Læknablaðið - 01.04.2018, Side 33
LÆKNAblaðið 2018/104 193
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Skipulag og starfsemi LÍ á tímamótum
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Reynir Arngrímsson formaður
Björn Gunnarsson gjaldkeri
Guðrún Ása Björnsdóttir
Hjalti Már Þórisson
Jóhanna Ósk Jensdóttir
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
María Soffía Gottfreðsdóttir
Ólafur Ó. Guðmundsson
Stjórn Læknafélags Íslands
Læknafélag Íslands (LÍ) er heildarsamtök lækna og samkvæmt nýja
skipulaginu velja félagsmenn sér aðildarfélag innan þess. Skipulags-
breytingarnar sem samþykktar voru á síðasta aðalfundi félagsins
hafa í för með sér breytingar á félagsaðildinni sem vert er að vekja
athygli á. Einnig er kominn tími til að fara í stefnumótunarvinnu og
ræða hlutverk félagsins og sameiginlega stefnu. Hér til hægri eru sett
fram á myndrænan hátt drög að skipu- og starfsemisriti til að sýna
helstu þætti í starfi félagsins. Þar eru einnig nýir þættir sem ég tel
rétt að tekin sé afstaða til á næstunni, svo sem tillaga að kjararáði
eða kjaranefnd. Breytingarnar taka ekki að fullu gildi fyrr en í haust
á næsta aðalfundi þegar aðildarfélögin hafa gengið frá breytingum á
sínum lögum og formenn þeirra og meðstjórnendur setjast í stjórn LÍ.
LÍ stéttarfélag
Í dag er kjarnastarfsemi LÍ tengd stéttarfélagsmálum. Gerð kjara-
samnings og að standa vörð um réttindi lækna gagnvart heilbrigðis-
stofnunum í víðasta skilningi. Umfang réttindagæslu lækna er mikið
og mun meira en flestir gera sér grein fyrir. Þá eru Orlofssjóður og
Fjölskyldu- og styrkarstjóður lækna hluti af kjarasamningsbundn-
um réttindum. Hér er varpað fram þeirri hugmynd að auk samn-
inganefndar verði komið á fót kjararáði eða kjaranefnd sem hafi það
hlutverk að rýna í launaþróun í landinu og afla þannig gagna og
undirbúa næstu kjaraviðræður á hverjum tíma.
LÍ fagfélag
Fræðslustofnun lækna (FS) hefur gegnt hlutverki fagdeildar félagsins
með sérstakri stofnskrá. Það eru fleiri þættir í starfi LÍ sem flokkast
undir faglega hlutann þegar grannt er skoðað. Á þessum tímamótum
er rétt að mínu mati að hefja umræður um til dæmis nánara samstarf
LÍ og sérgreinafélaganna sem núna standa utan heildarsamtakanna
og samskiptin við þau eru ekki skilgreind sérstaklega í lögum LÍ.
Málefni og staða svæðafélaga sem hafa haldið uppi öflugu fræðslu-
starfi á sínum heimasvæðum er annað sem þarf að skoða. Má þar
nefna Læknafélag Akureyrar sem var svæðafélag og þar með aðildar-
félag að LÍ en er það ekki lengur eftir skipulagsbreytinguna. Útgáfa
Læknablaðsins er þriðji hlutinn sem vert er að nefna. Samstarf þessara
aðila þarf að skoða og kanna möguleika á nánari tengslum.
Erlent samstarf LÍ hefur fyrst og fremst verið á vettvangi Norræna
læknaráðsins, Alþjóðasamtaka lækna (World Medical Association,
WMA), Fastanefndar Evrópsku læknafélaganna í Brussel (CPME) og
nú aftur nýlega á vettvangi Samtaka sérgreinafélaga Evrópu (UEMS).
Hlutverk siðanefndar og siðfræðiráðs er skilgreint í lögum LÍ og
breyttist ekki við síðustu endurskoðun. Félagsmenn sem látið hafa
af störfum hafa með sér félagsskap, Öldungadeild lækna, og ekki
verður vikist undan að ræða málefni þeirra eins og fram hafa komið
óskir um. Til að halda öllu til haga er einnig rétt að benda á Félag
áhugamanna um sögu læknisfræðinnar (FÁSL), sem reyndar er eina
félagið þar sem aðrir en læknar geta orðið félagsmenn, en varðveisla
sögunnar er mikilvæg eins og gefur að skilja á þessum tímamótum.
Til framtíðar
LÍ þarf að halda áfram þeirri vegferð sem lagt var í með lagabreyting-
um á síðasta aðalfundi. Á næstunni mun LÍ bjóða formönnum að-
ildar- og sérgreinafélaga til viðræðna um áframhald innleiðingar á
breyttu skipulagi til að skýra nánar hvað í þeim felst. Vonast er til
þess að þá skýrist línur sérstaklega varðandi uppbyggingu faglega
þáttarins í starfi LÍ í samstarfi við sérgreinafélögin. Jafnframt verði
horft til stefnumótunar til framtíðar með áherslu á sameiginlega
hagsmuni allra lækna.
Reynir Arngrímsson
erfðalæknir
formaður Læknafélags Íslands
reynir@lis.is
UTANRÍKISNEFND
ORÐANEFND
ORLOFSSJÓÐUR
FOSL
SAMNINGANEFND
KJARARÁÐ
LÖGFRÆÐI/LAGANEFND
RÁÐGJÖF
SVÆÐA- OG SÉRGR.FÉLÖG
SIÐFRÆÐIRÁÐ/SIÐANEFND
FRÆÐSLUSTOFNUN
LÆKNABLAÐIÐ
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS
FRAMKVÆMDASTJÓRN
ÖLDUNGADEILD
FÁSL
Nýtt skipurit LÍ.