Morgunblaðið - 24.05.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
Smart föt, fyrir smart konur.
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
ÍDalshrauni í Hafnarfirði varnýverið opnaður bjartur ogfallegur nytjamarkaður ávegum ABC barnahjálpar.
Þar kennir ýmissa grasa, en á
nytjamarkaðnum er hægt að kaupa
allt frá golfkúlum yfir í falleg an-
tíkhúsgögn. Bókahillur, smekk-
fullar af athyglisverðum reyfurum,
skreyta veggi markaðarins ásamt
forvitnilegum málverkum eftir mis-
þekkta listamenn. Vínylplötum er
komið smekklega fyrir í þar til
gerðum rekka og litríkar fataslár
standa í einu horninu. Vínglös fylla
eitt borðið og speglast í þeim vasar
frá hinum ýmsu heimshornum sem
standa glösunum við hlið.
Gjafmildir Hafnfirðingar
Þegar blaðamann Morgunblaðs-
ins bar að garði voru Sigurlaug
Guðrún og Egill önnum kafin við
að koma munum fyrir og aðstoða
áhugasama viðskiptavini. Sig-
urlaug rak sjálf fornmunaverslun í
tuttugu ár og hefur því mikla
reynslu í þessum geira. Sigurlaug
og Egill vinna sjálfboðastarf í
nytjamarkaðnum og segja versl-
uninni berast fallegir munir í
hrönnum.
„Hafnfirðingar eru alveg ótrú-
lega gjafmildir. Um leið og fólk
frétti af þessu fór það í geymsl-
urnar og byrjaði að hreinsa út.“
Sigurlaug gerir hlé á máli sínu til
að selja konu tvær dúkkur og fjólu-
blátt garn. „Við fáum ofboðslega
mikið af fallegum varningi og salan
gengur vel. Það eina sem okkur
vantar er fleiri sjálfboðaliðar.“
Íslendingar nýtin þjóð
Sigurlaug segir augljóst að mikil
eftirspurn sé eftir notuðum hlutum
í góðu ástandi.
,,Íslendingar hafa alltaf verið
nýtnir. Í síðasta góðæri var miklu
hent en mér finnst komið allt ann-
að hljóð í strokkinn núna. Um-
hverfisvitundin virðist vera meiri.
Ég tek jafnvel eftir því að fólk af-
þakkar gjarnan plastpoka til að
spara plastið.“ Notuð föt njóta vax-
andi vinsælda að mati Sigurlaugar.
,,Fyrir hrun var ekki mikið um
það að fólk gengi í notuðum fötum
en í dag mokast fötin út. Það virð-
ist til dæmis vera tíska hjá ungum
stúlkum að ganga í notuðum föt-
um. Þær ná að gera föt sem virka
jafnvel óspennandi svo flott og mér
finnst það ofboðslega skemmti-
legt.“
Það kemur á óvart hvað selst á
Nytjamarkaðnum. Helgi segir
DVD-diska og bækur rjúka út,
enda sé hvort tveggja á sann-
gjörnu verði. Þau Sigurlaug eru
einmitt í þann mund að koma
nýrri sendingu af bókum fyrir.
Húsgögn eru einnig meðal þess
sem mikið selst af á Nytjamark-
aðnum, en þau sem þar starfa
reyna að koma húsgögnum sem
þeim berast í eins gott stand og
mögulegt er.
„Við reynum að hreinsa hús-
gögnin og bera á; þá verða þau af-
ar falleg og tilbúin í að eignast
nýtt líf,“ segir Sigurlaug.
Menntun spornar við fátækt
Ágóðinn af nytjamarkaðnum
rennur í allt starf ABC barna-
hjálpar. Sigurlaug og Helgi benda
aðallega á góð málefni í Pakistan,
Rúanda, Búrkína Fasó og Úganda
í því samhengi.
„Það er verið að bjarga mörg-
um af þessum börnum úr hreinum
þrældómi. Þau vinna mörg hver
við að búa til múrsteina í 16 tíma
á dag fyrir lítil eða engin laun og
það er skelfilegt að vita til þess að
slíkt viðgangist. Fjölskyldurnar
þeirra hafa kannski fengið ein-
hvern smá pening lánaðan frá
þeim sem standa að þrældómnum
og sjá enga kosti aðra en að senda
börnin sín í vinnuþrælkun. Þessi
börn eru einfaldlega föst í þessum
aðstæðum en ABC barnahjálp
leitast við að grípa þar inn í og
hefur komið mörgum börnum til
hjálpar og boðið þeim skóalvist,“
segir Sigurlaug, en ABC barna-
hjálp vinnur út frá því að menntun
sé mikilvægasti hlekkurinn í að
rjúfa vítahring fátæktar. Sam-
tökin hafa stofnað og styrkja
nokkra skóla í löndum þar sem
neyðin er mikil.
Söfnuðu 700 þúsund krónum
Í ár er 30 ára afmæli ABC
barnahjálpar og því í nógu að snú-
ast. Sigurlaug segir safnanir árs-
ins hafa farið fram úr væntingum.
„Um daginn var haldið bingó
þar sem markmiðið var að safna
þrjú hundruð þúsund krónum fyr-
ir brunni. Mætingin var svo góð
að við söfnuðum sjö hundruð þús-
und krónum á þessu eina kvöldi.
Gjafmildin var alveg hreint ótrú-
leg, bæði frá fyrirtækjum og
einstaklingum. Við enduðum því á
því að safna fyrir brunninum og
starfi hjúkrunarfræðings í heilt
ár.“
Nýr nytjamarkaður í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Eggert
Sjálfboðaliðar Þau Sigurlaug og Helgi standa vaktina í Dalshrauni og segja ekkert vanta nema fleiri sjálfboðaliða.
Vínglös Það kennir ýmissa grasa á nytjamarkaðnum og þar er að finna forvitnilega muni frá ólíkum löndum. Þar
má nefna búsáhöld, töskur, bækur, golfkúlur, fiskabúr, sjónvörp og húsgögn.
Nytjamarkaður Hátt er til lofts í nýja húsnæðinu og nóg pláss fyrir varning
frá gjafmildum Hafnfirðingum og öðrum velunnurum.
ABC barnahjálp hefur
nú opnað nytjamarkað í
Dalshrauni, þar sem fyrr-
verandi eigandi forn-
munaverslunar stendur
vaktina. Nóg er að gera,
en mikil eftirspurn er eft-
ir notuðum hlutum í
góðu ástandi.