Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 88
FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 144. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Sigurði Ragnari sagt upp störfum
2. Hrafn krefst leiðréttingar hjá Þjóðskrá
3. Hugsa ótrúlega vel um líkamann
4. Þetta er klárlega margfalt brot
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Salsakommúnan fagnar fyrstu
plötu sinni, Rok í Reykjavík, með tón-
leikum í Iðnó í kvöld kl. 20. Áður en
tónleikarnir hefjast er boðið upp á
salsadanskennslu. Salsakommúnan
er hljómsveit sem leikur kröftuga,
dansvæna tónlist undir áhrifum frá
tónlistarhefðum Suður-Ameríku, en
allir textar eru á íslensku.
Salsakommúnan með
dansleik til að fagna
Skálar nefnist sýning sem Pétur
Gautur opnar í Galleríi Göngum í
Háteigskirkju í dag kl.
17. Sýningarrýmið
er í göngunum
milli Háteigs-
kirkju og safn-
aðarheimilis
kirkjunnar, en
gengið er inn frá
safnaðarheimilinu.
Pétur Gautur sýnir
í Galleríi Göngum
Tónlistardegi
Halldórs Hansen
er fagnað í Saln-
um í dag kl. 17.
Þar segja Garðar
Cortes og Ólöf
Kolbrún Harðar-
dóttir frá kynnum
sínum af Halldóri,
sem var mörgu tónlistarfólki hér-
lendis mikill liðsauki og hugljómun
vegna tónlistarþekkingar sinnar. Við
sama tækifæri hlýtur ungt tónlistar-
fólk verðlaun úr styrktarsjóði Hall-
dórs, en verðlaunin eru veitt árlega til
ungra tónlistarmanna sem hafa náð
framúrskarandi árangri á sínu sviði.
Tónlistardegi Hall-
dórs fagnað í Salnum
Á föstudag Suðvestan 5-13 og bjartviðri NA-lands, annars skýjað
með köflum og smáskúrir. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast NA-til. Vaxandi
suðaustanátt með rigningu á S- og V-landi um kvöldið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða rigning eða skúrir og snýst í vestan 8-
15 m/s, fyrst S-til. Léttir til A-lands annað kvöld. Hiti yfirleitt 5 til
10 stig.
VEÐUR
„Ég er ekki fædd sem ein-
hver frábær fótboltakona,
ég hef bara unnið gríðar-
lega mikið að því að komast
þangað sem ég er í dag. Ég
hef gert fullt af æfingum
sem enginn veit af og eng-
inn sér mig gera, og allar
þessar aukaæfingar hafa
klárlega komið mér hing-
að,“ segir Sara Björk Gunn-
arsdóttir, sem tekur þátt í
úrslitaleik Meistaradeildar
Evrópu í Kíev í dag. »2-3
Aukaæfingarnar
komu mér hingað
Þegar Íslandsmótinu í handknattleik
er nú lokið kemst hreyfing á leik-
menn liðanna. Einhverjir hafa áhuga
á annarri vist, annaðhvort færa sig á
milli liða hér heima eða hleypa heim-
draganum og spreyta sig með fé-
lagsliðum í Evrópu. Alltaf flytja ein-
hverjir heim frá Evrópu.
Morgunblaðið fer ítarlega yfir þær
breytingar sem ljóst er að verða á lið-
unum og annað sem kann að vera í
bígerð. »4
Hreyfing á leikmönnum
í handboltanum
Íslandsmeistarar Þórs/KA eru áfram
með fullt hús stiga eftir fjóra leiki í
Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu eft-
ir sigur á KR-ingum, 2:0, á Akureyri í
gærkvöld. Akureyrarliðið þurfti að
hafa mikið fyrir sigrinum en náði að
skora tvívegis í seinni hálfleiknum.
Fyrra markið var sjálfsmark en það
síðara gerði Stephany Mayor. Sjá ein-
kunnagjöf og umfjöllun. » 2-3
Meistararnir áfram
með fullt hús stiga
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Við erum vinir með leiklistarbakteríu
sem skildum ekki hvers vegna leik-
húsin fara alltaf í sumarfrí,“ segir
Anna Bergljót Thorarensen, einn af
stofnendum leikhópsins Lottu.
Að sögn hennar hafa komið á bilinu
20-25 þúsund gestir á sýningar hóps-
ins síðastliðin fimm ár.
Í gær hóf leikhópurinn tólfta leik-
sumar sitt með frumsýningu á Gosa í
Elliðaárdalnum. Verkið byggist á sög-
unni um spýtustrákinn Gosa, ævintýr-
inu um Garðabrúðu og sögunni um
Óskirnar þrjár. Sagan gerist inni í
Ævintýraskóginum, þar sem ólíkleg-
ustu hlutir geta átt sér stað.
„Við viljum sýna verk fyrir fjöl-
skyldur, þar sem allir skemmta sér
saman. Þannig hafa sprottið fram ný
ævintýri sem við höfum búið til upp úr
gömlum,“ segir Anna Bergljót, en leik-
hópurinn hefur áður sýnt verk eins og
Dýrin í Hálsaskógi, Ljóta andarung-
ann, Litlu gulu hænuna, Mjallhvíti,
Gilitrutt, Rauðhettu, og Galdrakarlinn
í Oz samkvæmt heimasíðu hópsins.
Anna Bergljót segist sjá sömu fjöl-
skyldur koma ár eftir ár að sjá sýn-
ingar hópsins og skemmtilegt sé að
fylgjast með börnunum stækka. Börn
séu dásamlegir gestir leiksýninga, sem
bregðist við gleði og sorg af einlægni.
Óskirnar þrjár rifjaðar upp
„Sagan um Óskirnar þrjár er ævin-
týri sem er mörgum gleymt og því
gaman að rifja það upp í leikritinu.
Ævintýraskógurinn býður svo upp á
margt óvænt,“ segir Anna Bergljót.
Sýningar hópsins eru utandyra og
segir Anna Bergljót að þau láti ís-
lenskt veðurfar ekkert á sig fá.
„Ef það er rok þá gæti það orðið til
að stöðva sýningu. Það hefur aðeins
gerst einu sinni í Elliðaárdalnum frá
byrjun, en þá var stormviðvörun og
fólk beðið að vera ekki á ferli,“ segir
Anna Bergljót hress í bragði en bætir
við að Elliðaárdalurinn, þar sem þau
sýna venjulega, sé veðursæll, en það
varð raunin á frumsýningu sumarsins í
gær, þrátt fyrir rigningartíð undan-
farna daga.
Leikhópurinn leggur hvert sumar
land undir fót og heldur vestur á land
eftir frumsýningu.
„Við sýnum í Elliðaárdal alla mið-
vikudaga í sumar, en förum líka í
nokkra hringi um landið og sýnum á
um það bil 50 stöðum. Alltaf á Akur-
eyri 17. júní, á Neistaflugi í Neskaup-
stað og um verslunarmannahelgina á
Flúðum. Við verðum í Þorlákshöfn í
fyrsta skipti í sumar, en verðum því
miður að sleppa Seyðisfirði og Kirkju-
bæjarklaustri í ár, en vonumst til að
fólk geri sér þá bara ferð í næsta
þorp.“
Vilja ekki vera í sumarfríi
Leikhópurinn
Lotta sýnir Gosa
um allt land
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frumsýning sumarsins Leikhópurinn Lotta hóf tólfta leiksumar sitt með sýningu á Gosa í Elliðaárdalnum í gær.
Leikurinn gerist í ævintýraskóginum þar sem allt getur gerst. Veðrið var með skásta móti fyrir gesti og leikara.
Höfundur verksins Gosa er Anna
Bergljót Thorarensen en þetta er
áttunda verkið sem hún skrifar
fyrir Leikhópinn Lottu. Hún samdi
lagatexta ásamt þeim Baldri Ragn-
arssyni og Stefáni Benedikt Vil-
helmssyni.
Í Gosa eru tíu ný lög sem eru
samin af Baldri, Birni Thorarensen
og Rósu Ásgeirsdóttur. Höfundur
leikstýrir sýningunni ásamt dans-
höfundi, Berglindi Rafnsdóttur.
Sex leikarar og tónlistarmenn
halda sýningunni uppi: Bergdís
Júlía Jóhannsdóttir, Björn Thor-
arensen, Huld Óskarsdóttir, Sig-
steinn Sigurbergsson, Stefán
Benedikt Vilhelmsson og Thelma
Hrönn Sigurdórsdóttir skipta á
milli sín öllum hlutverkum sýning-
arinnar. Sýningar leikhópsins eru
alltaf utandyra og eru fyrir alla
aldurshópa. Nánari upplýsingar á
www.leikhopurinnlotta.is.
Tíu ný lög í sýningunni í sumar
SÝNINGAR LEIKHÓPSINS ERU HALDNAR UTANDYRA