Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 82

Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 82
82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt Þessir eru æði Pavement espadrillurSt. 36-41 - Verð 11.995 kr. Stundum koma út plötur semmaður hlustar á og finnsteins og þær hafi alltaf ver-ið til, svo sterka nærveru hafa lögin á þeim. Stundum er það bara hljómurinn sem er einhvern veginn svo „réttur“, ef svo mætti að orði komast, eða lagasmíðarnar einhvern veginn svo mátulegar. Það er einmitt næstum því erfitt að koma orðum að þessu, en fyrsta plata Gróu er líklega svona verk. Í hljómsveitinni Gróu eru þrjár stúlkur: Fríða Björg Pétursdóttir leikur á bassa, Hrafnhildur Einars- dóttir leikur á trommur og Karó- lína Einarsdóttir leikur á gítar, píanó og syngur. Þær byrjuðu að leika saman á námskeiði hjá Stelp- um rokka, og tóku því næst þátt í Músíktilraunum þar sem þær komu ekki, sáu og sigruðu, en létu það bara alls ekkert á sig fá, og héldu áfram að semja og æfa upp frum- samin lög. Þær eru nokkuð slyngar á hljóð- færin sín, en ef þetta væri hljóð- færaleikarakeppni myndu þær kannski ekki lenda í fyrsta sæti, þótt þær séu frambærilegar og vel það. Það er líka eitthvað pínulítið leiðinlegt við það að vera svo rosa- lega góður á hljóðfærið sitt að slík keppni myndi vinnast. Þær hafa þó í ríkulegum mæli það sem sumir færustu hljóðfæraleikarar í heim- inum keppa að alla ævi, en ná aldrei: Þær hafa sköpunargáfu og útgeislun og í slíku er ekki hægt að keppa. Maður finnur fyrir flutningi þeirra á þessari plötu, og lögin sjálf innihalda bæði ástríðu og leikgleði, ásamt því að vera með krækjur á öllum réttu stöðunum. Þegar ég hlustaði á plötuna í fyrsta sinn fékk ég strax svona tilfinningu eins og þegar maður er að njóta einhvers sem búið er að nostra við. Eins og heimagert jólakonfekt í stað þessa í konfekt- kassanum, eða eins og súkkulaðikakan sem gerð er eftir leyniuppskrift úr fjöl- skyldunni, í stað kökunnar sem bökuð er í iðnaðareldhúsi og seld í stórmörkuðum. Auðvitað eru báðar kökur góðar, en það er mun meira djúsí að sökkva tönnunum í heima- gerðu súkkulaðikökuna og smjatta svolítið á henni. Afsakið allar þessar súkkulaði- lýsingar hér en það er harla erfitt að grípa til einhvers annars lík- ingamáls sem virkar. Kannski hef- ur það eitthvað með það að gera að þetta eru ungar stelpur, að stíga sín fyrstu skref í lagasmíðum og plötuút- gáfu, og þær hafa ekki beint lífsreynsluna sem kallar á tilvísanir í óstöð- ug og ólgandi höf eða óbrigðult veðurfar. Þetta er miklu frekar fersk og ný hljómsveit, lögin spennandi og sæt. Mikið vona ég að þetta skiljist, en mér finnst eins og með hverri setningu sem ég skrifa um hljóm- sveitina Gróu og fyrstu plötu henn- ar þá fjarlægist ég hinn einfalda sannleika sem er: Þetta er frábær plata með góðum og hressum lög- um og vel útsettum og vel hljóm- andi. Það þarf að gefa upptökustjór- anum Gísla Kjaran Kristjánssyni risastórt hrós fyrir opinn og spennandi hljóm plötunnar, sem hentar þessari hljómsveit afar vel. Lögin á plötunni eru sjö og mér finnast eiginlega bara eitt þeirra ekki alveg fullkomið. Í minnstu uppáhaldi hjá mér er „Fimmta lagið“ og það er kannski bara af því að bassalínan í því minnir mig á eitthvert dálítið leiðinlegt dans- lag frá tíunda áratugnum. Ég þarf að hafa mig alla við að muna að þessar stelpur voru ekki fæddar þegar það var allt of vinsælt fyrir minn smekk og því afar ólíklegt að þær hafi heyrt það. Hin sex lögin eru meiriháttar, öll. Ég er þakklát að þessi plata kom út og er ná- kvæmlega svona eins og hún er. Annars væri hún verri. Ljósmynd/Hrefna María Gróa Í hljómsveitinni eru þrjár stúlkur: Fríða Björg Pétursdóttir leikur á bassa, Hrafnhildur Einarsdóttir leikur á trommur og Karólína Einarsdóttir leikur á gítar, píanó og syngur. Frumburðurinn er afbragðsgóður. Geisladiskur Gróa – Gróabbbbm Plata Gróu, samnefnd hljómsveitinni. Gróu skipa Fríða Björg Pétursdóttir, Hrafnhildur Einarsdóttir og Karólína Einarsdóttir. Upptökum stjórnaði Gísli Kjaran Kristjánsson. Hönnun kápu: Hugi Ólafsson. Útgefin á Spotify og á geisladiski í gegnum útgáfufyrirtækið Post-dreif- ingu, 2018. RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR TÓNLIST Nákvæmlega svona Benedict Cumberbatch fer með hlutverk Dominics Cummings, sem var heilinn á bak við kosningasigur þeirra sem börðust fyrir fyrir út- göngu Breta úr Evrópusambandinu 2016, í nýrri sjónvarpsþáttaröð sem sýnd verður á Channel 4 snemma á næsta ári, örstuttu áður en Bretar yfirgefa Evrópusambandið. Frá þessu greinir Guardian. Handrit þáttanna skrifar James Graham, sem hlotið hefur verðlaun fyrir að- komu sína að þáttum á borð við This House og Ink. Byggir hann handrit sitt að hluta á bókum eftir Tim Shipman, fyrrverandi pólitísk- an ritstjóra hjá Sunday Times, og Craig Oliver, fyrrverandi upplýs- ingastjóra Downing Street. Cumberbatch í Brexit-þáttum Leikarinn Benedict Cumberbatch Sýning á skúlptúrum eftir Önnu Eyjólfs verður opin á hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum næstu fjóra daga. Sýningin er opin fimmtudag og föstudag klukkan 16 til 19 og laug- ardag og sunnudag klukkan 15 til 18. Í skúlptúrum Önnu mætast oft óvæntir þættir; fundnir hlutir eins og leikföng, húsbúnaður og nytja- hlutir af ýmsu tagi sem öðlast nýtt hlutverk í myndverkunum. Skúlptúrsýning Önnu Eyjólfs Stefnumót Fundnir hlutir af ýmsu tagi mætast í verkum Önnu á sýningunni. Bandaríski rithöfundurinn Philip Roth er látinn, 85 ára að aldri. Roth var einn virtasti og dáðasti rithöf- undur Bandaríkjanna síðustu hálfa öld, höfundur sem hélt í skáldsögu eftir skáldsögu áfram að vinna með þemu á borð við líf bandarískra gyð- inga, líf samtímamanna hans vest- anhafs og lostann. Í samantekt um ævi Roths í The New York Times er hann sagður hafa brugðið sér í ýmis gervi á sín- um langa ferli en flest hafi þó verið útgáfur af honum sjálfum. Hann hafi í skrifunum kannað hvað það þýddi að vera bandarískur, gyðingur, rit- höfundur og maður. Þá hafi hann gert meira af því en nokkur annar samtímahöfundur að kanna kynferð- islíf karlmanna í hágæða skáldskap. Þá segir að Roth hafi verið síð- astur eftirlifandi af merkilegri þrenningu höfunda; þeir Saul Bel- low og John Updike hafi iðulega ver- ið spyrtir saman og hafi „risið upp yfir bandarískt bókmenntalíf á seinni hluta tuttugustu aldar“. En Roth skrifaði fleiri bækur en hinir. „Updike og Bellow beina vasa- ljósum sínum út í heiminn og lýsa hvernig hann er, en ég gref holu og lýsi með mínu vasaljósi inn í hana,“ sagði Roth eitt sinn um skrif sín en þótt viðfangsefnin hafi iðulega verið alvarleg klæddi hann þau gjarnan í gamansaman búning. Þótt Roth hafi verið orðaður við Nóbelsverðlaunin ár eftir ár, án þess að hreppa þau, hlaut hann fjölda annarra merkilegra verð- launa, svo sem tvenn National Book- verðlaun, tvenn National Book Cri- tics Circle-verðlaun, þrenn PEN/ Faulknerverðlaun, Pulitzer- verðlaun og Man Booker Int- ernational-verðlaunin. Meðal þekktustu bóka Roths má nefna Portnoy’s Complaint, Sabb- ath’s Theater, The Plot Against Am- erica og „ameríska þríleikinn“: Am- erican Pastoral, I Married a Communist og The Human Stain. Risi í bandarískum bókmenntum allur Virtur Philip Roth sendi frá sér yfir þrjátíu fjölbreytilegar skáldsögur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.