Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 31.03.1982, Blaðsíða 3
Inngangur
Þróun alþjóðaefnahagsmála
Áhrif olíuverðshækkunarinnar 1979 og 1980 á heimsbúskapinn fjöruðu smám
saman út í fyrra. í flestum iðnríkjum var þó lítið slakað á aðhaldsaðgerðum, sem
gripið var til í því skyni að draga úr verðbólgu í kjölfar hækkunar olíuverðs og
heimsbúskapurinn er því ennþá í lægð. Helstu einkenni efnahagsástandsins í
heiminum að undanförnu hafa verið þessi:
Lítill vöxtur þjóðarframleiðslu í flestum iðnríkjum og samdráttur iðnaðar-
framleiðslu í mörgum ríkjum.
Hjöðnun verðbólgu.
Vaxandi atvinnuleysi.
Óvenju háir vextir vegna aðhaldssamrar stefnu í peningamálum.
Miklar sveiflur í gengi helstu gjaldmiðla og þá fyrst og fremst hækkun dollars
gagnvart Evrópumyntum.
Verðbólga hafði hjaðnað nokkuð á árinu 1978 en var þó meiri í flestum löndum
en við upphaf áttunda áratugarins og mun meiri en á sjötta og sjöunda áratugnum.
Frá árinu 1979 hafa stjórnvöld flestra iðnríkja leitast við að draga úr eftirspurn til
þess að koma í veg fyrir, að hækkun olíuverðs ylli vaxandi verðbólgu. Verð-
bólguáhrif seinni olíuverðshækkunarinnarurðu því minni en áhrif hækkunarinnar
1973/74, en hins vegar virðist samdráttur í efnahagsstarfsemi langvinnari nú en
þá. Sú breyting hefur orðið á hagstjórn í mörgum ríkjum, að meiri áhersla er lögð
á peningamál en áður. Áhrif efnahagsaðgerða eru því um margt önnur en áður var
og veldur það aukinni óvissu um framvinduna á næstunni.
Talið er, að þjóðarframleiðsla OECD-ríkjanna hafi vaxið um rúmlega 1% á
síðasta ári, og er það svipað og árið áður. Næstu tíu árin á undan var meðalhag-
vöxtur hins vegar 3'/2%. Vöxtur iðnaðarframleiðslu sömu ríkja var líklega innan
við 1% í fyrra, en í hitteðfyrra dróst iðnaðarframleiðslan saman um 1%. Þessi
breyting er þó eingöngu vegna þess, að iðnaðarframleiðslan jókst mjög mikið í
Bandaríkjunum framan af síðasta ári, en fyrir mitt ár hægði á vextinum og síðan
tók alveg fyrir hann. í flestum öðrum hinna stærri iðnríkja var minni vöxtur eða
meiri samdráttur iðnaðarframleiðslu í fyrra en árið áður.
Á síðastliðnu ári dró talsvert úr verðbólgu í iðnríkjum. Fór þar margt saman.
Áhrif olíuverðshækkunarinnar árin áður voru að mestu komin fram, efnahags-
starfsemi dróst saman, meðal annars vegna aðgerða stjórnvalda, og talsvert dró úr
1