Læknablaðið - 01.09.2018, Síða 46
426 LÆKNAblaðið 2018/104
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ACCUVEIN ÆÐASJÁIN
HJÁLPAR ÞÉR
AÐ FINNA GÓÐAN
STUNGUSTAÐ
• Getur dregið úr sársauka
við stungur
• Eykur stungunákvæmni
• Auðvelt í notkun
• Tækið er handhægt, nett og létt
• Standur fylgir fyrir
handfrjálsa notkun
Ársæll Jónsson
Í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá því að hópurinn á meðfylgjandi myndum
útskrifaðist frá læknadeild Háskóla Íslands hittust þau á ný í sumarbústað í
Úthlíð í Biskupstungum.
Eftir kandídatsár á Íslandi fóru þessir kandídatar allir til framhaldsnáms,
ýmist til Svíþjóðar, Bretlands eða Bandaríkjanna. Þeir völdu sér barnalækn-
ingar, öldrunarlækningar, ónæmislækningar, endurhæfingarlækningar, efna-
skiptalækningar, krabbameinslækningar, veirurannsóknir og lyfjarannsóknir.
Flestir komu heim til starfa en tveir ílentust í Bandaríkjunum. Tveir eru enn
starfandi á Íslandi og þurftu þeir nýlega að standast próf á vitræna getu til að
endurnýja starfsleyfi sitt. Þeir stóðust báðir með prýði.
50 ár frá útskrift
Mynd tekin í júlí 2018. Hópurinn samankominn, frá vinstri: Sigurður Björnsson, Guðni Þorsteinsson, Davíð Gíslason, Gunnar Sigurðsson, Guðrún Agnarsdóttir, Atli Dagbjarts-
son, Snorri Þorgeirsson og Ársæll Jónsson. Mynd: Gyða Magnúsdóttir.
Mynd frá febrúar 1968 (Guðrún Agnarsdóttir).
Teikning Tryggva Magnússonar
í Speglinum 1929
Þessi teikning var birt í júníblaðinu (blaðsíðu 299) en farið
var rangt með nafn eins af læknunum. Tryggvi Ásmunds-
son er Læknablaðinu alltaf haukur í horni og benti góðfús-
lega á þessa villu sem er hér með leiðrétt.
Frá vinstri eru eftirtaldir læknar: Helgi Tómasson
geðlæknir, Guðmundur Thoroddsen kvensjúkdómalæknir,
Gunnlaugur Einarsson háls-, nef- og eyrnalæknir og for-
maður LR, Guðmundur Hannesson formaður Læknafélags
Íslands og ritstjóri Læknablaðsins og Matthías Einarsson
skurðlæknir. Jónas frá Hriflu er með pípuhatt og í kjól-
fötum og líst ekki á blikuna þegar læknarnir setja upp
ygglibrún.