Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 85

Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 85
MENNING 85 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 Einu sinni var …Í viðtali við BenediktErlingsson, sem birtist íþessu blaði fyrir skömmu, kvaðst hann vilja búa til ævintýri. Hann sagði að norðurevrópskar kvik- myndir væru fulloft um sársauka og eymd og það væru ekki gerðar nógu margar ævintýramyndir, ekki nógu mörg ævintýri í umferð yfirhöfuð. Nú er allt ævintýrið í kringum kynningu myndarinnar nýhafið. Myndin var frumsýnd á kvikmynda- hátíðinni í Cannes nýverið og hefur nú verið frumsýnd hér. Hún fékk afar jákvæða dóma úti í Cannes og nokkur verðlaun. Því hefur víða verið haldið fram meðal gagnrýnenda að kvik- myndin sé vís til þess að vegna vel á kvikmyndahátíðum og að hún eigi eftir að verða vinsæl. Ég tek í sama streng, ég skal hundur heita ef þessi mynd verður ekki einn af stærri hitt- urum ársins á alþjóðlega vísu. Í upphafsatriði myndarinnar er að- alpersónan Halla, sem er leikin af Halldóru Geirharðsdóttur, stödd úti í sveit. Hún mundar boga af mikilli leikni og skýtur ör yfir víra á stóreflis rafmagnmastri. Örin er tengd við málmstreng, sem veldur því að lín- urnar slá út. Í kjölfarið sjáum við að það verður rafmagnslaust í álverinu á Reykjanesi og það verður uppi fótur og fit. Halla er ekki fyrr búin að fremja skemmdarverkið en hún heyr- ir þyrlu nálgast. Hún leggur á flótta, felur sig fyrir þyrlunni og endar hjá nálægum sveitabæ þar sem vinsam- legur bóndi skýtur yfir hana skjóls- húsi. Halla snýr aftur til Reykjavíkur og fer beint á kóræfingu en hún starfar sem kórstjóri. Einn kórmeðlimur, Baldvin, mætir seint á æfingu og gef- ur Höllu merki um að hann þurfi að eiga við hana orð. Þau fara afsíðis og það kemur fram að Baldvin, sem starfar fyrir forsætisráðuneytið, er samverkamaður hennar í skemmd- arverkunum. Það kemur í ljós að þetta er í fimmta skipti sem Halla slær út rafmagninu í álverinu og að hún sé í herferð gegn stóriðju. Það er mikið fjallað um þessi mál í fjöl- miðlum og fólk veltir fyrir sér hver skaðvaldurinn sé og hvort erlend hryðjuverkasamtök standi að baki þeim. Baldvin er mjög taugatrekktur og mikið í mun að stíga næstu skref með skiplagðri yfirvegun. Halla er hins vegar tiltölulega afslöppuð. Þegar Halla kemur heim af kóræf- ingu hringir síminn og henni býðst að ættleiða stúlku frá Úkraínu. Þetta kemur henni í opna skjöldu, það er langt síðan hún lagði inn umsókn og á þeim tíma var hún ekki róttækasti umhverfisaktívisti Íslands. Hún held- ur á fund tvíburasystur sinnar, jóga- kennarans Ásu, til að fá ráð. Ása og Halla eiga það sameiginlegt að vilja breyta heiminum en þær hafa ólíkar áherslur, Halla vill breyta honum í gegnum róttækar aðgerðir en Ása vill breyta heiminum með því að breyta sjálfri sér og leggja stund á andlegar iðkanir. Ása ræður henni heilt en Halla verður engu að síður að treysta á sjálfa sig fyrst og fremst, nú þegar stendur frammi fyrir því hvernig hún á að sameina móðurhlutverkið og aktívistahlutverkið. Töfraraunsæir tónar Handrit myndarinnar er frábært, sagan er spennandi og skemmtileg og fléttan gengur algjörlega upp. Áhorf- endur eru teymdir af stað í magnað ferðalag, þar sem allt er undir, ekki bara örlög aðalpersónunnar heldur náttúran og veröldin eins og hún leggur sig. Persónurnar eru hyl- djúpar og afskaplega vel skrifaðar en þær lifna líka við í meðförum leik- aranna sem túlka þær. Leikhópurinn er óaðfinnanlegur, Jörundur Ragn- arsson ber af í hlutverki Baldvins og Jóhann Sigurðarson er stórfínn sem hjálpsami bóndinn Sveinbjörn. Hall- dóra Geirharðsdóttir leikur tvö hlut- verk, aðalpersónuna Höllu og Ásu tvíburasystur hennar og vinnur hér leiksigur. Það líka bara löngu kominn tími til að Halldóra sé aðalstjarnan í alþjóðlegri stórmynd, það eru fáir leikarar sem passa betur í það hlut- verk en hún. Tónlistin er, líkt og allt annað í þessari kvikmynd, algjörlega fram- úrskarandi og framsetning hennar er sérlega áhugaverð. Höfundur tónlist- ar er Davíð Þór Jónsson og hún er flutt af honum og kollegum hans úr hljómsveitinni ADHD, Ómari Guð- jónssyni og Magnúsi Trygvasyni Eliassen. Tónlistarmennirnir eru persónur í myndinni, þeir fylgja Höllu eftir líkt og einhvers konar verndarenglar eða -púkar, og leika fyrir hana tónlist. Piltarnir þrír eru ekki einir á ferð en Höllu er líka fylgt eftir af þremur úkraínskum söng- konum. Hljómsveitirnar tvær birtast ýmist hvor í sínu lagi eða saman, það fer eftir aðstæðum. Það er óljóst hvort hljóðfæraleikararnir eru „raun- verulegir“, hvort fólk sér þá eða hvort Halla sjálf sér þá. En það skiptir líka ekki öllu máli af því að þetta er æv- intýri og þessi töfraraunsæislega tækni gefst afar vel. Tónlistarfólkið virkar líka eðli málsins samkvæmt sem holdgervingar fyrir þessa stóru og, að því er virðist, ósamrýmanlegu þætti í lífi Höllu, baráttuna fyrir land- ið og barnið í Úkraínu. Það er unun að horfa á þau í hvert skipti sem þau birtast á skjánum, þau spila svo fal- lega og svo skemmir ekki fyrir hvað þau eru hugguleg og vel klædd. Sér- staklega trommuleikarinn. Um pólitík og predikun Í erlendum dómum hefur því víða verðið fleygt að Benedikt sé kvik- myndahöfundur (e. auteur director) sem er merkilegt í ljósi þess að þetta er bara önnur kvikmynd hans. Það er þó ekki fjarri lagi þar sem koma má auga á fjölmörg höfundareinkenni í myndinni. Það sem er augljósast er að hann notar Juan Camillo, líkt og hann gerði í Hross í oss, sem kómíska aukapersónu. Juan leikur ferðamann sem er alltaf á röngum stað á röngum tíma og hann er ítrekað handtekinn fyrir verknað sem Halla er ábyrg fyr- ir. Þessar senur eru spreng- hlægilegar en undir kraumar alvar- legur tónn, því þarna er snert á fordómum í garð útlendinga. Í áðurnefndu viðtali lét Benedikt þess getið að hann vildi ekki vera pre- dikandi, hann vildi ekki gera upp- fræðandi pólitíska mynd. Honum hef- ur tekist að sneiða hjá því að myndin sé predikandi en hún er engu að síður afar pólitísk. Í nokkrum atriðum, t.d. þegar Halla fær símtalið örlagaríka og í lokaatriði myndarinnar, er hamr- að á umhverfisverndarboðskapnum. Þessar senur eru afar kærkomnar og þær gera myndina safaríkari því þetta eru áríðandi skilaboð, við stefnum hraðbyri að gjöreyðingu plánetunnar og dugar ekki að sitja með hendur í skauti. Það má líka finna lúmskari pólitísk atriði í myndinni. Allir lögregluþjónar í henni, a.m.k. þeir sem flytja texta, eru leiknir af grínistum eins og Sögu Garðars, Ara Eldjárn og Dóra DNA, auk þess sem flestir meðlimir úr Fóstbræðrum leika þarna löggur. Skilaboðin eru skýr. Þetta er auðvit- að líka skemmtilegt nikk í átt að ís- lenskum áhorfendum, sem eru þeir einu sem geta komið auga á þetta. Úti er ævintýri Kona fer í stríð er ævintýri og að horfa á hana er ævintýraleg upplifun. Kvikmyndatakan er frábær, hand- ritið er svakalega vandað og tónlistin er dásamleg, allt við kvikmyndina er í raun til fyrirmyndar. Það fylgir því sérstök tilfinning að sjá kvikmynd sem er innihaldsrík en líka með ein- dæmum skemmtileg, það felst í því einhver óútskýranleg spenna, titr- ingur og orka. Áhorfendur ganga út af Kona fer í stríð uppfullir af þessari tilfinningu sem einungis góð bíómynd getur framkallað. Ævintýraleg upplifun Magnað ferðalag „Handrit myndarinnar er frábært, sagan er spennandi og skemmtileg og fléttan gengur al- gjörlega upp. Áhorfendur eru teymdir af stað í magnað ferðalag, þar sem allt er undir,“ segir m.a. í dómi. Smárabíó og Háskólabíó Kona fer í stríð bbbbb Leikstjórn: Benedikt Erlingsson. Hand- rit: Benedikt Erlingsson og Ólafur Eg- ilsson. Kvikmyndataka: Bergsteinn Björgúlfsson. Klipping: David Alexander Corno. Tónlist: Davíð Þór Jónsson. Aðal- hlutverk: Halldóra Geirharðsdóttir, Jör- undur Ragnarsson, Jóhann Sigurðar- son, Juan Camillo Roman Estrada. Ísland, 2018. 96 mín. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Bandaríski leikarinn Richard Gere snýr aftur á sjónvarps- skjáinn tæpum 30 ár- um eftir að hann vakti fyrst athygli í sjónvarpsþætti. Hann mun fara með hlut- verk bandarísks áhrifamanns í fjöl- miðlaheiminum í nýrri þáttaröð úr smiðju BBC Two sem nefnist Mother- FatherSon. Gere fylgir þar í fótspor annarra Hollywood-stjarna sem í auknum mæli hafa snúið sér að sjónvaps- þáttum í stað kvikmynda. Þeirra á meðal eru Nicole Kidman og Reese Witherspoon. Tom Rob Smith skrifaði hand- ritið að MotherFatherSon, en serí- an fjallar um Max (Gere), Kathryn (Helen McCrory) fyrrverandi konu hans og Caden (Billy Howle) son þeirra. Fjölskyldufyrirtæk- inu er ógnað þegar Caden, sem stýrir blaðaútgáfu fyrir- tækisins í Bretlandi, verður stjórnlaus með þeim afleið- ingum að „framtíð fjölskyldunnar, fjöl- skyldufyrirtækisins og landsins er á barmi breytinga“, segir í frétt BBC. Framleiddir verða átta klukku- stundarlangir þættir. „Það gleður mig mikið að vinna með BBC að þessu einstaka átta klukkustunda verkefni með svona hæfileikaríku fólki og sem kallast sterkt á við samtímann,“ segir Gere í samtali við BBC. Gere leikur í sjónvarpsþáttaröð hjá BBC Richard Gere ICQC 2018-20 ALLTAF KLÁRT Í ÞRIFINAJAX NÚ FÆRÐU AJAX með matarsóda og sítrónu og AJAX með ediki og eplum Hjálpar þérað gera heimiliðskínandi hreint
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.