einmitt! Þau komu vegna
svefnvanda barnanna.
Ég þarf ekkert að segja ykkur
að dauðinn sé hluti af lífinu, þið
vitið það allt saman. Verkefnið
ykkar núna er að kenna stúlkunni
ykkar að takast á við sorgina og
missinn. Eins mikið og við elskum
fólkið okkar er brýnt að kenna
börnum að lífið heldur áfram.
Haldið rútínu eins og unnt er með
áherslur á grunnþarfir eins og að
borða, sofa, mæta í tómstundir og
skóla. Á þessum tímum er skólinn
oft besti griðastaður barnsins, þar
breytist lítið og allir fylgja sömu
rútínu. Auðvitað má upplýsa kenn-
arana svo þeir geti veitt henni
hlýju og stuðning ef á þarf að
halda. En annars finna börn mest
öryggi í daglegu rútínunni sinni.
Amma lifir áfram
Erfiða atburði er oft auðveldara
að ráða við þegar við getum gefið
þeim tilgang. Amma lifir áfram í
hjartanu okkar, hvað er það sem
við viljum muna og hvað myndum
við vilja segja næstu kynslóð um
ömmu? Að þekkja fólkið sitt og
geta tengt við styrkleikana í ætt-
inni er bæði nærandi og heilandi
fyrir okkur öll. Leyfið henni að
eiga hlutverk í þessu ferli, það er
gott ef hún nær að kveðja ömmu
sína og líka gott ef hún fær aðstoð
við að skrifa ömmu bréf og/eða
teikna mynd sem svo má fara með
í kistuna.
Sorgin og þær sterku tilfinn-
ingar sem henni fylgja geta komið
í bylgjum, hún þarf að vita að hún
má leita til ykkar og þið getið
grátið saman og svo er líka allt í
lagi að fara út að leika og hlæja
með vinum.
Það er oft hjálplegt að geta í ró-
legheitum sett sig í spor allra við
svona erfiðar og krefjandi að-
stæður. Auðvitað vill amma ekkert
annað en að yndislega fólkið henn-
ar minnist þess góða og þótt hún
skilji tárin þá vill amma að við
gerum það sem hún kenndi okkur.
Kláraðu skólann, vertu góður vin-
ur, fylgdu hjartanu þínu, burstaðu
skóna, ferðastu um heiminn og
góða litaðu hárið á þér bleikt ef
þig langar til. Gangi ykkur vel,
kæru foreldrar.
Mikill missir framundan
Rúmlega fertug kona, þriggja barna móðir í Reykjavík, á móður sem liggur á líknardeild Landspítalans með krabbamein á lokastigi
og ljóst að hún á ekki langt eftir. Fjölskyldan er búin að taka út mikla sorg og reynir að undirbúa sig eftir bestu getu undir komandi
missi. Þetta ferli er öllum aðstandendum erfitt en þó sýnu erfiðast fyrir yngstu dóttur konunnar sem er níu ára gömul og ömmu
sinni mjög náin. Eldri börnin eru komin á unglingsaldur, þau eru döpur en takast á við sorgina og erfiðleikana af skynsemi og halda
áfram í sínu en yngsta dóttirin sýnir merki um mikinn kvíða og andlega vanlíðan.
Börn og sorg Sorgin er aðstandendum þungbært en erfiðast fyrir yngstu dótturina sem er náin ömmu sinni.
Spurningum sem
berast Fjölskyld-
unni á mbl.is svarar
SÓL sálfræði- og læknisþjónusta
en þar starfar hópur fagfólks sem
leggur metnað sinn í að veita
börnum, ungmennum og fjöl-
skyldum þeirra góða þjónustu.
Nánari upplýsingar á www.sol.is
Spurt og svarað
Ég leiði ekki hugann
dagsdaglega að þeim
uppeldisaðferðum sem
ég beiti. Þetta er bara
eitthvað sem maður gerir.
En það er þó alltaf hollt að staldra
við og hugsa út í samskipti sín við
börnin. Lengi býr að fyrstu gerð og
það er mikilvægt að vanda sig að
koma börnum til manns, sýna þeim
ást en líka hafa reglu á hlutunum og
veita þeim öryggi. Það gerir maður
með því að hlusta á börn, treysta
þeim og tala fallega við þau. Þá farn-
ast öllum best.
5
UPPELDISRÁÐ
Lífar
Magneudóttur
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
FYRIR
HUNDA
80% kjöt
20% jurtir
grænmeti
ávextir
O% kornmet
– fyrir dýrin þín
1 Hlusta á börnin, taka mark á þeimog veita þeim athygli.
2Tala við börnin eins og skynsamarmanneskjur, ekki hóta þeim eða
skipa þeim einhliða fyrir frekar en
öðrum manneskjum.
3 Vera góð fyrirmynd, efna loforðog segja börnunum satt. Þannig
læra þau heiðarleika og sannsögli.
4 Nota félagslega hvatningu semumbun frekar en dót og nammi
og hafa hrósið nákvæmt.
5 Treysta dómgreind barna ogvirða sjálfstæði þeirra (t.d. þegar
þau ákveða að fara í einhver föt sem
þér finnast kannski aðeins of flipp-
uð!).
Uppeldi Líf Magneudóttir borgarfulltrúi á fjögur börn á aldrinum 5-17 ára
með sambýlismaka sínum Snorra Stefánssyni lögmanni. Hér deilir hún
fimm uppeldisráðum með lesendum Fjölskyldunnar á mbl.is.